Jazzblaðið - 01.07.1949, Side 5
sveit sína í Chicago, sendi hann eftir
Louis til að koma og leika annan trompet
í hljómsveit sinni. Louis tók stöðunni
himinlifandi, en brátt leiddist honum að
leika engar sólóar, þar sem og þegar var
farið að heyrast, að hann væri orðinn
betri en Oliver sjálfur. Hann réðst því til
Fletcher Henderson, en var þar heldur
ekki lengi og lék í ýmsum hljómsveitum
til 1929, en þá stofnaði hann eigin hljóm.
sveit. Þrisvar sinnum hefur hann farið
til Evrópu með hljómsveit sína (síðast í
fyrra) og alltaf verið tekið sem sönnum
„konungi". Hann hefur leikið í mörgum
kvikmyndum og plötur hans eru ótelj-
andi. „West end blues“, sem liann lék inn
á 1924 er álitin bezta jazzplata, sem til
er.
Bunny Berigan er hvitur trompetleik-
ari, sem frægð hefur hlotið. Hann var
aðeins 35 ára gamall, þegar hann dó,
árið 1943, þegar hljómsveit hans var
að ná frægð eftir langa og stranga bar-
áttu. Bunny byrjaði með fiðlu, en tók
svo fyrir trompetinn. Hal Kemp stjórn-
aði fyrstu hljómsveitinni, sem hann lék
í, og síðan var hann í hljómsveit Dorsey
bræðra, Benny Goodman og Tommy
Dorsey. Hann lék inn á plötur með öllum
þessum hljómsveitum og eins með söng-
konunni Mildred Bailey. „I can’t get
started” með hans eigin hljómsveit er
hans bezta plata og um leið ein af tíu
beztu jazzplötum, er gerðar hafa verið.
„Song of India“ með T. Dorsey og „Blues
in E flat“ með Red Norvo eru aðrar tvær
plötur, sem gefa gott dæmi um hinn fág-
aða leik Bunny.
Cootie Williams hefur jafnan verið tal-
inn í hópi beztu trompetleikaranna. Hann
fæddist árið 1908 og var 14 ára gamall,
þegar hann byrjaði fyrst að leika á hljóð-
færi, og valdi hann sér trommur. Hann
lærði á trompet nokkru síðar og byrjaði
að leika opinberlega 1925. Lék hann með
nokkrum hljómsveitum, áður en hann
réðst til Duke Ellington 1929, þar sem
hann var til 1940. Þá fór hann til Benny
Goodman og var hjá honum í eitt ár, en
byrjaði þá með eigin hljómsveit, sem
enn hefur ekki náð þeirri frægð sem
skyldi. Þekktastur varð Cootie fyrir leik
sinn hjá Ellington og var hann aðalein-
leikari hljómsveitarinnar þau ár, sem
hann var þar. Frægastur varð hann fyrir
„crawl“ sitt á trompetinn, en það lærði
hann af Bubber Miley, sem lék hjá Duke
og er sagður fyrstur til að leika „crawl”.
(Bubber dó 1930).
Bix Beiderbecke.
Louis Armatrong.
Bunny Berignn.