Prentarinn - 01.10.1966, Side 8

Prentarinn - 01.10.1966, Side 8
fulltrúar prentara og bókbindara lýstu yfir, að þeir myndu leggja til við sín félög, að þau samþykktu íram komið tilboð. Lýstu þeir jafn- framt yfir, að þessi ákvörðun væri að nokkru tekin vegna hinar erfiðu samningsaðstöðu og einnig af því, að áfangasamningur urn 40 stunda vinnuviku væri svo stórt atriði fyrir þessi tvö félög, að þau hefðu í raun og veru ekki leyfi til að hafna til- boðinu. Var tilboð atvinnurekenda borið undir fund í félaginu 7. október og það samþykkt með 117 atkvæðum gegn 65. Og það síðar um kvöldið undirritað af samningsaðilum að viðstöddum sáttasemjara ríkisins. Stjórn H. I. P. var ljóst, að í samningununt var um þrjár leiðir að velja: 1. Hafna tilboðinu og láta boðað verkfall konta til fram- kvæmda. 2. Fresta verkfalli og hafa lausa samninga. 3. Að samþykkja framkomið tilboð. Stjórnin valdi þriðju leiðina og þegar athuguð er samingsaðstaðan, svör atvinnurekenda og tilmæli sáttasemjara um frestun verkfalls- ins, verður að álykta að stjórnin liafi valið þá leið, sem skynsamleg- ust var. Og til stuðnings þeirri skoðun má benda á, að síðan samn- ingar voru undirritaðir, hefur ekk- ert það gerzt í samningum annarra félaga, sem orðið hefði stuðningur við kröfur bókagerðarfélaganna. Prentnemafélagið Prentnemafélaginu var boðið að senda fulltrúa á trúnaðarmanna- fund, sem baldinn var 12. septem- ber 1966, þar sem meðal annarsvoru ræddar væntanlegar kröfur H. I. P. Eftir þann fund mættu fulltrúar prentnema á fundi bjá stjórn H. I. P. og óskuðu eftir því, að í væntan- legum samningum yrði reynt að fá kaup nema reiknað af öðrunt taxta en lágmarkstaxta, t. d. tekið meðal- tal af þeim þremur töxtum sem samið er um fyrir sveina. Einnig fóru fulltrúar prentnema þess á leit að aukavinnukaup nema yrði sam- ræmt, — en það er mjög mishátt, — t. d. að greitt yrði fyrir auka- vinnu nenta sama aukavinnukaup og Dagsbrúnarverkamenn bafa í al- mennri vinnu. Þessum óskum prentnema svaraði stjórnin á þá leið, að hún myndi taka til athugunar beiðni þeirra um hækkun fastakaupsins. En í sam- bandi við ósk þeirra um auka- vinnukaupið var bent á, að aldrei hefði verið um það samið. Og vafa- samur hagnaður gæti það verið fyr- ir prentnema, að miða aukavinnu- kaup þeirra við Dagsbrúnarkaup, því að í samningi Dagsbrúnar væri um að ræða 50% álag fvrir eftir- vinnu og 91% fyrir nætur- og ltelgi- dagavinnu. En samkvæmt samningi H. í. P. væri greitt 100% álag fyrir alla aukavinnu. I framhaldi af þessu má geta þess, að stjórn Iðnnemasantbands Islands hefur ákveðið að fara bess á leit við iðnfélögin, að þau taki að sér, samkvæmt heimild í nýjum iðn- fræðslulögum, að semja um kaup iðnnema. Og er ætlun Iðnnemasam- bandsins að fara fram á sömu pró- sentutölu af kaupi sveina og H. I. P. santdi um fyrir prentnema í október 1965. Ymis mál Prentaratal. Á stjórnarfundi 17. október 1966 var Pétri Stefánssyni falið að setja sarnan nefnd til að vinna að undir- búningi að útgáfu nýs Prentaratals. Var það gert á grttndvelli samþykkt- ar aðalfundar 1965 og síðari urn- ræðna á félagsfundum. I nefndina valdi Pétur Jón Otta Jónsson og Pét- ur Haraldsson. Nefndin hefur baldið þrjá fundi og haft samráð við Ara Gíslason, sem samdi fyrri útgáfuna. Er nú í prentun eyðublað til upplýsingasöfn- ttnar, sem fyrirhugað er að dreifa til þeirra sem við prentverk vinna og annara sem það hafa lært og til kann að nást. Er fyrirhugað að út- gáfan verði til ekki síðar en 1972, þegar félagið verður 75 ára. Fyrri útgáfa Prentaratals hefur nú verið seld það rnikið, að tilkostn- aður hefur fengist greiddur. Nokkur hluti upplagsins er þó enn óseldur, en búast rná við að hann þrjóti á næstu mánuðum. Skal því prentur- um bent á að kaupa ritið áður en það þrýtur, því það er orðið nokk- ttð eftirsótt af söfnurum. Frœðslunejnd. Með bréfi, dagsettu 6. september 1966, óskaði Iðnfræðsluráð eftir til- nefningu í fræðslunefnd, samkv. 11. gr. nýrra laga ttm iðnfræðslu, sem staðfest voru 11. maí 1966, I þeim lögum segir svo: „Iðnfræðsluráð skipar þriggja manna fræðslunefnd hverrar iðn- greinar. Skal einn nefndarmanna vera meistari og annar sveinn þeirr- ar iðngreinar, sem um er að tefla, en hinn þriðji nefndur af Santbandi iðnskóla á Islandi, og sé hann að jafnaði kennari í viðkomandi grein. Skipar iðnfræðslttráð einn nefndar- manna formann, en að öðru leyti skipta nefndarmenn verkum með sér. Hlutverk fræðslunefndar er, að vera stjórnarvöldum og öðrum til ráðuneytis og gera tillögur um nám og kennsluháttu, enda ber stjðmar- völdum, að leita umsagnar nefndar- innar um slík mál, eftir því sem við á. Iðnfræðsluráð hefur umsjón með störfum fræðslunefnda og setur þeim nánari starfsreglur.“ Með bréfaskriftum og símtölum varð að samkomulagi við Iðn- fræðsluráð að hafa nefndina tví- þætta og tilnefndi stjórn H.Í.P. fyr- ir sitt leyti Guðjón Sveinbjömsson fyrir setjara og Jón Júlíusson fyrir prentara. 30. þing A. S. í. Kjör fulltrúa á 30. þing Alþýðu- sambands íslands fór fram í sept- embermánuði s.l. og var þriggja manna kjörstjórn falið að annast kjör fulltrúanna. I kjörstjóminni áttu sæti Sigurður Guðgeirsson, skipaður af A. S. I., og var hann forntaður hennar, Gestur G. Áma- 46 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.