Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008 R Á Ð A M E N N Þ J Ó Ð A R I N N A R Kveðjum árið með nýju Stjórnmálatertunni! ÁÆTLAÐ er að á fjórða þúsund erlendir ferðamenn gisti á hótelunum í Reykjavík um áramótin. Eru það heldur færri gestir en um síðustu áramót en það var líka metár. Samkvæmt upplýsingum Ernu Hauksdóttur, fram- kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), eiga um 3.300 erlendir ferðamenn bókaða gistingu á hótelum í Reykjavík um áramótin. Er það um 300 gestum færra en um síðustu áramót þegar flest hótelin voru troðfull. Ingólfur Haraldsson, hótelstjóri á Hilton Reykjavík Nordica, segir að erlendu gestirnir séu að koma til að upplifa óvenjuleg áramót. Flestir koma á eigin vegum og hafa ekki skipulagt mikið fyrirfram. Ingólfur segir að fólkið vilji komast út í náttúruna og vonist til að geta séð norðurljós. Það vilji fylgjast með flugeldasýningunni miklu á gamlárskvöld úr nálægð. Loks dragi næturlífið marga að. Þetta eru góðir gestir, að sögn Ingólfs, sem notfæra sér þá þjónustu sem er í boði. Fara í jeppaferðir og Bláa lónið og út að borða. Býst hann við að fólk geri enn betur við sig en í fyrra, því verðlag sé hagstæðara. Á annað þúsund ferðamenn gistu á hótelunum um jól- in, heldur færri en í fyrra. Ingólfur lætur þó vel af við- skiptunum, segir að 150 manns hafi verið í mat á veit- ingastaðnum Vox á aðfangadag og jóladag. helgi@mbl.is Óvenjuleg áramót  Yfir þrjú þúsund erlendir ferðamenn eru á landinu um áramótin  Flestir koma til að fylgjast með flugeldunum, skoða norðurljósin og kíkja á næturlífið Í HNOTSKURN »Um 3.300 erlendir ferða-menn eiga bókaða gist- ingu á hótelunum í Reykja- vík um áramótin á móti um 3.600 gestum um síðustu ára- mót. »Um jólin voru hér á ann-að þúsund erlendir ferða- menn á móti 1.200 til 1.300 á sama tíma í fyrra. »Gestirnir koma mikið fráNorðurlöndunum en einn- ig Þjóðverjar, Bretar og eitt- hvað er um Bandaríkjamenn í hópi gesta um áramót. Morgunblaðið/Kristinn Áramót Erlendir ferðamenn fjölmenna yfir áramótin. BANASLYS varð á Reykjanesbraut við Áslands- hverfi í Hafnarfirði á sjötta tímanum á laug- ardagskvöld þegar bifreið hafnaði á ljósastaur og endaði utan vegar á hvolfi. Kastaðist ökumað- ur út úr bifreiðinni við veltuna og er talið að hann hafi látist samstundis. Tildrög slyssins eru óljós, en ökumaður var einn á ferð í bílnum. Ekki er talið að um hraðakstur hafi verið að ræða, en talið að öryggisbelti hafi ekki verið notað. Hét ökumaður bifreiðarinnar Freyja Sigurð- ardóttir og var til heimilis að Burknavöllum 17 b í Hafnarfirði. Hún var sextug að aldri og lætur eftir sig tvær uppkomnar dætur, barnabörn og unnusta. Það sem af er þessu ári hafa 12 manns látist í umferðarslysum. Árið 2007 fórust 15, en árið 2006 lést 31. Leita þarf aftur til ársins 1996 til að finna færri umferðarslys á einu ári, en þá létust tíu manns. Banaslysið á Reykjanesbraut hið tólfta í ár Morgunblaðið/Júlíus DUFTKER í tugatali bíða í hillum bálstofu Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæmis í Fossvogi eftir greftrun. Flest bíða þess að nýr duft- reitur verði tekinn í notkun í Sóllandi í Öskjuhlíð. