Árroði - 15.05.1933, Qupperneq 1
y s-
fl R R 0 Ð I
TÍMARITSBLAÐ 1933—1938
ÚTGEFANDI OG RITSTJÓRI: ÁSMUNDUR JÓNSSON
PRÁ LYNGUM
Innihald ritsins frá upphafi er eigi aðeins uppbyggilegt, og bráð-
nauðaynlegt íhugunarefni, fyrir mannlegar sálir í andlegum efnum,
á trúarlegu sviði, heldur er það og jafnframt skemtilegt og fræð-
andi um ýms veraldleg umhugsunarefni, að fornu og nýju, i
bundnu og óbundnu máli. — Þar eru mörg ný frumsamin ljóð,
eftir ritsjórann og fleiri — Flest af þvi, sem í ritinu birtist frá
gömlum tímum, hefur aldrei verið prentað áður, og útgefandinn
þar með forðað ýmsu merku frá glötun. — Útgefandinn flytur
og lesendum sínum fræðandi frásagnir úr lífi sjálfs sín, um ferða-
lög á sjó og landi o. m. fl. — Á r r o ð i, sem og fleiri ritverk
útgefandans, þurfa því að vera til taks á sem flestum heimilum,
enda eru þau nú seld með niðursettu verði, til léttis fyrir kaupendur.
PRENTAÐUR í PRENTSMIÐJUNNI Á BERGSTAÐASTRÆTIXIX. — RVÍK