Prentarinn - 01.01.1969, Qupperneq 24

Prentarinn - 01.01.1969, Qupperneq 24
lín, drykkjarhorn frá Noregi, leirbrennt listaverk frá íslandi (Piltur og stúlka eftir Ásraund Sveinsson), bækur, kveikjarar, loftvog og margt fleira, að ó- gleymdum mörgum peningaávísunum. Þær áttu að renna í „Hátíðarsjóðinn", sem stofnaður var af til- efni afmælisins og ætlað er mikið hlutverk á sviði ftlagsmála. Hver fulltrúi afhenti gjöf sinna samtaka með nokkrum orðum og svaraði Louis formaður hverjum einum að bragði með hlýrri þökk. Að þessu búnu var hverjum gesti samkvæmisins afhent gjöf: Karlmenn hlutu fagurlega útgefna bók um skreytingar við ævintýri H. C. Andersen i inn- lendum og erlendum útgáfum frá fyrstu tíð. Konur gestanna lilutu að gjöf postulínsskál með myndum úr ævintýrum H. C. Andersen. Bókina hafði Prent- arafélagið látið gera til gjafar handa hverjum fé- lagsmanni; aðeins fá eintök fóru á frjálsan markað og urðu snemma torfengin. Með hátíðabrag Á sjálfan afmælisdaginn, 12. júlí kl. 10 að morgni — var móttaka í Folkets hus. Þangað kom mikið fjölmenni. Auk forustumanna prentarasamtakanna og annarra bókagerðarfélaga, voru hér staddir trún- aðarmenn vinnustaða, fulltrúar iðnklúbbanna og fé- lagsdeilda utan af landi, enn fremur margt manna úr forustuliði dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Stóð þetta fólk góða stund f langri röð og beið þess að heilsa formanni prentarafélagsins og færa félaginu hamingjuóskir og gjafir. Hér var meðal annarra kominn Thomas Nielsen formaður danska Alþýðu- sambandsins til þess að flytja elzta verkalýðsfélagi landsins árnaðaróskir og færa því málverk að gjöf. Koma Nielsens vakti alveg sérstaka athygli vegna þess að danska prentarasambandið hefur um nokk- urra ára skeið verið utan Alþýðusambandsins sakir ágreinings um heildarsamninga o. fl. Það mátti með sanni segja að þessi morgunstund gæfi gull í mund, þegar litið var yfir langt og breitt gjafaborðið þétthlaðið hinum beztu og dýrustu gripum. Móttökunni lauk kl. 12 á hádegi og enn höfðu gestir prentarafélagsins fengið danskan árbít, sem var óaðfinnanlegur í alla staði. Um kvöldið var svo hinn eiginlegi hápunktur af- mælisins, fjölmennur og rismikill fagnaður í Odd- fellowhöllinni. Þar flutti Prentarakórinn afmælis- kantötu með aðstoð hljómsveitar og leikara. Einnig kom þar leikpar frá danska þjóðleikhúsinu með atriði úr Kátu ekkjunni, og vakti almenna gleði. Einsöngur og fiðlusóló var flutt og allt af þekktu og mjög góðu listafólki. Ræður kvöldsins fluttu Louis Andersen formaður Kaupmannahafnardeildar, Henry Nielsen formaður prentarasambandsins og Heinz Göke aðalritari I.G.F. Að lokum var dansinn stiginn. Öll var dagskráin af beztu gerð og með hátíðabrag. „Vel sé þeim, sem veitti mér" Að morgni föstudagsins kvöddum við gestgjafa okkar og þökkuðum þeim frábæra gestrisni, einnig erlendu félagana, sem við eigum nú með sameigin- legar minningar um ógleymanlega daga. Enda þótt veizluhöldin væru óneitanlega stór þáttur í þessari heimsókn til dönsku stéttarbræðr- anna, þá verða það ekki þau, sem lengst búa í huga manns. Því enda þótt dönsku steikurnar séu góðar ■2 vínin litfögur og renni ljúflega niður, þá eru þa’ þó samskiptin við reynda félaga, glaða og góðgjarna, sem gefa slíkum vinamótum ríkast gildi. Mér er það ljóst, að það sem hér hefur verið sagt gefur næsta ófullkomna mynd af því sem fram fór. Þar kom margt fram í ræðum manna og viðtölum. sem gaf til kynna hve traustur hlekkur prentarasam- tökin hafa verið í baráttu og þróunarsögu dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Og í margri grein hafa þau vísað veginn í menningarlegum og félagslegum efnum. Það sem ekki hvað sízt einkenndi afinælishald dönsku prentaranna var, að þeim tókst með ýmsum hætti að fá þátttöku meðlimanna almenna og gera hátíðahöldin að sameign þeirra. En athyglisverðast held ég það frá þessum kynnum, hve ljósa vitund forustumennirnir hafa um þau rniklu tímaskil, sem nú ganga yfir prentiðnaðinn. Þeir gera sér þess fulla grein að þeim verður að mæta með stóraukinni upp- fræðslu og endurhæfingu til nýrra vinnubragða. En jafnljóst er þeim einnig að allt félagsstarf verður að laga