Prentarinn - 01.01.1969, Page 30

Prentarinn - 01.01.1969, Page 30
Mínning Leiklist og prentlist Sett eítir framsögn ___meðan ég var hjá Birni (Jónssyni, ritstjóra og prentsmiðjustjóra i Prentsmiðjunni Fróða á Akur- eyri), setti óg heila bæklinga, sem aldrei var neitt handrit af. I'að voru ljóðabækur og rímur eftir Símon Dalaskáld. Hann skrifaði svo illa, að það var illmögulegt að lesa eftir hann. Þess vegna var tekið það ráð, að hann sat á kassa í prcntsmiðjunni og þuldi upp úr sér ljóðin, en ég setti. — Þurfti hann ekki að leiðrétta neitt á eftir i próförk? — Nei, aldrei neinn staf. Símon hafði allan kveð- skapinn till)úinn 1 höfðinu eða þá, að hann hafði tekið saman efni kvæðanna, og orti svo jafnóðum og ég setti eftir honum. — Og hver var fljótari? Símon. Hann hafði til að yrkja skammarvísu um alla, sem i prentsmiðjuna komu, aukritis því, sem hann orti i hendurnar á mér. En svo fór Símon á fylleri við og við og var fjarverandi nokkra daga. Og þá varð ég að fá annað verkefni á meðan. Ákvæði í ísafold og leildist í Iðnó ... 1896 fór ég aftur að vinna í ísafold. Þar var ég i sjö ár, hjá Birni Jónssyni ísafoldar ... — Og hvernig voru vinnukjör prentara þá? — Fast kaup var 75 krónur á mánuði. En i ísafold var mikið unnið i ákvæðisvinnu; greiddir 33 aurar fyrir hverja 1000 stafi, og prófarkir af vikuverki inanna límdar upp og mældar út. Þegar mikið var að gera, eins og t. d. um þingtfm- ann, urðum við stundum að fara á fætur kl. 4—5 á morgnana. Það var langur vinnutími. Annars var unnið frá kl. 7 á morgnana til 8 á kvöldin, með íveim matartímum. — Og hvernig gátuð þér fengið tíma til leikstarfa að auki? Friðfinnur brosir við og segir: — Það var tilbreytni frá prentvinnunni, eins kon- ar hvíld, þó æfingar byrjuðu ekki fyrr en kl. 9 að kvöldi og héldu áfram til kl. 2 að nóttu. Það varð 16 klst. vinnutími alls__ Úr viðtali i Morgunblaðinu viÖ FriÖfinn GuÖjónsson, prentara og leikara, á 50 ára afnueli hans, 16. mal 1936. HalldöP Kp. Víltijálmsson andaðist að Elliheimilinu 29. jan. siðastliðinn, rösk- lega 84 ára að aldri. Halldór var fæddur i Reykjavik 12. janúar 1885 og ólst hér upp með móður sinni Guðfinnu Páls- dóttur. Á unglingsárum vann hann aðallega að sendiferðum, hestaflutningum og við innheimtu reikninga. 1. október, haustið 1900 byrjaði Halldór að nema prentverk hjá David Östlund i Aldarprentsmiðju, sem þá var starfrækt i gömlu Finsenshúsunum i Austurstræti. Prentsmiðja þessi var stofnuð 1898 af Jóni Ólafssyni ritstjóra. Jón átti hana þó ekki nema að nafninu til, heldur var hún eign Jóns konsúls Vídalíns, eða öllu heldur kaupfélaganna. Prent- smiðjan var seld 1. marz 1899 David Östlund, sem rak hana til 1901. Þá keypti Lárus fríkirkjuprestur Halldórsson prentsmiðjuna og starfrækti hana fyrst á sama stað en síðar á Vesturgötu 39, í húsi Jóns Árnasonar kaupmanns. Vann Halldór þar áfram að prentnámi undir stjórn Stefáns Runólfssonar prent- ara og síðar ritstjóra Hauks. Haustið 1904 fór Hall- dór að vinna í Reykjavíkurprentsmiðju Þorvarðs Þorvarðssonar, sem þá var starfrækt á Laufásvegi 5. Ekki starfaði hann þó þar nema ( þrjá mánuði, þvi um áramótin 1904 og 1905, er prentsmiðjan Guten- berg tók til starfa, fluttist Halldór þangað og gerð- ist síðar meðeigandi i þeirri prentsmiðju og starf- aði þar óslitið i rösklega þrjá áratugi, unz hann missti heilsuna árið 1937. Eftir það dvaldi hann í ýmsum sjúkrahúsum, en síðustu ár ævinnar lá hann rúmfastur í Elliheimilinu Grund. Þegar ég fór til Reykjavíkur vorið 1911, fór ég að vinna í Gutenberg. Ekki kynntist ég þó Halldóri strax. Kynnin hófust fyrst i skemmtiför er farin var af Prentarafélaginu sumarið 1912. Þá var farið ríðandi á hestum suður í Kaldársel, framhjá Gvend- arbrunnum að Reykjum i Mosfellssveit, en þaðan beina leið til Reykjavíkur. Halldór var á yngri árum sinum gleðimaður. Bezt naut hann sín þar sem söngur var um hönd hafð- ur, enda hafði hann góða söngrödd og lét þá „tóna 28 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.