Árdís - 01.01.1958, Page 28
26
ÁRDÍ S
eru úr 5. bekk, honum til hjálpar. Alltaf enda gangaslagir með sigri
hringjarans og við missum 5—10 mínútur af kennslustund og var
það alltaf mjög vel þegið.
Skólinn heldur uppi leikstarfsemi og sýnir eitt leikrit á vetri
hverjum. Hófst hún þegar í Skálholtsskóla og var haldið áfram á
Hólavöllum, er skólinn fluttist þangað, en lagðist niður meðan
skólinn var á Bessastöðum, en var tekin upp aftur, er hann kom
til Reykjavíkur 1846- Á Herranótt skólans, en svo eru leiksýning-
arnar kallaðar, eru oftast tekin til meðferðar leikrit eftir Moliére
og Holberg. Alltaf er glatt á hjalla í gömlu Iðnó, þegar Mennta-
skólaleikirnir eru, ekki er unnt að búast við afbragðsleik, en allir
gera sitt bezta og starfsgleðin og ánægjan yfir góðum árangri setja
sannarlega svip á Menntaskólaleikina. Áður fyrr, þegar bærinn
var fámennur og skemmtanalífið fábreytt, þótti leiksýning skóla-
pilta stórviðburður í Reykjavík, og enn í dag eru þær vel sóttar
og vinsælar.
Þriðju hverja viku er dans- og skemmtikvöld og skemmta
nemendur með leik, tónlist og upplestri og síðan er dansað fram
á nótt. Stærsta skemmtun innan skólans er Jólagleðin, sem haldin
er á milli jóla og nýárs. Gangar og stofur eru klædd pappa og
kemur þá til kasta listamanna skólans að draga þar á hinar furðu-
legustu myndir, einnig eru kennslustofurnar alla vega skreyttar og
er skólinn virkilegur ævintýraheimur þetta kvöld.
Ekki má tala um Menntaskólann án þess að tala um Selið.
Selið er fyrir austan fjall rétt hjá Hveragerði. Nemendur reistu
það í sjálfboðavinnu að fyrirlagi Pálma heitins Hannessonar árið
1936. Upphaflega var tilgangurinn með byggingu þess sá, að nem-
endur færu þangað nokkrum sinnum á vetri til jarðfræði-iðkana.
Var sá háttur hafður á fyrstu árin, en síðar urðu það eingöngu
skemmtiferðir. Hver bekkur fer þangað tvisvar til þrisvar á vetri
og dvelst þar 2 daga í senn. Þar er margt gert til skemmtunar,
kvöldvökur haldnar frammi fyrir arninum í hinum vistlega sal,
farið með leikþætti, spilað á píanó og umfram allt sungið, og er þá
mikið undir því komið að fá söngelskan kennara með í ferðina,
svo að hann geti haldið uppi söng. Tveir kennarar eru alltaf með í
hverri ferð og eiga þeir að sjá um að allt fari vel og skikkanlega
fram, oftast er farið of seint í háttinn að dómi kennaranna, enda
farið að nálgast hanagal, þgear kyrrð kemst á. Stelpurnar elda
ofan í allan hópinn og geta þær því sýnt hve góð húsmóðurefni