Árdís - 01.01.1958, Page 37
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
35
Kvenfélög
íslenzkar konur mynduðu félög sín á milli á frumbýlings-
árunum í hinum ýmsu byggðum og bæjum þar sem íslendingar
bjuggu. í hinu fyrsta hefti Árdísar birtist ritgjörð er gefur hugmynd
um hve víðtæk þau félagssambönd vestur-íslenzkra kvenna voru.
Nú munu liðin sjötíu og fimm ár síðan hið fyrsta kvenfélag var
myndað- Síðan hafa fjöldi félaga starfað á ýmsum stöðum í lengri
og skemmri tíma. Flest þeirra eiga óslitin starfsdag frá því þau
voru stofnuð fram á þennan dag.
Breyting á ýmsu starfsfyrirkomulagi okkar á meðal er nú ef
til vill fyrir dyrum. Ekki mun laust við að kvenfélögin hafi nú
fundið til kuldanæðings viðvíkjandi starfsháttum liðinna ára. Sú
stóra kirkjudeild, sem Kirkjufélagið íslenzka tilheyrir nú hefur
sína hugsjón viðvíkjandi starfsaðferðum safnaðarkvenfélaga og án
þess að fara frekar út í það mál er gott að minnast með þakklæti
hins liðna. Flest hin eldri kvenfélög hafa lagt fram stórfé til
safnaðarþarfa, til kirkjubygginga og til að klæða kirkjur að innan.
Kærleikur til málefnisins hefur verið ástæðan fyrir því hve fúslega
meðlimir hafa fórnað kröftum sínum til að vinna á þessu sviði.
Þær gerðu það sem í þeirra valdi stóð meðan Kirkjufélagið stóð eitt
og hafði ekki tilkall til neins hjálparsjóðs neinstaðar frá. Á þeim
tíma stóð hver söfnuður einnig á eigin merg og tillög frá kven-
félögunum voru vel þegin.
Sum hinna eldri félaga eru nú orðin fámenn, örfá þeirra halda
við íslenzku á fundum. Takmarkaðir kraftar eru þar til starfa.
Verið getur að þeir sem eru að erfa uppskeruna skorti virðingu fyrir
þeim sem sáðu. En þannig er það ávallt í umróti breytinganna, að
erfitt er að átta sig meðan á þeim stendur.
Það snerti viðkvæma strengi að sjá þess getið sem eðlilegs
viðburðar er ekkert væri athugavert við í Parish Messenger, að
eitt af okkar ágætu eldri kvenfélögum hefði lagt niður starf —
Kvenfélagið LÍKN í Blaine, Wash. í hinni sömu fréttagrein er
þess getið, að Blaine-söfnuður hafi sagt sig úr hinu íslenzka kirkju-