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavík- urprófastsdæmis, vonast til þess að hægt verði að taka Sólland í notkun seint á næsta ári. Þar verða einungis grafreitir fyrir duftker. Búið er að móta landið og fyrsti áfangi fram- kvæmda að baki. Þórsteinn sagði ekki óalgengt er- lendis að duftker væru geymd í svo- nefndum columbarium, sérstökum hillum fyrir duftker, sem ýmist eru utandyra eða í grafhýsum. Byrjað var að geyma duftker í bálstofunni til skemmri tíma árið 1948. Geymsluað- staðan þar flokkast þó ekki undir col- umbarium heldur eru duftkerin geymd, að ósk aðstandenda hinna látnu, þar til þau eru jarðsett. Í nú- gildandi lögum eru engin tímamörk á því hvenær þarf að grafa duftker. Hægt er að fá leg fyrir duftker í tveimur kirkjugörðum Reykjavík- urprófastsdæmis, þ.e. í Kópavogs- kirkjugarði og í Gufuneskirkjugarði. Nokkur ár eru síðan allt pláss í duft- reitnum í Fossvogskirkjugarði var uppurið, þrátt fyrir að reiturinn hafi verið stækkaður í kringum árið 2000 Þórsteinn sagði að þar væri nú að- eins grafið í fráteknar grafir. Fyrir þá sem bíða eftir Sóllandi er mögulegt að fá duftker grafin í Kópavogskirkjugarði eða Gufunes- kirkjugarði og láta síðan færa þau í Sólland. Þórsteinn sagði að þótt lög heimiluðu að duftker væru færð milli kirkjugarða vildu Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmis síður að fólk færi þá leið. Mögulegt er að dreifa ösku látinna. Sé óskað eftir því að gera það utan sérstaklega skipu- lagðra svæða þarf að sækja um leyfi til þess til dóms- og kirkjumálaráð- herra. Í Fossvogskirkjugarði er dreifireitur þar sem dreifa má ösku. gudni@mbl.is Duftker í tugatali bíða þess að verða grafin Sólland Nýr grafreitur fyrir duft- ker verður opnaður í Öskjuhlíð. ÁRMANN Kr. Ólafsson, þing- maður Sjálfstæð- isflokksins, skrif- aði færslu í vefdagbók sína um jólin þar sem hann hélt því fram að forysta Samfylkingarinn- ar hefði ekki um- boð frá lands- fundi flokksins til að sækja um Evrópusambandsaðild. „Í kjölfar Landsfundar Sjálfstæðisflokksins gæti sú skondna staða verið komin upp að eingöngu annar flokkurinn í ríkisstjórn hefði skýrt umboð til um- sóknar í Evrópusambandið, þ.e. Sjálfstæðisflokkurinn en ekki Sam- fylkingin,“ skrifaði Ármann. Síðar sama dag barst fjölmiðlum bréf frá Kristrúnu Heimisdóttur, að- stoðarmanni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra, þar sem farið var yfir ályktun lands- fundar Samfylkingar vorið 2007, „en borið hefur á skrifum pólitíkusa að undanförnu sem sýna þekkingar- leysi á sögu og stefnu Samfylking- arinnar“, eins og segir í tölvupóst- inum. Er þar rakinn texti ályktunarinn- ar frá landsfundi 2007, þar sem segir m.a.: „Samfylkingin vill: 1. Að Ísland sæki um aðild að Evrópusamband- inu og hefji aðildarviðræður. 2. Unn- ið verði að víðtækri samstöðu um samningsmarkmið. 3. Að niðurstöð- ur samninga verði bornar undir þjóðaratkvæði.“ andresth@mbl.is Þrátta um umboð til umsóknar Ármann Kr. Ólafsson Samfylkingin svarar skrifum þingmanns BÍLL valt í grennd við býlið Hvals- höfða í Hrútafirði um klukkan sex í gærkvöldi. Í bílnum voru tveir far- þegar auk ökumanns, allt ungar stúlkur undir tvítugu. Voru þær fluttar til aðhlynningar á heilsu- gæslustöðina á Hvammstanga. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Blönduósi reyndust meiðsl þeirra ekki alvarleg. Við fyrstu sýn virðist ökumaður hafa misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt niður bratt- an vegkant og endaði niðri í læk. Frekari tildrög eru óljós, en að sögn lögreglu var engin hálka á svæðinu. Er bifreiðin talin ónýt. andresth@mbl.is Bílvelta í Hrútafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.