Prentarinn - 01.10.1966, Qupperneq 16
herbergi og þar geymt alls konar fiskæti, hert eða
saltaff.
Ekki vissi ég neitt um brunann fyrri en morguninn
eftir. Kl. 6 fór ég á fætur. Eg átti heima í Vestur-
bænum gegnt Stóra-Seli. Eg átti að sjá um, að heitt
væri orðið kl. 7, því þá átti vinna að hefjast.
Málaferli urðu út af bruna þessum. Ovildarmenn
Sigmundar reyndu að gera þennan bruna grunsam-
legan, vegna þess hve áhöld prentsmiðjunnar voru
hátt vátryggð.
Arið 1885, í októbermánuði, var Sigmundur búinn
að kaupa sér nýja prentvél í Skotlandi. Miller og
Richard hétu þeir sem seldu hana. Hún tók aðeins
8 síður (Medium) „Skírnis“-stærð, og var því helm-
ingi minni en sú vél, sem í brunanum lenti.
Áður en prentsmiðjan brann liafði Sigmundur
hyrjað að gefa út á sinn kostnað „Fornaldarsögur
Norðurlanda", Hrólfa sögurnar (Hrólfs Gautreksson-
ar og Göngu-Hrólfs).
Árið 1886, í febrúarmánuði, var byrjað að prenta
nýja útgáfu af kirkjusöngs sálmabókinni. Átti hún
að vera mikið endurbætt. I nefndinni, sem átti að
sjá um útgáfu þessa, var lector Helgi Hálfdánarson,
formaður, séra Stefán Thorarensen á Kálfatjörn á
Vatnsleysuströnd og séra Valdimar Briem á Stóra-
Núpi. — Sigfús Eymundsson keypti útgáfuréttinn í
þetta sinn fyrir 2500 krónur. Sigfús hafði lært bók-
band hjá Páli bókbindara Sveinssyni, sem gaf út
„Þúsund og eina nótt“, er þýdd var af Steingrími
skáldi Thorsteinssyni.
Árið 1887 (í maímánuði) stofnuðu félag nokkrir
ungir verzlunarmenn og prentarar í Reykjavík, með
þeim tilgangi að læra leikfimi. Fórum við nokkrir
saman til Ólafs Rósenkranz, sem þá var leikfimikenn-
ari við Latínuskólann. Ólafur spurði okkur þá, hvað
við værum margir, sem ætluðum að vera saman. En
við sögðum honum, að við værum ekki nema átta.
Við hefðum viljað tala við hann áður en við gerðum
meira. Hann sagði okkur þá, að við mættum gjarnan
vera 16 eða 20, ef við vildum, húsrýmið væri nógu
mikið. En engan tíma sagðist hann hafa afgangs til
kennslu nema á sunnudagsmorgna kl. 10—12. Var
okkur strax ljóst að það var einmitt hentugur tími
fyrir okkur.
Er Ólafur kvaddi okkur, sagði hann: „En eitt vil
ég segja við ykkur og það er, að þiff verðið að mæta
stundvíslega, annars verður allt í ólagi."
Næsta ár byrjuðum við um miðjan aprílmánuð
1888. Vorum við nemendurnir þá orðnir 18. Fyrra
árið vorum við að jafnaði 11 eða 13. Einn af þeim,
er við bættust, var Matthías Einarsson, sem þá var
á unglingsaldri, en sagt var að væri þá að lesa undir
inntökupróf í Latínuskólann. Þetta var Matthías Ein-
arsson, hinn víðkunni læknir, sem síðar varð dáður
og virtur af öllum, sem þekktu hann að ráði.
Jón Þórðarson.
EFNISYFIRLIT
44. árgangs Prentarans
Ágúst Guðmundsson til Winnipeg ................ 33
Bókagerðarmenn í Noregi sameinast í eitt sam-
band, viðtal við Óðinn Rögnvaldsson ........... 21
Dagblöðin vinsælust............................... 33
Elektron-setningarvélar í Skarð og Odda ......... 28
Eundurbætt Ludlow-vél ........................... 37
Faðir 8 stunda vinnudagsins á Islandi ............ 1
I'ilnian í stað blýsins, viðtal við Valgeir Emils-
son........................................... 25
Frá aðalfundi H. í. P. 1966 ...................... 32
Frá bókasafni H. f. P. ........................... 24
Hið íslenzka prentarafélag 1966:
Bridgemót II. í. P............................. 52
Félagsannáll árið 1966 ....................... 39
Frá Lífeyrissjóði prentara .................... 51
Skýrsla Bókasafnsnefndar ...................... 48
Skýrsla Fasteignanefndar....................... 47
Skýrsla fulltrúa H. I. P. í stjórn Byggingafé-
lagsins Miðdalur ............................ 51
Skýrsla Orlofsheimilisnefndar.................. 49
Skýrsla Skemmtinefndar......................... 48
fsland aðili að norrænu samstarfi................. 20
Minningar um Jakob Kristjánsson, eftir Jón
Benediktsson prentara.......................... 12
Oddur Bjömsson prentmeistari, eftir Steindór
Steindórsson frá Hlöðum........................ 2
Prentverk á Akureyri, eftir Steindór Steindórs-
son frá Illöðum................................ 5
Rekstrar- og efnahagsreikningur Lífeyrissjóðs
prentara 1965 ................................. 34
Samanburður á kjörum bókagerðarmanna í ýms-
um löndum...................................... 30
Sigurður Friðleifur Jónsson — Minning, eftir
S. 0........................................... 29
Staldrað við í Pressmen’s Home, eftir Hallgrím
Tryggvason ..............................'..__ 18
PRENTARATAL
(1530—1950)
Nokkur eintök
eru enn fáanleg
í skrifstofu H. 1. P.
54
PRENTARINN