að breyttum atvinnuháttum. Treysta þarf böndin við aðrar greinar bókiðnaðarins og alþjóð- lega samstarfið. Þetta kom glöggt fram á prentara- hátíðinni, ekki aðeins í ræðum og skrifum, heldur einnig í vali gesta frá öllum greinum bókiðnaðar- ins og erlendu fulltrúanna. Fyrir utan ánægjuna sem við hjónin áttum af heimsókninni til dönsku prentaranna, sem vissu- lega er nrikils virði, þá var hún mér enn og aftur ábending um það hve okkur er nauðsynlegt að efla samskiptin við erlenda stéttarbræður. Það verður áreiðanlega hægara að fóta sig i straumrótinu, sem framundan er, ef unnt er að styðja sig við reynslu þeirra og vinsamleg kynni. Stefán Ögmundsson. 22 PRENTARINN Göðir gestir I heimsókn í miðjum júni komu hingað tveir austurrískir prentarar á eigin vegum. Voru þeir að láta rætast margra ára draum sinn og notuðu tækifærið þegar þeir voru fulltrúar sambanda sinna á þingi bóka- gerðarmanna í Finnlandi. Þetta voru þeir Arnold Steiner, forseti austurríska prentarafélagsins, en hann er jafnframt formaður prentaradeildar Al- þjóðasambands bókagerðarmanna, og Franz Loidolt, aðalritari prentarafélagsins austurríska og meðlim- ur miðstjórnar Alþjóðasambandsins. Höfðu þeir skrifað skrifstofu HÍP og beðið um að sett yrði saman ferðaáætlun um ísland, svo þeir gætu séð sem mest og kynnst sem flestu á þeim stutta tíma sem þeir yrðu hér. Fékk undirritaður í sinn hlut að gera þeim til- lögur um leiðir, ef þeir vildu kynnast íslandi í flýti. Fóru þeir um Reykjavík og nágrenni, til Akureyrar og Mývatns en HÍP bauð þeim i ferð til Gullfoss og Geysis. Á fundi sem þeir áttu með stjórn HÍP í félags- heimilinu, skiptust rnenn á skoðunum og ræddu Austurríkismennirnir um fyrirkomulag hlutanna hjá þeim og lærdómana, sem af því mætti draga. Þeir höfðu strax eftir stríðið skipulagt öll bóka- gerðarfélögin í eitt félag með deildarskiptingum og fara deildirnar með samninga um sín sérmál. Til viðbótar fagdeildunum hafa þeir aðstoðarmanna- deildir og eru því allir starfsmenn fyrirtækjanna fé- lagslega skipulagðir í samtökum bókaiðnaðarins, hvort senr þeir vinna að iðngrcin eða við t.d. glugga- þvott og annan starfa í stórfyrirtækjum. Hefur verk- lýðsfélagið sainningsréttinn fyrir alla þessa hópa. Þeir gera samninga um vinnutilhögun jafnóðum og nýjar vélar eru teknar í notkun, ákveða vinnutím- ann og launaflokka, sem síðan eru teknir inn í heild- arsamningana þegar þeir eru næst endurskoðaðir. Þetta þýðir að þeir fylgja því eftir, að iðnlært fólk læri meðferð þessara nýju véla strax í upphafi og fylgist þar greinilega að vilji beggja aðila, verka- manna og atvinnuveitenda, að fá starfhæfasta fólk- ið til að tileinka sér nýjar vinnuaðferðir. Laun þeirra eru milli 900—1000 shillingar á viku eftir tegund vinnu, enda eru fleiri launaflokkar en hér gerist. Eru þá rótation-prentun, litprentun, fjöl- litaprentun í offset, vélsetning og monotypesetning 1 hæstu flokkum. Arnold Stciner skýrði m. a. frá því, að við samn- ingsgerðina í fyrra hefði prentaraféiagið fengið í samninga, að öll þau störf sem til yrðu vegna nýrr- ar tækni í prentiðnaði skyldu unnin af meðlimum prentarafélagsins. Einnig kom það inn í samningana, að ekki mætti segja félaga upp starfi næstu fimm árin vegna nýrra vinnuaðferða. Það sem segir hér að framan bendir til þess að skipulag og starf austurríska prentarasambandsins sé með öðrum hætti en hér. Þó var mikið hægt að læra af þessum mönnum, og við sem áttum kost á að kynnast þessum tveim skemmtilegu félögum okk- ar frá Austurríki erum þess fullvissir að aukin kynni eru ekki aðeins æskileg heldur og nauðsynleg í fram- tíðinni meir en nokkru sinni áður. Þeir vildu og auka kynni við félagana hér á ís- landi og lögðu á það áherzlu, að f húsi prentara- félagsins í Vínarborg væru gestaherbergi með að- gangi að eldhúsi leigð mjög ódýrt ef félagar héðan væru á ferðalagi í Vín, þó vildu þeir vita sllkt mcð nokkrum fyrirvara ef um nokkurra daga dvöl væri að ræða, þar sem oft væru þessi herbergi upp- tekin vegna komu félaga utan af landi á fundi og ráðstefnur, en „það er alltaf smuga fyrir góða gesti," sagði Steiner. — ÞD. 23. PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.