Jazzblaðið - 01.10.1948, Page 10
Leouard Feather:
Upprennandi Jazz-stjörnur
★
LESLIE SCOTT.
Fjöldi frægra jazzleikara hafa með að-
stoð hljómsveita sinna gert marga beztu
söngvarana fræga. Peggy Lee og Helen
Forrest eiga Benny Goodman mikið að
þakka frama sinn; Duke Ellington kynnti
Herb Jeffries; Billy Eck-
stine náði frægð með hjálp
Earl Hines og hijómsveit-
arinnar.
í hljómsveit enn annars
frægs jazzleikara, Louis
Armstrong, er söngvari, sem
virðist ætla að verða þeim
fremstu skeinuhættur. Hann
heitir Leslie Scott og hefur
sungið með Armstrong
hljómsveitinni síðan hann
losnaði úr hernum um 1945.
Leslie er það sem kallað er
„romantic bariton". Hann syngur af meiri
sannfæringarkrafti og meiri tilfinningu, en
ekki sömu uppgerðar viðkvæmninni og
margir aðrir söngvarar.
Hann fæddist í New York 1921 og söng
með kirkjukór er hann var tíu ára gamall,
síðan söng hann með skólakórum. Arin
fyrir stríð voru beint ekki glæsileg. Hann
dvaldist aðallega í Boston og kom hann þar
í fyrsta sinn fram í útvarpið, sem meðlim-
ur söngflokks nokkurs er nefndist „She
Loh Kahlí'-kórinn. Síðan komst hann að við
hljómsveit Tasker Cross þar í borg, sem
fjórði maður í söng-quartet. Hann segist
vart hafa átt í sig eða á, er hann var í
New York um 1940 og allt þangað til hann
var kvaddur í herinn 1943. í herþjónustunni
dvaldi hann í Maryland og kom þar mikið
fram á hei’mannaskemmtunum.
Hann fékk sitt stóra tækifæri fyrir nokkr-
um mánuðum er Victor plötufyrirtækið
gerði samning við hann. Hann var svo
heppinn að fá hinn fyrrverandi Charlie
Barnet útsetjara, Billy Moore jr. til að út-
sctja og stjórna hljómsveitinni, sem annað-
ist undirleik fyrstu plötunn-
ar og hétu lögin á henni
„Stars fell on Alabama"
og „Baby, get lost“. 1 hljóm-
sveitinni voru Joe Newman
(trompet), Georgo Nicholas
(sax) og Jimmy Jones (pí-
anó) allir úr hljómsveit J.
C. Heard, Toots Mondello,
Hymie Schertzer og Serge
Chaloff léku einnig saxafón
og auk Jones voru í rhythm-
anum þeir Billy Bauer á
guitai', Denzil Best á tromm-
ur og Chubby Jackson á bassa.
Louis Armstrong, sem er afar hreykinn
af þessari nýju stjörnu, var jafnvel ennþá
hrifnari er það kom í Ijós að vinsældir
fyrstu plötunnar fóru fram úr björtustu
spádómum.
Aðeins viku eftir að þessi fyrsta plata
vai' gerð, var hann ráðinn til að gera aðra,
einnig með aðstoð Billy Moore.
*
Fylgist vel með Leslie Scott — hann
virðist ætla að verða skæðasti keppinautur
Eckstine.
Spike Jones hljómsveitin lék fyrir nokkru
í veizlu hjá forsetja Bandaríkjanna. Dóttir
forsetans, Margrét, söng nokkur lög með
hljómsveitinni. En hún hefur undanfarin ár
verið aci læra óperusöng.
10 #a»LUiÍ