Morgunblaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 10
10 FréttirHALLDÓR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 2008
Því er nú gjarnan haldið fram aðÍsland hafi færzt 20 ár aftur í
tímann í einni svipan. Bankarnir séu
komnir í ríkiseigu, stjórnmálamenn-
irnir hafi fengið aftur í hendurnar
völdin sem þeir höfðu látið frá sér,
ríkisforsjá og höft séu aftur komin á.
Spyrja má hvort enn eittfortíðarfyrirbæri hafi skotið upp
kollinum á ný. Það er flokksblaða-
mennskan.
Einu sinni voru til dagblöð, semvoru í eigu stjórnmálaflokka og
höfðu þann eina tilgang að mála
veruleikann með þeirra lit. Þau dóu
drottni sínum eitt af öðru á síðasta
áratug liðinnar aldar.
Nú hefur Vinstrihreyfingin-græntframboð komið sér upp eigin
málgagni, vefritinu Smugunni. Á
Netinu er líka orðinn til vefurinn
amx.is, sem virðist tala fyrir afmark-
aðan hóp í Sjálfstæðisflokknum.
Í þessum miðlum er fréttum ogskoðunum grautað saman, eins og
gerðist í gömlu flokksblöðunum.
„Fréttaskýringar“ eru skrifaðar
með pólitískum gleraugum. Les-
endur vita iðulega ekki hvort þeir
eru að lesa frétt eða leiðara.
Hvað er það í hinum breyttu þjóð-félagsaðstæðum, sem kallar á
afturhvarf til blaðamennsku, sem
margir héldu að heyrði sögunni til?
Kannski er það þráin eftir að alltverði aftur eins og það einu
sinni var. Ríkisbankar, gjaldeyris-
höft og flokksrit. Gamla Ísland.
Gamla Ísland
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
" "
" "
#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
! "
#$% '
( ) *" $%+&
*!
$$B *!
$% &' % ' !(')(
<2
<! <2
<! <2
$!'& "* #+,-"( .
CD -
<7
'
# ,- &
.
B
EB
. # % "
/0 62
1 0 %-
"
# &2
+
"0 &
/0""(11
"('2 (-(* #
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
STAKSTEINAR
VEÐUR
Í BYRJUN næsta árs tekur gildi það ákvæði í
lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækj-
andi skuli hafa staðist próf í íslensku.
Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur gefið út
reglugerð um prófin sem tekur gildi um áramótin
og er greint frá henni á vefriti ráðuneytisins.
Samkvæmt henni er ráðgert að Námsmatsstofn-
un eða annar sambærilegur aðili annist undirbún-
ing og framkvæmd prófanna sem haldin verða að
minnsta kosti tvisvar á ári.
Þeir umsækjendur sem hafa lagt fram umsókn í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir 1. janúar
2009 ásamt öllum tilskildum fylgigögnum, og full-
nægja á þeim tímapunkti þeim skilyrðum laga um
íslenskan ríkisborgararétt sem í gildi eru fyrir
áramót, þurfa ekki að gangast undir íslenskupróf.
Tal, ritun, les- og hlustunarskilningur
Þess ber hins vegar að geta að þótt umsækj-
andi hafi áður fengið búsetuleyfi og lokið ís-
lenskunámi eða prófi vegna þess leyfis þarf hann
engu að síður að undirgangast íslenskupróf vegna
umsóknar um ríkisborgararétt. Í prófunum skal
reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskiln-
ing. Umsækjandi þarf að hafa næga kunnáttu í ís-
lensku til að geta bjargað sér við daglegar að-
stæður í skóla, vinnu og einkalífi. Hann þarf að
geta lesið og skrifað stutta texta á einföldu máli
um kunnugleg efni og tekið þátt í umræðum um
þau. Umsækjandi þarf að geta bjargað sér við
óvæntar aðstæður, skilið einfaldar samræður og
greint aðalatriði í ljósvakamiðlunum um kunn-
ugleg efni.
Þurfa að ljúka íslenskuprófi
Lög um ríkisborgararétt gera auknar kröfur til umsækjenda um ríkisborgararétt
Í SÖLUSKRÁ Stangaveiðifélags
Reykjavíkur fyrir sumarið 2009, sem
er verið að dreifa til félagsmanna,
kemur fram að í langflestum til-
vikum er verð veiðileyfa óbreytt frá
síðasta sumri. SVFR er langstærsta
veiðifélag landsins. Samkvæmt upp-
lýsingum frá félaginu munu fé-
lagsmenn og aðrir viðskiptavinir því
ekki finna fyrir vísitöluhækkunum í
samningum við veiðiréttareigendur.
Er þar fyrir að þakka framsýni og
velvilja landeigenda í garð félagsins
en í flestum tilvikum hefur náðst
sátt um verðstöðnun á milli ára. Þó
munu enn standa viðræður við land-
eigendur á örfáum svæðum, og á
einhverjum svæðum lækka veiðileyf-
in milli ára. efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðar Guðmundur Stefán Maríasson og Gylfi Gautur Pétursson, stjórn-
armenn í SVFR, við laxveiðar í Norðurá í Borgarfirði.
Sama verð á veiðileyf-
unum fyrir sumarið
Í HNOTSKURN
»Stangveiðifélag Reykja-víkur er stærsta veiðifélag
landsins. Þrjú veiðisvæði bæt-
ast við í sumar; Hörðudalsá í
Dölum og tvö urriðasvæði of-
an Laxárvirkjunar í Laxá.