Útvarpstíðindi - 14.06.1948, Blaðsíða 12
NU ER 51
ÞAKKAÐ FYRIR VETURINN
i
Eftirfarandi bréf hefur Útvarps-
tíðindum borizt frá norðlenzkum
bónda:
„Ég vil byrja á að þakka henni
Reykjavíkur-Evu fyri’r bréfið: „Hve-
nær á þjóðin að hugsa?“ Mér skilst,
að hún fái helzt það svar, að þjóðin
þurfi aldrei að hugsa neitt. Fjórða
hvert ár hugsa nokkrir stjórnmála-
menn fyrir „háttvirta kjósendur,"
einn eða nokkra daga, en þess á
milli hafa þeir stóran hóp blaða-
manna, ekki til að hugsa, — fari
norður og niður, ef þeir gjöra það —
héldur til að styrkja fólkið í trúnni
og kenna því hvernig það á að lifa
og hvers það má vona. En þeir,
sem eru of ungir til að ve’ra reikn-
aðir sem kjósendur, hafa kennslu-
málaráðherra og fræðslumálastjóra,