Prentarinn - 01.01.1969, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.01.1969, Blaðsíða 7
 _ 8 6 Transport • • • • • • • • • • • • • • • 5 • • • • • • • • • • • • • • • • • • 4 • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • 3 • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • • 2 • • • • • 1 > 5 s 5 > m - - ° œ o. V. *• ro - •< x í < « - ■O 3 - X- - - ta - a o o- 01 Zeichen Á teikningunni eru sýnd merki á 8 rása stjórnræmu. Ef setja á upphafsstafi er bœtt við merkjum á 6. rás. Merki á rás 7 og 8 eru fyrst og fremst notuð til pess að gefa til kynna línulengdir, leturgerðir, jöfnun iina o. p. li. Ell Reimer: Staða prentarans I tækniþróunínní Prentað mál og prentmyndin eru það sem prent- iðnirnar bjóða þeim hópum í þjóðfélögum okkar, sem fýsir að tjá sig hver fyrir öðrum. I>ví má lfta á bókiðnirnar sem meðul eða tæki til fjölmiðlun- ar. Fyrir fáum áratugum voru þær nær einar um að annast þetta hlutverk, en núorðið hafa hljóðvarp og sjónvarp gerzt mjög þýðingarmiklir þátttakendur i þessu starfi og hafa á alþjóðasviði breytt skilyrðum til fjölmiðlunar, bæði nteð því að veita prentuðu máli samkeppni og með því að skapa nýja mögu- leika til notkunar prentgripa. Fræðsla, menntun og vfsindarannsóknir hafa á síðustu árum dafnað svo að torvelt er að gera sér grein fyrir, og þörfin á skjalfestingu hefur vaxið svo ört, að hefðbundnar prentaðferðir hafa ekki hrokkið til að fullnægja henni, og af þeim sökum hafa bókiðnirnar þróazt yfir f verksmiðjuiðnað. Prentarinn og prentmyndasmiðurinn eru orðnir verksntiðjuverkamenn. Þetta hefur krafizt nýrra verkfæra og breyttrar vinnutilhögunar. Skipulagn- ing í hönnun og ígrundun á markmiðinu með prentgripnum verður að fara fram áður en tæknileg framleiðsla hefst, og þvf hafa tækniskipuleggjandi og prenthannari bætzt í hópinn sem samstarfsmenn annarra bókiðnaðarmanna. En einnig hefur reynzt nauðsynlegt og á eftir að verða æ nauðsynlegra, að iðnaðarmenn með hefðbundna menntun séu reiðu- búnir að taka í notkun nýjar aðferðir og nýjar vélar og aðlagi sig nýju viðhorfunum nteð endur- þjálfun. Jafnframt þessari þróun tekur þjóðfélagið breyt- ingum, sem hafa í för með sér að iðnaðurinn verð- ur að vera við því búinn að laga sig af aukinni lip- urð að neytendum — og ekki sízt hafa kröfurnar um stutta afhendingarfresti og lágt framleiðsluverð get- ið af sér spánnýjar framleiðsluaðferðir á prentgrip- um, sem veitt hafa hefðbundinni tækni ákafa sam- keppni. Staða prentarans í þeirri tækniþróun sem nú stendur yfir er á dagskrá hvarvetna á vesturlönd- um — þar sem annars vegar er reynt að koma í veg fyrir að prentarar nái hinni nýju tækni inn á sitt verksvið og hins vegar leitazt við að tryggja eftir því sem unnt er, að einungis iðnlærðir menn vinni þau nýju störf sem þróunin leiðir af sér. Um vandamál- ið er fjailað með allt öðrum hætti í löndum Austur- Evrópu — þar er það talin skylda prentara (sam- kvæmt formálsorðum í „Die Schnell Setz Technik" frá Leipzig) að fylgjast með hinni nýju tækni, kynna sér hana og læra að beita henni í þágu alls samfé- lagsins þannig að því sé á sem hagkvæmastan hátt séð fyrir fjölmiðlun í prentuðu máli. Sé litið á aðstæður í Danmörku, þá er prenturum ekki tryggður þar neinn einkaréttur á notkun hinn- ar nýju tækni; í fyrsta lagi hefur þróunin átt sér stað að verulegu leyti á starfssviði prentmynda- smiða og offsetprentara og í öðru lagi hefur eink- um sá hluti þróunarinnar sem á rætur sínar í nú- tíma-skrifstofutækni leitt til þess að alveg nýir starfshópar hafa tekið að fást við prentstörf. I’ar PRENTARINN 5

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.