Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Síða 8
176
- ÚTVARPSTÍÐINDI
72. Elds við glæður auðlegcSar
oft í næSi hlýnum.
Breytir hæðin hagsældar
hugarþræði mínum.
73. Oft hefir hrest um æfimið
að eiga nesti í tösku.
Því er bezt að búa við
bara hest og flösku.
74. Yfir misjafnt leið mín lá
lífsins vegi að kanna.
Ég hef treyst um of samt á
efndir sumra manna.
75. Gegnum tímans tárajoss
til er sitt hver máti
mitt í glöðum kærleiks koss
kemur sorg með gráti.
76. Uni ég mér við fríðan foss
fjærri skák og máti
ef ég næði í kvenmanns koss
kæmist ég hjá gráti.
77. í heiminum er falskur foss
fellur skák í máti
mörgum bíður kæran koss
sem kulnar út með gráti.
78. í helvíti er funafoss
að forðast stríð er máti,
þar er sagður kvala koss
og kveinstafir með gráti.
79. Hinumegin finn ég foss
sem frelsar alla máti,
miskunsamur kærleiks koss
keypti mig frá gráti.
80. Harður bylur bátinn sló,
brast í kyli og reiða.
Öldufylið öslar þó,
unnar hylinn breiða.
81. Oft ég þrái þig að sjá,
þoku skárum varinn.
Tindur hái Esju á
ösku grár og barinn.
Ný bók frá M. F. A.
MEINLEG ÖRLÖG
eftir Sommerseth Maugham
er komin í bókabúðir og
til umboðsmanna M. F. A.
Félagsmenn í Reykjavík
vitji bókarinnar í Bóka-
verzlun Braga Brynjólfs-
sonar, Hafnarstræti.