Prentarinn - 01.01.1969, Page 6
til Danmerkur. Þannig treysta þeir jafnframt at-
vinnuöryggi sitt og stéttarsamtök.
VELJUM
íSLENZKT
Ávöxtum sparifé okkar
í Iðnaðarbankanum
Með því móti eflum við íslenzkan iðnað.
Á þann hátt stuðlum við
að aukini atvinnu.
Þannig greiðum við götu íslenzkri iðnþróun.
IÐNAÐARBANKINN
var stofnaður
fyrir forgöngu heildarsamtaka iðnaðarins.
Hluthafar hans eru um 1200
iðnaðarmenn, iðnrekendur, starfsfólk í iðnaði
og ríkissjóður.
i
IÐNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Lækjargötu 12 . Reykjavík Sími 20580
1 ÚTIBÚ:
■H k Strandgötu 1, Hafnarfirði 4v*~ Sími 50-9-80 I Geislagötu 14, Akureyri Sími 21-200
Ný óætlun um iðnnómið í Danmörku
Um iðnnámið sjálft sagði hann m. a.: Rétt áður
en við lögðum upp í þessa ferð til íslands, sátum
við ráðstefnu í Randers, þar sem rædd voru drög
að nýrri skipan iðnnámsins í Danmörku. í þeirri
áætlun er gert ráð fyrir að það hefjist á 10. skóla-
ári og fyrsta árið fari í almennan undirbúning und-
ir iðnnámið, og allir nemarnir leggi þá stund á
sömu námsgreinar. A öðru ári hefjist raunverulegt
verknám í verknámsskólunum og á vinnustöðunum.
Af bókiðnaðarnemum er gert ráð fyrir að bókbands-
nemar byrji þá strax sitt sérnám, en hinir haldi
áfram sameiginlegu námi. Sérnám pressumanna
hefjist svo á 2. ári verknámsskólans og ætlunin er
að þeir læri jöfnum höndum hæðarprentun, djúp-
prentun og offsetprentun. í 3. bekk skiptast pressu-
mennirnir í tvo hópa. Annar hlutinn læri prentun
með flötum formum, en hinn prentun í liverfivél-
um, og það verður allur munurinn á námi þeirra. í
3. Iiekk hefst líka sérnám þeirra nema sem ætla í
myndamótagerð, plötugerð og setningu.Setjarar eiga
síðar að ákveða hvort þcir kjósa fremur að læra
monotype-setningu eða venjulega vélsetningu.
„Að iðnnámi loknu verður unga fólkið að eiga
opnar leiðir til framhaldsnáms í sinni iðn,“ hélt
Reimer áfram. „Það má ekki jrekkjast lengur að
iðnaðarmaðurinn standi í sömu sporum ár eftir ár,
þar til hann kemst skyndilega að raun um að hans
er ekki lengur þörf og hann hefur enga möguleika
til þess að sjá sér og sínum farhorða vegna þess að
hann átti ekki kost á framhaldsnámi. Þetta er
rangt frá mannlegu sjónarmiði. Við berum ábyrgð-
ina ef slíkt hendir og einnig prentarafélögin og
meistarafélögin. Unga fólkið krefst þess að opnar
séu leiðir til framhaldsnáms, svo menn séu ekki
dæmdir til þess að staðna í starfi strax að loknu
iðnnámi. — Þá aðstöðu verður þjóðfélagið að veita."
g. s.
4
Litið nmslag getur haft að geyma filmusátur
i lieila bók.
PRENTARI N N