Útvarpsblaðið - 23.02.1951, Qupperneq 4
IJtvarp irá leikkvöldi Menntaskólans
Laugardagskvöldið 3. marz
■'ierður útvarp frá Leikkvöldi
Menntaskólans 1951; „Við
kcrtaljós“ eftir Siegfried Cey-
er. Leikstjórn annast Baldvin
Halldórsson.
Elísabet; Ingibjörg Jónsdóttir
og baróninn; Jón R. Magnús-
son. (Ljósm.; Guðni Þórðars.).
lendingasögur í Útvarpið og sömuleiðis úr
fornaldarsögum Norðurlanda. Minnist ég
þess í því sambandi, að forráðamenn útvarps-
ins voru hálf smeykir við, að hlustendur
myndu lítt sinna þeim lestri, en reyndin varð
sú, að margir unghngar, sem ekki höfðu
hlustað á lestur íslendingasagna, hlýddu á
þennan lestur. Hefur þeirn ef til vill þótt
meiri reifarablær á fornaldarsögunum. Eft-
ir að ég hætti fréttastarfinu við útvarpið,
gerðist ég ráðanautur útvarpsráðs um bók-
menntir og efnisval, og hafði um skeið hönd
í bagga með leikritaflutninginn. í fyrra und-
irbjó ég svo umræðuþættina, þar sem nokkrir
menn voru valdir til þess að ræða þau mál,
er efst voru á baugi, og munu þeir þættir
hafa orðið vinsælir, og í vetur annast ég
lausavísnaþáttinn.
Eins og sjá má af þessu, hefur Vilhjálmur
Þ. Gíslason innt af höndum mikið og merki-
legt starf á vegum Ríkisútvarpsins. Hann hef-
ur gerst þar brautryðjandi margra dagskrár-
nýjunga og mun sjálfur vera upphafsmaður
þeirra flestra. — Og enda þótt skiptar kunni
að vera meiningarnar um starfsemi útvarps-
ins, ekki síður en annað, álít ég, að það hafi
ekki brugðist þeim vonum, sem menn gerðu
sér í því sambandi, segir liann. — Það hef-
ur skapað almenningi skemmtun og dægra-
dvöl, ekki óhugsanlegt, að það hafi aukið
heimilisrækni; það hefur flutt margt, sem
hefur mikið menningar- og listagildi, og má
þar til nefna ýmiss úrvalsleikrit og tónlist,
enda þótt léttmetið hafi að sjálfsögðu slæðst
með. Og að ýmsu leyti hefur það orðið fram-
hald og arftaki þeirrar menningarstarfsemi,
sem unnin var á kvöldvökunum í sveitinni
áður fyrr, þegar fólk hlýddi lestri íslendinga-
sagnanna, rímnakveðskap og kvæðasöng við
vinnu sína.
4
ÚTVARPSBLAÐIÐ