Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2009, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2009, Side 4
Eftir Unu Þorleifsdóttur una@lhi.is S jaldan eða aldrei hefur ungt leik- skáld vakið jafn mikla athygli, bæði innan menningarumræð- unnar sem og í fjölmiðlum al- mennt, og Sarah Kane gerði með frumraun sinni Rústað. Verkið var frumsýnt 12. janúar 1995 í Royal Court Upstairs-leikhúsinu, og varð það samstundis eitt umtalaðasta sviðsverk síðari ára. Rústað hlaut einhverja þá árásargjörnustu gagnrýni sem sést hafði í breskum fjölmiðlum í áratugi. Fyrirsagnir líkt og sú sem leikhúsgagnrýn- andi Daily Mail, Jack Tinker, sló fram, „This Disgusting Feast of Filth“, tröllriðu um- ræðunni og æsifengin notkun lýsingarorða var ráðandi í skrifum allflestra annarra um verkið. Vinsælust innan umræðunnar voru orð líkt og niðurdrepandi, óhugnanlegt, við- bjóðslegt, andstyggilegt og niðurlægjandi, og hlaut verkið stimpla á borð við ‘lostafull brjál- æðisfantasía’, ‘hreinn hrottaskapur’ og ‘hrátt og illa unnið niðurrif’. Innan nokkurra daga varð ljóst að verkið var á góðri leið með að verða eitt alræmdasta verk áratugarins, ef ekki aldarinnar. Frumsýningunni á leikritinu Rústað hefur einnig verið gefinn sá heiður að marka ákveð- in skil í breskri leikritun, að það hafi slegið tóninn fyrir það sem í vændum var hjá/frá nýrri kynslóð enskra leikskálda. Þessi nýi tónn var það sem síðar hefur verið nefnt „In- Yer-Face“-leikhúsið, eða beint-í-andlitið-á- þér/blaut-tuska-í-andlitið-leikhúsið. Hér á eft- ir mun ég reifa einkenni þessa nýja forms og í því samhengi ræða verk Kane, Rústað. In-Yer-Face-leikhús Ákveðin hreyfing virtist vera að myndast inn- an leikritunar á Englandi um miðjan tíunda áratuginn. Fram í sviðsljósið stigu höfundar á borð við Antony Neilson, Mark Ravenhill, Martin McDonagh og Söruh Kane sem allir virtust eiga það sameiginlegt að vilja brjóta raunsæislegar tilhneigingar leikhússins. Í skrifum þessara höfunda birtist uppsöfnuð reiði kynslóðar sem ólst upp í skugga Thatc- her á tímum þar sem ofbeldið töllreið flestum miðlum; t.d. fréttamyndir frá borgarastyrj- öldinni á Balkanskaga og kvikmyndir á borð við Trainspotting og Natural Born Killers. Þessi hreyfing hefur síðar verið nefnd In- Yer-Face-leikhúsið og má finna ítarlegri um- fjöllun um hana í bók Aleks Sierz, In-Yer- Face Theatre – British Drama Today. Hugtakið in-yer-face gefur til kynna að áhorfandinn sé neyddur til að sjá eitthvað í návígi, að innrás sé gerð í persónulegt rými hans. Það gefur til kynna að dansað sé á mörkunum. In-yer-face er því eitthvað sem er blygðunarlaust árásargjarnt og ögrandi, eitt- hvað sem ómögulegt er að hunsa eða forðast. Víðasta skilgreiningin á in-yer-face-leikhúsi, samkvæmt Sierz, nær til allra leikrita sem taka áhorfendur sína hálstaki og hrista þá þangað til boðskapurinn hefur komist til skila. Þetta er leikhús skynjunar og hugar- æsings, leikhús sem vekur ótta og trekkir upp taugar, leikhús sem hristir bæði áhorf- endur sína og leikara út úr hefðbundnum við- brögðum. Árásir (shock tactics) eru oftar en ekki verkfæri höfundar í þessu samhengi. Ennfremur eru þessi leikrit átakanleg vegna nýrrar formgerðar eða samsetningar, eða vegna þess að þau eru djarfari eða tilrauna- kenndari en áhorfendur eru vanir. Verk þessi vekja spurningar um siðferðisvenjur, nefna það sem er forboðið, brjóta niður tabú, skapa óþægindi og sýna frumstæðar tilfinningar. Í raun eru þau ávallt í andstöðu og/eða samtali við ráðandi hugmyndir um það sem hægt er eða ætti að sýna og setja á svið. Ólíkt því leik- húsi sem leyfir áhorfandanum að halla sér aftur og hugleiða hlutlaust það sem fyrir augu ber fer gott in-yer-face-leikhús með áhorfandann í tilfinningalegan rússíbana, smýgur undir húð hans. Það er byggt á upp- lifunum, ekki íhugun. En Sierz telur að það sem sköpum skiptir hér sé að leikritin og höf- undar þeirra segja okkur meira um það hver við raunverulega erum – sem samfélag og einstaklingar. Áhorfendur á slíku leikriti, slíkri sýningu, þar sem gjörðir af þessari stærðargráðu eiga sér stað, færast úr hlut- verki hins fjarlæga, allsráðandi áhorfanda yf- ir í hlutverk vitnis eða þess sem er samsekur. Áhorfandinn verður þátttakandi í framvindu og ofbeldi verksins, meðsekur í þeim heimi sem skapaður er. En voru þessi leikskáld einungis að skrifa verk sín til þess að hrista upp í áhorfendum, ‘sjokkera’ þá? Eru aðferðirnar innantómt hjóm eða býr eitthvað meira að baki? Í verk- um höfunda á borð við Kane, Ravenhill og Neilson, sem öll mætti flokka sem höfunda sem fara slíkar leiðir í skrifum sínum, má finna tilraunir til að takast á við óhugnanleg viðfangsefni, tilraunir til að rannsaka erfiðar tilfinningar, og er ‘sjokk’, eða það að hneyksla, ein leið til að vekja áhorfendur til umhugsunar. Eru þau öll með verkum sínum að reyna að ýta á mörk þess sem er ásætt- anlegt og viðeigandi, vegna þess að þau vilja setja spurningarmerki við ríkjandi hug- myndir um það sem er venjulegt, við það hvað það merkir að vera mannlegur, hvað er eðlilegt og hvað er raunverulegt, satt. Þar af leiðandi er notkun á ‘sjokki’ eða hneykslan hluti af leit höfundarins að dýpri merkingu, liður í enduruppgötvun leikrænna möguleika, og tilraun til að sjá hversu langt er hægt að ganga. En flestallt in-yer-face- leikhús eða -leikrit ögra þeim skilgreiningum sem við notum til að útskýra hver við erum, eða tvenndarhyggjunni, á einhvern hátt: mað- ur/dýr, gott/illt, hreint/skítugt, heilbrigt/ óheilbrigt, satt/óstatt, og svo framvegis. Hvernig getur leikhús verið svona ‘sjokk- erandi’ eða hneykslanlegt? Meginástæða þess er sú að það er list augnabliksins, hið lifandi andartak, sú stund þegar áhorfendur og leik- arar mætast. Það á sér stað í rauntíma, í sama rými og áhorfandinn – einungis örfáa metra í burtu. En allar þær gjörðir sem fram- kvæmdar eru í slíku návígi geta búið yfir eig- inleikum náinna tengsla eða sambands. Svið- setning persónulegra og innilegra aðstæðna opinberlega veldur sterkum tilfinningalegum viðbrögðum og upplifun á þeim getur verið óþægilegri en sama upplifun í lífinu sjálfu. Svívirðingar og siðleysi Leikritið Rústað eftir Söruh Kane vakti sterk við- brögð er það var frumsýnt í Bretlandi árið 1995. Umfjöllunarefnið er ofbeldi og verkið sjálft fremur einhvers konar ofbeldi gegn áhorfendum, ryðst inn í einkarými þeirra með óvenjulega ágengum hætti. Verkið þótti marka skil í breskri leikritun. Það verð- ur frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudaginn. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2009 4 LesbókLEIKLIST S arah Kane fæddist 1971 og ólst upp í Kelvedon Hatch, nærri Brentwood í Es- sex á Englandi. Móðir hennar var kenn- ari og faðir hennar blaðamaður á Daliy Mirror. Fjölskyldan var trúrækin og evangelísk og lit- aði það mjög uppeldi hennar. Þótt Kane hafi síðar sagt skilið við trúna sem slíka má sjá áhrif þessa í verkum hennar, bæði í beinum tilvísunum í Bíblíuna og með notkun Kane á minnum úr henni, til dæmis úr dæmisögunni um Kain og Abel í verkinu Þrá. Sem unglingur samdi hún smásögur og ljóð, en það var ekki fyrr en hún var við nám við Háskólann í Bristol að hún hóf að skrifa fyrir leiksvið. Þar samdi hún þrjá tuttugu mínútna einleiki; Gam- ansama einleikinn, Svelti og Það sem hún sagði. En fyrsta leikverk hennar í fullri lengd var Rústað og hóf hún að skrifa það þegar hún var í mastersnámi í leikritun við Háskólann í Birmingham. Að námi loknu starfaði Kane sem hirðskáld við Paines Plough, leikhóp sem hefur það að markmiði að koma nýjum leik- ritum á framfæri, og sem dramatúrg við Bush- leikhúsið í London. Kane hefur oft verið kölluð niðurdrepandi og hneykslandi ‘sjokk’-leikskáld en við upphaf ferils hennar einblíndu gagnrýnendur oft um of á viðbjóðinn í leikverkunum á kostnað um- ræðna um formtilraunir og efnistök. Verk hennar; Rústað (1995), Ást Fedru (1996), Hreinsun (1998), Þrá (1998) og 4,48 geð- truflun (2000), taka öll á einn eða annan hátt á sársauka, frelsandi ástum, kynferðislegum fýsnum, löskuðum sjálfum, andlegum og lík- amlegum misþyrmingum og dauða. Einkenn- andi fyrir skrif hennar eru ennfremur tilraunir með form, ljóðrænt og niðurskorið tungumál, og, sérstaklega í fyrstu verkum hennar, notk- un á öfgakenndum og ofbeldisfullum sviðs- gjörðum. Hún taldi sjálf til sinna áhrifavalda, ásamt öðrum, Harold Pinter, Samuel Beckett, jakobínska harmleiki, Edward Bond, Jeremy Weller og expressjónískt leikhús. Sarah Kane lést langt fyrir aldur fram, að- eins 28 ára að aldri, eftir mikla og stranga baráttu við harkalegt þunglyndi, en hún féll fyrir eigin hendi hinn 20. febrúar 1999. Leikskáldið Kane Ljósmyndari: Simon Kane Sarah Kane Hefur oft verið kölluð niðurdrep- andi og hneykslandi ‘sjokk’-leikskáld.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.