Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2009, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2009, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 6 LesbókKVIKMYNDIR A ð lokum verð ég að nefna eina uppá- haldsjólamynd sem ekki þarf að veiða upp úr ruslinu. Það er nútíma- uppfærsla Richards Don- ners á Jóladraumi Charles Dickens, Scrooged (1988), með Bill Murray í aðal- hlutverki. Murray leikur Francis X. Cross, vellauðug- an sjónvarpsframleiðanda sem þolir ekki jólin og er að setja á svið beina út- sendingu af sígildu ævintýri Dickens á aðfangadags- kvöld. Túlkun grínistans á fýlupokanum er meinfyndin og Murray heldur myndinni á lofti frá upphafi til enda sem ógurlegi skíthællinn er uppgötvar boð- skap jólanna með dyggri aðstoð nokkurra einkar skemmtilegra jóladrauga. Saga Dic- kens er staðfærð og upp- færð í takt við tímann, en er auk þess skemmtilega blandað saman við upp- haflegu söguna, sem er ávallt til staðar á leiksvið- inu. Mögulega tengist að- dáun mín á myndinni því hversu mikið ég horfði á hana í æsku, en varla líða jólin án þess að ég skelli henni í tækið, enda virkar hún eins og jólaskaps-pilla sem kemur mér í stuð undireins. Scrooged (1988) | Richard Donner Jóladraumur í beinni Á ramót eru tími uppgjöra, tími til að horfa yfir farinn veg, greina hismið frá kjarn- anum. Þá skal skilgreina tíðarandann, pakka honum inn og eiga hann, svo það sé auðveldara að skilja tímann og muna hann. Eða þannig. Google gefur í lok hvers árs út Zeitgeist, tíð- arandann. Efnið hefur ekkert að gera með þýska rómantík eða heimspeki, nema kannski óbeint, og er alveg ótengt samsæriskenningum á YouTube. Á Zeitgeist er safnað saman helstu leitarorðum sem slegin hafa verið inn í Google og breytingum á þeim á árinu, í stuttu máli til að sýna hvað við höfum eiginlega verið að hugsa. Til að meta tíðarandann er ekki endilega not- ast við vinsælustu niðurstöðurnar heldur þær sem unnu mest á eða hröpuðu mest. Google hef- ur árlega gefið út þessar upplýsingar frá árinu 2001, þegar leitarorðin Nostradamus, CNN, World Trade Center, Harry Potter og Anthrax unnu mest á. En hvað um árið 2008? Á heimsvísu á Sarah Palin vinninginn, en Barack Obama í Banda- ríkjunum, og þegar litið er yfir listann sést að þótt fjórði ársfjórðungur hafi verið ansi eins- leitur hvað fréttir varðar þá hugsuðum við um ansi margt, Facebook, iPhone, YouTube og Peking 2008 eru ofarlega í hugum fólks svo eitt- hvað sé nefnt og pólska tengslanetið Nasza Klasa. Pólverjar á faraldsfæti virðast með ei- dæmum frændræknir, því sú síða var mikið gúgluð um allan heim í ár. Í maí og júní þegar verð á eldsneyti náði met- hæðum jókst áhugi á sólarrafhlöðum og tvinn- bílum gríðarlega, en hvarf nánast með haustinu þegar verðið hrundi. Vinsælustu kokteilarnir? Þeir byrja allir á m- í ár, Martini, Mojito, Margarita og Manhattan (í réttri röð). Heath Ledger vann leiksigur ársins í hlutverki Jókers- ins, og lést í þokkabót, svo það þarf engum að koma á óvart að hann var áberandi í leitarnið- urstöðum ársins. Þegar litast er um í heiminum má líka sjá að við erum frekar upptekin af sjálf- um okkur. Argentína er í þriðja sæti yfir vin- sælustu leitir í Argentínu, Sydney í öðru sæti í Ástralíu, Danmörk í fimmta sæti í Danmörku, einu sæti ofar en orðið „gratis“. Alls staðar eru leikir, myndbönd og ýmis