Prentarinn - 01.01.1969, Blaðsíða 23

Prentarinn - 01.01.1969, Blaðsíða 23
Louis Andersen, jormaður Kaupmannahafnarprentara. I>að var áreiðanlega engin missýning, að í svip og fasi veizlugestanna mátti kenna einlæga gleði og stolt yfir samtökunum, sem kallað höfðu fólk sitt til þessa fagnaðar. A heimleiðinni var erlendu gestunum boðið til veitingastaðarins Kystens Perle. Þaðan er styzta leið til Svíþjóðar. Á ströndinni fyrir framan staðinn er bautasteinn til minningar um eina af frægustu hetj- unum úr andspyrnuhreyfingunni gegn Þjóðverjum. Frá þessum stað hafði hann hjálpað tugum flótta- manna yfir sundið, unz Þjóðverjar drápu hann. Næsta dag héldu erlendu gestirnir til Rödovre. Þar er í raun og veru í byggingu ný borg í útjaðri Kaupmannahafnar. Þar má líta stórglæsilega bygg- ingarlist í verzlunarmiðstöðvum og íbúðarhöllum, skipulagi garða og stræta. Um kvöldið áttu gestirnir ánægjulega viðkynningarstund í Tívolí með ýmsum forustumönnum danskra bókagerðarmanna. Prentverk um aldir Miðvikudaginn 11. júní var opnuð prentiðnaðar- sýning i ráðhúsi Kaupmannahafnar. Sýning þessi bar nafnið „Bogtryk gennem tiden". Þarna var sam- ankominn fjöldi fólks. Formaður Kaupmannahafnar- deildar bauð gesti velkomna með ræðu. Því næst tók til máls Willy Brauer borgarstjóri, heiðursfélagi prentarasambandsins og fyrrverandi formaður Kaup- mannahafnardeildar. Hann flutti stutta ræðu og opnaði sýninguna. Að því búnu flutti prentarinn Kai Nielsen „Óð til Gutenbergssona" eftir skáldið Hans Hartvig Seedorf Petersen. Sýningin gaf á margan hátt skemmtilega og fróð- lega yfirsýn, allt frá dögum Jóhanns Gutenberg til vorra daga. Þarna var mikið af gömlu, dönsku prentverki og þróunarsaga helztu blaðanna sýnd. í öðrum enda salarins var staðsett gömul prent- smiðja með gotnesku lausaletri og handpressu í fullum gangi. Þeir sem vildu gátu fengið í hendur nýprentaðan fjögurra blaða pésa með ýmsum frétt- um, sem teknar voru á 25 ára fresti síðustu hundrað árin og þetta var „Givet udi Staden Kipbenhavn llte Juni 1969“. Við prentstörfin voru tveir prent- arar klæddir eftir 17. aldar tízku. En það var ekki bara gamli tíminn sem hér var til sýnis. Hér voru einnig nýjustu tæki til filmusetn- ingar í fullum gangi og vöktu mikla athygli. A sýningunni mátti sjá prenttæki, sem notuð voru „neðanjarðar" á hernámsárunum, af mótspyrnu- hreyfingunni gegn Þjóðverjum. Þarna var m. a. „fluesmækker", sem látinn var falla til jarðar úr brezkri flugvél til nota fyrir andspyrnuhreyfinguna. Þegar fólk hafði skoðað sýninguna, hófst opinber móttaka í veizlusölum ráðhússins. Þar tók formaður borgarráðs á móti gestum með nokkrum orðum, en að þvf búnu var hafizt handa við að létta af þung- búnum veizluborðum hinu girnilegasta fjölmeti. Að veizlu þessari lokinni bauð Willy Brauer borgarstjóri Louis formanni og erlendum gestum hans til skrifstofu sinnar og voru þar enn fram bornar veitingar. Willy Brauer er mjög viðfeldinn maður, mjúk- látur í framkomu og tilgerðarlaus. Hann bað mig fyrir kveðju til Magnúsar Astmarssonar, en honum hafði hann kynnzt, er hann kom til íslands sem borgarfulltrúi. Um kvöldið var innlendum og erlendum gestum boðið til máltíðar í Alþýðuhúsinu (Folkets hus). Eftir ríkulegan kvöldverð fór þar fram afhending gjafa og hafði þar margur góða gripi í fórum sín- um. Þar var afhent svissneskt úrverk, franskt postu- PRENTARINN 21

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.