Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008
Eftir Kristbjörgu Sigurðardóttur
Kópasker | Það var að ýmsu að
hyggja fyrir jólin, allar sendingar
þurftu að komast í réttar hendur
áður en hátíðin gekk í garð.
Starfsmaður vöruafgreiðslunnar
á Kópaskeri, Andri Þór Eyþórsson,
var vígalegur með þetta óvenjulega
æki þar sem hann var að flytja tvö
jólatré til viðtakenda þeirra, sem
biðu í ofvæni að fá að skreyta þau.
Óvenjulegt
æki með
jólatréð
Morgunblaðið/Kristbjörg
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef-
ur í samráði við forsætisráðherra,
fjármálaráðherra og utanríkisráð-
herra ákveðið að flýta hækkun at-
vinnuleysisbóta. Grunnatvinnuleys-
isbæturnar munu hækka um 13.500
kr. frá 1. janúar nk. í stað 1. mars
eins og áætlað hafði verið.
Hinn 1. mars var gert ráð fyrir að
atvinnuleysisbætur ættu að hækka
um 13.500 kr. til samræmis við
lægstu laun á almennum vinnumark-
aði. Fram kemur í tilkynningu frá fé-
lagsmálaráðuneytinu að þetta sé í
samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar frá 17. febrúar 2008 sem
gerð var í tengslum við kjarasamn-
inga á almennum vinnumarkaði.
Samhliða munu hámarkstekju-
tengdar atvinnuleysisbætur hækka
um sama hlutfall í samræmi við fyrr-
nefnda yfirlýsingu og verða þá
242.636 kr. á mánuði í stað 220.729.
kr. áður. Félags- og tryggingamála-
ráðherra hefur undirritað reglugerð
þessa efnis.
Atvinnuleysisbætur
hækka um 13.500 kr.
Hækkun bótanna flýtt um tvo mánuði
SYSTURFYRIRTÆKIN TM
Software, eMR og Skyggnir ákváðu
að styrkja frekar Krabbameinsfélag
Íslands í stað þess að senda út jóla-
gjafir og kort til viðskiptavina sinna.
Allt eru þetta dótturfélög Nýherja
og starfa á sviði upplýsingatækni.
Guðrún Agnarsdóttir, formaður
Krabbameinsfélagsins, veitti
styrknum viðtöku úr hendi þeirra
Sveins Sigurðar Kjartanssonar frá
Skyggni og Stefáns Þórs Stef-
ánssonar frá TM Software.
„Í ár ákváðum við að breyta til og
styðja góðgerðarsamtök ,“ segir
Stefán Þór Stefánsson hjá TM
Software, í fréttatilkynningu.
„Okkur fannst tilvalið að styðja
Krabbameinsfélag Íslands, sem
vinnur mjög gott starf sem enginn
Íslendingur hefur farið varhluta af
og það er ánægjulegt að geta lagt
starfi Krabbameinsfélagsins lið á
tímum þegar erfitt getur verið að
falast eftir styrktarfé hjá atvinnulíf-
inu.“
Styrkur í
stað gjafa
Styrkur Guðrún Agnarsdóttir tók við
styrknum til Krabbameinsfélagsins.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt Andra Þór Eyjólfsson í
tveggja ára fangelsi fyrir stórfellt
fíkniefnasmygl. Reyndi hann að
smygla tæpum þremur kg af am-
fetamíni til landsins í apríl í fyrra og
hafði tekið að sér að flytja fíkniefnin
til landsins gegn niðurfellingu fíkni-
efnaskuldar.
sÞar sem Andri Þór á nokkurn
sakaferil að baki þótti dómara
tveggja ára fangelsi hæfileg refsing.
Til frádráttar kemur gæsluvarðhald
sem hann sætti frá 8.- 17. apríl 2008.
Tvö ár fyrir
smygl á
amfetamíni
TÖLVUVERÐ ölvun var í miðborg
Reykjavíkur í fyrrinótt en engin al-
varleg mál komu til kasta lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Svipaða sögu er að segja frá Ak-
ureyri en talsverð ölvun var í bæn-
um. Þrír gistu fangageymslur lög-
reglunnar í Reykjavík en enginn á
Akureyri. Almennt var rólegt að
gera hjá löggæslumönnum landsins
yfir hátíðirnar.
Ölvun í mið-
borginni