Árdís - 01.01.1958, Page 29

Árdís - 01.01.1958, Page 29
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna 27 þær eru. Þó að grauturinn brenni við hjá okkur, þá skyggir það ekkert á gleðina, því að oftast eigum við gómsætar kökur í poka- horninu og bæta þær upp grautinn, enda hefur mamma haft hönd í bagga með bakstri þeirra. Selsferðirnar tengja nemendur föstum félagsböndum, og við þráum þær rétt eins og jóla- og páskafrí, enda lyfta þær okkur upp úr drunga hversdagsleikans. Félagslífið er ekki af skornum skammti, en ekki er ég dómbær um hvort allir nemendur hafi hagnað af því eður ei, en það er undir hverjum og einum komið hvernig hann notar þá dægradvöl, sem fyrir hendi er. Tíminn líður óðfluga og síðasti skóladagurinn er allt í einu kominn. Inspector scholae heldur hjartnæma ræðu á Sal, við viknum og syngjum Integer vitae- Síðan fer allur hópurinn syngj- andi heim til allra kennaranna til að kveðja þá. Upplestrarfríið byrjar, mikið er lesið og litið með hryllingi á allar þær bækur, sem ólesnar eru. Heldur er maður orðinn þreyttur eftir meira en mánaðarupplesararfrí, þegar prófin loksins byrja, og þá var einnig það, sem lesið var fyrst í upplestrinum gleymt og enginn tími til að lesa það aftur, fór maður þá í prófin og lét heppni ráða, en allt tekur enda og prófin einnig, og 16. júní rann upp bjartur og fagur og var það harla ánægður hópur, sem gekk niður skólastiginn að aflokinni skólauppsögn, öll með stúdentshúfu á höfði og rós í barmi, framtíðin virtist brosa við okkur og við lifðum „studentens lyckliga dag.“ Ég ætla að enda þessa grein með þeim orðum, sem Pálmi rektor kvaddi okkur með þann 16. júní 1954: „Stundið lærdóm, virðið lær- dóm, eflið lærdóm og sanna menningu með þjóð ykkar, en ofmetnizt ekki af þessu.“ „Fram til starfa, fram til þarfa, flýjum aldrei skyldu braut. Vinnum meira, verkum fleira, vinnum eins þó ströng sé þraut.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.