af- þreying efst á listum, og leiðindi á borð við kreppu, atvinnuleysi, fjármálastofnanir og fréttir yfirleitt sjást varla á listunum. En þetta er svo sem hægt að segja sér sjálf- ur. Þegar öllu er á botninn hvolft viljum við öll helst hanga á Facebook, drekka Mojito, lesa um látnar kvikmyndastjörnur og veltum því svo fyrir okkur hvað aðrir séu að skrifa um okkur. Og okkur er meira að segja ekki alls varnað því þegar skoðaðar eru leitir sem hefjast á orð- unum „hvað er …“, þá tróna þar efst spurning- arnar „hvað er ást“ og „hvað er líf“. Við höfum þá alla vega meiri áhuga á ástinni og lífinu en forritunarmálinu java, sem er í þriðja sæti. En hvað um Ísland? Íslendingar hljóta að eiga met, miðað við höfðatölu, í áhuga á sjálfum sér og hvað öðrum finnst um þá. Í Zeitgeist fyr- ir árið 2008 er hvergi minnst á Ísland, en hins vegar má skoða hinar ýmsu leitir í tækinu Go- ogle Trends (þið finnið það með því að gúgla það). Í Google Trends sannast það að Ísland er ekki mjög ofarlega í huga heimsbyggðarinnar, kannski má miða það við þekkta popp- hljómsveit. Eða ekki, þegar hljómsveitin Coldplay og Ísland eru skoðuð saman, má sjá eftirfarandi: ef Coldplay fær stuðulinn 1, fær Ís- land stuðulinn 0,38, við erum semsagt ekki hálf- drættingur á við Coldplay, og dæmið snar- versnar ef tekið er tillit til höfðatölu. Okkar tilkall til frægðarinnar á árinu hins vegar eru fáeinir dagar í október, en þá skutumst við örs- nöggt ofar hljómsveitinni geðþekku. Við getum samt hughreyst okkur með því að það er enginn í raun og veru að velta sér upp úr okkar vandræðum, okkur líður bara þannig. Ef leitarorðin „handball“ og „Icesave“ eru borin saman á heimsvísu fær handboltinn stuðulinn 1, en Icesave 0,14. Við þurfum semsagt ekki að hafa miklar áhyggjur, ekki síst miðað við þá staðreynd að handboltinn sjálfur er vel varð- veitt leyndarmál sem fáir vita af nema við sjálf. gisliar@gmail.com Sundurliðaður tíðarandi Fortíðardraugar framtíðarinnar eru á lista hjá Google NETIÐ GÍSLI ÁRNASON COLDPLAY OG ÍSLAND JAFN VINSÆL Á GOOGLE ÞAR TIL HLJÓMSVEITIN GAF ÚT PLÖTUNA „VIVA LA VIDA“. A nnar hornsteinn slæmrar kvikmynda- gerðar á jólum er hin sígilda Santa Claus Conquers the Martians (1964), vísindaskáld- söguleg fjölskyldumynd um Marsbúa sem ræna jólasveininum svo hann geti framleitt leikföng og vakið gleði marsneskra barna. Að sjálfsögðu fer allt á versta veg og með hjálp hressra Jarð- arkrakka, sem hefur líka verið rænt, tekst þeim að sleppa aftur heim, en ekki án þess að koma fyrir arf- taka sveinka á rauðu plán- etunni. Myndin er gjarnan á topplistum yfir verstu myndir allra tíma og féll fljótt í gleymskunnar dá, en hlaut auknar vinsældir þegar hún var tekin fyrir og gerð að athlægi í sjón- varpsþáttunum Mystery Science Theatre 3000 snemma á tíunda áratugn- um. Síðan þá hefur költ- gildið aukist með hverri jólahátíð og ekki spillir fyrir að myndin er fallin úr höfundarrétti og því auð- finnanleg á vefnum fyrir áhugasama. Santa Claus Conquers the Martians (1964) | Webster Jóli gerist Marsbúi H inn alræmdi Star Wars-jólaþáttur (The Star Wars Holiday Special) frá 1978 er löngu orðinn goð- sagnakenndur, jafnt meðal aðdá- enda kvikmyndaseríunnar sem allra unnenda lélegs sjónvarps- efnis. Þátturinn, sem er í fullri kvikmynda- lengd (að auglýsingahléum meðtöldum), hefur verið kallaður „verstu tveir