Prentarinn - 01.10.1966, Page 9

Prentarinn - 01.10.1966, Page 9
son og Ólafur Hannesson, skipaðir af stjórn H. í. P. Kjörstjórn auglýsti eftir fram- lioðslistum. Aðeins einn listi kom fram og var hann því sjálfkjörinn. Aðaifulltrúar voru Jón Agústsson, Óðinn Rögnvaldsson, Pétur Stefáns- son og Stefán Ögmundsson. Varafulltrúar: Ellert Ág. Magn- ússon, Pálmi A. Arason, Jón Már Þorvaldsson og Guðrún Þórðar- dóttir. Samband bókagerðarmanna. I framhaldi af þeim viðræðum, sem fram höfðu farið allt frá árinu 1962 var á aðalfundi 1966 samþykkt heimild fyrir stjórn H.I.P. til að ganga til samstarfs um stofnun sam- bands milli H.I.P., Bókbindarafélags íslands, Offsetprentarafélags Islands og Prentmyndasmiðafélags Islands. Fljótlega eftir að þessi samþykkt var gerð tilnefndu stjórnir félaganna menn til viðræðna um þetta mál. Svanur Jóhannesson hókhindari var fenginn til að vera ritari þeirrar nefndar, og honum falið að færa til bókar allan aðdraganda að hug- inyndinni um stofnun sambands bókagerðarmanna. Var jafnframt hafist handa um að afla gagna um stofnun þeirra sam- banda verkalýðsfélaga, sem til eru á íslandi og einnig var farið yfir lög danskra félaga bókagerðarmanna um slíkt samband, sem komið hafði verið á 2. júní 1962. Hafði fyrrver- andi formaður H.I.P., Óskar Guðna- son, þýtt þau lög að mestu, meðan hann vann að þessu máli í sinni for- mannstíð. Ur þessum gögnum vann ritari nefndarinnar síðan að frumvarpi að lögum fyrir samband bókagerðar- manna á íslandi. Ræddi nefndin frumvarpið á tveim fundum og á- kvað að nefndarmenn flyttu það hver til sinnar stjórnar til álits og breytinga. Síðan hefur nefndin ekki verið kölluð saman. Þó þetta mál hafi legið niðri um skeið, er það von stjórnar H.I.P., að stjómum hinna félaganna sé Ijóst, að ekki verður komist hjá samstarfi milli félaganna, eftir að viðsemj- endur hafa myndað samtök sín á milli. Og tækniframfarir kalla einn- ig á nánara samstarf um ýmislegt innan iðngreinanna en verið hefur til þessa. Agreiningur um jilmusetningu. Með bréfi, dags. 14. apríl 1966, tilkynnti Lithoprent h.f., að fyrir- tækið væri að setja upp „Mono- photo“ filmusetningarvél með tveim- ur setjarahorðum frá „Monotype". Jafnframt var tilkynnt, að þar sem engir íslendingar væru þjálfaðir til að fara með þessi tæki, hefði Litho- prent ráðið tvo Englendinga til starfa í 12 mánuði. Væm þessir menn lærðir setjarar og meðlimir í brezkum prentarasamtökum. Sams- konar tilkynningu hafði Lithoprent sent Offsetprentarafélagi íslands. Vegabréf og iðnréttindi þessara Englendinga voru athuguð af stjóm H.Í.P. og reyndust þau vera í lagi. Var þeim því veitt innganga í fé- lagið og vinnuréttindi. Skömmu seinna tilkynnti for- stjóri Lithoprents að stjórn Offset- prentarafélagsins hefði gert þá at- hugasemd, að ekki væri ljóst, hvort vinna á þessi tæki tilheyrði okkar iðngrein eða þeirra. Leiddi það til þess að skotið var á fundi þriggja manna frá H.Í.P., formanns, ritara og gjaldkera, og tveggja manna frá Offsetprentarafélaginu, þeirra Jóns Ólafssonar og Pálma V. Samúels- sonar. Lagði ritari H.I.P. þar fram þýðingu úr ársskýrslum I.G.F., þar sem skilgreint er á hvern hátt sam- komulag er um að taka á þessum málum innan félaga í I.G.F. Þessar viðræður leiddu til þess að samkomulag varð um að félögin spyrðust bréflega fyrir um það hjá Dansk Typografforbund og Dansk litografisk forbund, hvernig þessum málum væri fyrirkomið hjá þeim. Þann 2. maí harst bréf frá Prent- myndasmiðafélagi íslands, þar sem það óskaði eftir að fá að fylgjast með þeim viðræðum, sem fram fæm milli H.I.P. og offsetprentara um þetta mál. I júnímánuði barst svo bréf frá Dansk Typografforbund. Þar segir, að bæði samböndin hafi launa- samninga við sína viðsemjendur um þessi atriði. Þá segir einnig í bréf- inu, að fyrir dyrum standi viðræður við Lithografisk forbund um ýms vandamál sem uppi séu um þessa nýju tækni, og vilji samtökin því bíða með endanlegt svar, sem hugs- anlegt sé að þau geti gefið í sam- einingu. Þess má að lokum geta, að tveir af félagsmönnum H.Í.P. hafa nú lokið námskeiðum í þessari nýju tækni í Monotype-skóla í Englandi. Valgeir J. Emilsson í umbroti á filmu-sátri og Kristján Gunnarsson á setjara- borðin. Þó ljóst ætti að vera, að einungis lærðis setjarar liafa undirstöðuþekk- ingu til að vinna á þessi tæki, er hér um að ræða samruna tveggja iðn- greina, sem skapa vandamál þeirra á milli, vandamál, sem félögunum er nauðsynlegt að leysa á sem hag- kvæmastan hátt fyrir þau bæði. Bezt gerSa bókin 1965. Félag íslenzkra teiknara efndi á s.l. vori til sýningar á bezt gerðu bókum og tímaritum ársins 1965. I sambandi við sýninguna fór fram val á „beztu bók ársins 1965“. Félag ís- lenzkra teiknara óskaði eftir því, að H.Í.P. tilnefndi mann í dómnefnd um val bókarinnar og var Stefán Og- mundsson til þess kjörinn. H.Í.P. hefur nú nýlega borizt bréf frá sömu aðilum þar sem óskað er eftir nánara samstarfi um aðild ís- lenzkra bókagerðarmanna að nor- rænni samvinnu á þessu sviði. Hefur ekki enn verið tekin ákvörðun í því máli. J. Ág. Skýrsla íasteignanefndar Á síðasta aðalfundi var Guðbjörn Guðmundsson endurkjörinn í nefnd- inan til tveggja ára. Fyrir í nefnd- inni var Sigurður Guðgeirsson og á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skipaði hún Pálma Arason í nefnd- PRENTARINN 47

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.