Árdís - 01.01.1958, Blaðsíða 27
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
25
mjög annt um hag nemenda og lögðu sig fram að kennslan kæmi
að sem beztum notum, þó að við héldum oft, að þeirra eina ánægja
væri að hrjá nemendur með prófum og of mikilli heimavinnu.
Kennarar eru alltaf undir smásjá, betra er að hafa ekki marga
kæki eða verða ekki mismæli, því að lítið hlátursefni verður oft
stórt í kennslustund.
Nemendum má skipta í 3 stéttir, dúxa, fúxa og millistétt, sem
syndir beggja bil. Millistéttin á langrólegustu ævina, þeir eru ör-
uggir með að ná prófi á milli bekkja, þurfa engu að kvíða. Fúxarnir
eiga í sífelldri baráttu um það, hvort þeir eigi að nenna að lesa og
reyna að hafa sig upp úr bekk eða halda áfram að slóra og láta
heppni ráða. Það er óttalegt fyrir dúx að „standa á gati,“ getur
farið svo, að hann nái sér aldrei á strik aftur. Dúxinn hefur öllu að
tapa en fúxinn allt að vinna. Oft stafar þessi stéttaskipting af leti
annars vegar en samvizkusemi hins vegar. Það þarf bæði samvizkul
semi, mikinn lestur og næmi til að vera dúx. Flestir öfunda dúxana
í laumi og þykir mjög gott að hafa þá hið næsta sér í sæti, ef þeir
eru hjálpsamir, ef þeir eru það ekki, þá lifa þeir á einkuuninni
einni, án vináttu félaganna. Lesi menn aðeins fyrir einkunnir og
próf er skólinn lítils virði, en oft vill það gleymast, að við lærum
fyrir lífið en ekki fyrir skólann. Þannig skiptast á ljós og skuggar
innan skólans.
Félagslíf í Menntaskólanum er mikið. Elzti starfandi félags-
skapur, sem Menntaskólanemendur hafa með sér er Málfunda-
félagið Framtíðin. Félagið efnir oft til umræðufunda og koma nem-
endur þá saman og ræða um allt milli himins og jarðar, og æfast
nemendur í orðfimi og mælskulist. Stúlkurnar gera allt of lítið af
því að taka til máls á þessum umræðufundum, því að áreiðanlega
eru þær eins vel máli farnar og strákarnir, ef ekki betur, líklegast
er það kvenleg hæverska. Inspector scholae er fulltrúi nemenda
út á við og gagnvart rektor og kennurum. Það er virðulegasta
embætti, sem nemanda er veitt, og gegnir því nemandi úr 6. bekk.
í skólafélaginu eru allir nemendur skólans og forseti þess er
inspector scholae, ritari félagsins er kallaður scriba scholaris, hann
semur sögu skólalífsins hvern vetur. Hringjari hefur það starf að
hringja inn og út úr tímum. Bjallan er í ganginum á fyrstu hæð.
Nokkrum sinnum á vetri er gangaslagur. Strákarnir reyna að aftra
því, að hringjarinn komist að bjöllunni og gengur oft mikið á, en
allt fer fram í góðu og koma bekkjarbræður hringjarans, sem oftast