Árroði - 15.05.1933, Qupperneq 10
6
Á R R 0 Ð I
an stað; og er mannfjöldinn, er
hjá honum var, varð þess var,
fylgdu þeir honutn eftir fótgang-
andi á landi, ásamt fleirum úr
nálægum bygðum. Og er hann
steig úr bátnum, sá hann mik-
inn mannfjölda. Og hann kendi
í brjósti um þá, því þeir voru
sem sauðir, er engan hirði hafa.
Og hann tók að kenna þeim
margt, og læknaði sjúka, er með
al þeirra voru. Og er áliðið var
dags, komu lærisveinar hans til
hans og sögðu: Staðurinn er
óbygður og liðið er á daginn,
lát þá fara burt, svo þeir geti
farið til bygða og keypt mat.
En hann svaraði og sagði við
þá: Gefið þér þeim að eta. Og
þeir segja þá við hann: Eigum
vér að fara að kaupa brauð fyrir
200 denara og gefa þeim lð eta?
En hann sagði til þeirra: Hve
mörg brauð hafið þér? Farið og
gætið að. Og er þeir höfðu at-
hugað það, sögðu þeir: Fimm
brauð og tvo fiska. Og hann
bauð þeim að láta fólkið setjast
niður á jörðina, hvert mötuneyti
fyrir sig. Og þeir settust niður
í flokkum, hundrað í sumum og
fimmtíu í sumum. Og hann tók
fimm brauðinn og fiskana tvo,
leit upp til himins, blessaði og
braut brauðin, og fékk lærisvein-
um sinurn, að þeir bæru þau
fyrir fólkið. Fiskunum skifti hann
meðal allra, og aliir neyttu og
urðu mettir. Og þeir söfnuðu
saman leifunum, samkvæmt boði
hans, og fyltu 12 karfir.
Hvað getum við lært af þessu,
kæru tilheyrendur ?
í fyrsta lagi af fólkinu, ein-
lægan viija til að hlýða á boð-
skap vors himneska fræðara, sem
hefir sagt: Leitið fyrst Guðs rík-
is og hans réttlætis, og þá mun
yður alt annað gott til leggjast.
Verið ekki iiugsjúkir og segið
ekki: Ilvað eigum vér að eta og
drekka, eða hverju eigum vér að
klæðast, því eftir því spyrja
heiðnir menn. En minn himneski
faðir veit um alt, er þér þarfn-
ist, andlega og líkamlega.
1 öðru lagi skulum vér læra
af dæmi lærisveinanna hlýðni
við Guðs og manna lög, því
hlýðni er betra en offur, og þó
eiukuin hlýðni við hann hinn al-
fullkomna höfund og fullkomn-
ara, því að framar ber að hlýða
Guði en mönnum.
En frelsarinn sagðilíka: Gjald-
ið keisaranum það, sem keisar-
ans er, og það Guði sem Guðs
er. Og látum ekki sannast á oss
þessi orð: Mitt hús er bænahús,
en þér hafið gert það að ræn-
ingjabæli.
Fetta sagði hann um hið veg-
lega guðsþjónustuhús Gyðinga,