tímar sjónvarps- sögunnar“ af gagnrýnendum og trónar hátt á listum yfir fáránlegustu augnablik bandarískr- ar sjónvarpssögu, svo nokkuð sé nefnt af hroðalegum orðstír verksins. Það er ekki að ástæðulausu að þátturinn hefur ekki litið dags- ins ljós síðan honum var sjónvarpað á sínum tíma. Aldrei var hann endursýndur vestra, né heldur gefinn út fyrir heimamarkað, hvorki á VHS né DVD. Þrátt fyrir endalausar tilraunir Lucasfilm til að græða á öllu Stjörnustríðs- tengdu hefur jólaþátturinn verið látinn gjör- samlega í friði, ekki vegna þess að fyrirtækið búist ekki við að græða á honum – þvert á móti myndi DVD-útgáfa hiklaust rokseljast, ein- faldlega vegna skemmtana- og költ-gildis – heldur vegna þess að George Lucas hefur full- komlega afneitað verkinu. Í raun kom Lucas lítið sem ekkert að sjálfri framleiðslunni og sá fljótlega eftir því. Síðan þá hefur hann látið eftir sér að hann vildi helst óska þess að geta ferðast um heiminn og brotið hvert einasta eintak með sleggju. Það eru því miður eintóm- ir draumórar, því þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir Lucasar til að koma jólaþættinum fyrir kattarnef þá lifir hann góðu lífi og ferðast manna á milli á veraldarvefnum, þar sem eng- ar sleggjur geta náð til hans. Í örstuttu máli segir jólaþátturinn frá því þegar Han Solo gerir sitt besta til að koma Chewbacca heim til fjölskyldunnar sinnar á Wookie-plánetunni í tæka tíð fyrir „Life Day“- hátíðarhöldin (sem eru e.k. jól Stjörnu- stríðsbúa). Þeir lenda í alls kyns vandræðum á leiðinni, en þráðurinn er síðan brotinn upp á furðulegan hátt með dans-, grín- og söng- atriðum frá „gestastjörnum“. Samsullið dreg- ur að fleiri persónur úr fyrstu myndinni, en bæði Luke og Leia koma fram í þættinum, að ónefndum sjálfum Svarthöfða og vélmenn- unum R2-D2 OG C-3PO. Þátturinn ruglar fram og aftur í ólíkar áttir og markleysan nær hámarki í hræðilegri lokasenu þar sem Leia prinsessa syngur titillag Johns Williams í jóla- sálmsformi. Væmnin er sykursæt og yfirgnæf- andi og á köflum er nánast óbærilegt að kom- ast í gegnum allan þáttinn, en í réttum félagsskap getur áhorfið verið stórskemmti- legt. Ég hef sjaldan hlegið jafnmikið og þegar ég sá upphaf þáttarins í jólaboði fyrir tveimur árum. Þar fylgjumst við með fjölskyldu Chew- bacca þar sem þau bíða komu fjölskylduföð- urins heima í kotinu. Þau ræða saman á Woo- kie-tungumáli með ópum og ýlfrum, án þýðingartexta, í hátt í tíu mínútur og atriðið er eitt það furðulegasta sem ég hef nokkurn tím- ann séð. Óbærileg sjálfspíning, en jafnframt svo yfirgengilega ýkt að það er varla annað hægt en að skella upp úr. Eftir því sem líður á þáttinn verður þrautagangan sífellt erfiðari og ég tek hattinn ofan fyrir hverjum þeim sem endist alveg að leiðarenda. Að áhorfi loknu er áhorfandinn reynslunni ríkari, vitandi að ákveðinn áfangi hefur verið kláraður, því botn- inum hefur verið náð og mikið þarf til að slá út þennan hrylling. gunnaregg@gmail.com The Star Wars Holiday Special (1978) | Steve Binder Fyrir unnendur lélegs sjónvarpsefnis Leia prinsessa og C-3PO í jólaþætti Star Wars. Léleg upplausn stillunnar er einfaldlega vegna þess að einu eintökin sem hafa lifað eru myndbandsupptökur frá 1978, margfjölfaldaðar. MYNDIR VIKUNNAR GUNNAR THEODÓR EGGERTSSON Jólastjörnustríð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.