Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Page 24
192
ÚTVARPSTÍÐINDI
Nýjar bækur,
Síðustu dagana hafa eftirtaldar bækur komið í bókaverzlanir:
1. island í myndum, endurprentun síðustu útgáfu. Það er öllum kunnugt,
og ekki sízt íslenzkum kaupsýslumönnum, að þessi bók hefir á undan-
förnum árum verið bezti landkynnirinn, sem ísland hefir haft á að
skipa, og hefir gert Islendingum ómetanlegt gagn. Upplag bókarinnar
er, vegna pappírseklu, mjög lítið að þessu sinni.
2. Lífsgleöi njóllu. Eftir Sigrid Boo. Bækur Sigríðar Boo (svo sem „Við,
sem vinnum eldhússtörfin“, „Allir hugsa um sig“ o. fl.), eru orðnar
svo kunnar hér á landi, að ekki þarf að mæla sérstaklega með þessum
höfundi. En hitt er flestra dómur, að bókin „Lífsgleði njóttu“ sé ein
af beztu bókum hennar, og þýðing Axels Guðmundss. er afburða góð,
3. Kimnisögur. Þorlákur Einarsson frá Borg á Mýrum safnaði og tók sam-
an. Þorlákur og faðir hans, séra Einar á Borg, voru áður þjóðkunnir
fyrir skemmtilega frásögn og ótæmandi birgðir skemmtilegra sagna.
Ilér kemur í dagsljósið fyrsta hefti Kímnisagna, sem mun verða lesið
með óblandinni ánægju um land allt.
4. Kennslubók i sœnsku, önnur útgáfa kennslubókar þeirra Péturs G.
Guðmundssonar og Gunnar Leijström. En þessa útgáfu hjó Jón Magnús-
son fil. cand. undir prentun.
5. Iijarlarfótur. Indíánasaga eftir Edward S. Ellis, en hann og Cooper
eru taldir slyngustu höfundar Indíánasagna nú á tímum.
6. Meöal Indíána. Spennandi saga eftir Falk Ytter. Sá, sem byrjar að lesa
þessar bækur, leggur þær ógjarna frá sér, fyrr en hann hefir lokið
hókinni.
7. Dragonwyck, eftir Anya Seton. Þessi saga og
8. i leil aö lífshamingju, eftir. W. Sommerseth Maugham, birtust neðan-
máls í Morgunblaðinu, en mikill fjöldi kaupenda blaðsins óskaði þess,
að þær væru sérprentaðar, enda er hvort tveggja ágætar bækur.
9. Grœnmeti og ber, fjórða útgáfa, eftir Helgu Sigurðardóttur, forstöðu-
konu Húsmæðrakennaraskóla íslands, er nú komin í bókaverzlanir.
Bókin hefir verið uppseld um tíma, en hana þarf hver húsmóðir að eiga
10. Lísa í undralandi. Eftir Lewis Carrol. Prentuð með stóru og fallegu
letri og prýdd fjölda mynda. Bókin er prentuð 1937, en dálítið af
upplaginu var geymt óbundið, og því er bókin nú svo ódýr, að þótt
hún sé 200 blaðsíður, prentuð á fallegan pappír og í laglegu bandi,
kostar hún aðeins 10 krónur. Lísa í undralandi er barnabók, sem
prentuð hefir verið oftar og ef til vill fleiri eintök, en af nokkurri
annarri barnabók í enskumælandi löndum.
Fást hjá bóksölum um allt land.
Bókaverzlun Isafoldarprenlsmiöju.