Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2009, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2009, Síða 16
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is H vernig á maður að bera sig að þegar fjallað er um list manna sem ganga klárlega ekki heilir til skógar? Á að gefa þeim ein- hvern afslátt, horfa í gegnum fingur sér þegar þeir hitta ekki á réttu nóturnar? Þetta er um margt snúið. Listsköpun þessa hóps hefur verið kölluð næf list (naïve art) og/eða utangarðslist (art brut, outsider art). Hængurinn er að þú þarft ekki endi- lega að hafa vottorð upp á geðveiki til að falla í þennan flokk, það nægir að vera sæmilega kynlegur kvistur og sveigja hressi- lega frá viðteknum gildum, viðmiðum og reglum í kringum það sem telst hæfa í menningar- og listheimum. Á sínum tíma kallaði ég þennan geira, ef geira má kalla, hamfarapopp, eftir plötu Gunnars Jökuls heitins. Hann, og fleiri hérlendir einyrkjar, búa þannig til tónlist sem getur verið af- káraleg, fyndin og tilfinningarík – stundum stórfurðuleg. En það sem heillar er að hún er gerð af 100% einlægni, án meðvitundar um „kröfur“ bransans og vonar um gróða og vinsældir. Í sumum tilfellum stendur eftir list, svo hrein, tær og einlæg, að ómögulegt er annað en hrífast með. „Költ-fígúra“ Víst er að orðspor Johnstons byggist ekki á meðaumkun eða fyrirgreiðslu. Tónlist hans, sem hann hefur dælt út síðan 1980 í umtals- verðu magni og mest á kassettum, hefur ein- faldlega heillað fólk sökum einlægrar tján- ingar og fallegra, þekkilegra melódía. Sum lögin slúta hálfpartinn yfir vögguvísusvæð- inu og lagatitlar eins og „I Am A Baby (In My Universe)“, „Since I Lost My Tooth“ og „Don’t Be Scared“ bera viðkvæmnislegum, barnslegum huga vitni. Johnston varð að því sem kallað er „költ-fígúra“ um miðjan ní- unda áratuginn, í bullandi maníu náði hann að heilla hálfa Ameríku (eða a.m.k. neð- anjarðarþenkjandi, tónlistarpælandi hluta hennar) upp úr skónum og átti MTV- tónlistarstöðin ekki lítinn þátt í því. Stöðin sendi þá frá Woodshock-tónlistarhátíðinni í Austin en Daniel bjó og starfaði í þeim mikla tónlistarbæ um það leyti. Johnston tróð sér alls staðar inn á mynd og veifaði kassettunum sínum brosandi og varð hvers manns hugljúfi. Neðanjarðarrokkstjörnur eins og Sonic Youth, Yo-La Tengo og Kurt Cobain áttu eftir að taka Johnston upp á arma sína og tryggðu honum þar með ákveðið brautargengi í músíkkreðsum sem náði hámarki er risaútgáfufyrirtæki samdi við Johnston og gaf út plötu með honum. Coca Cola Greinarhöfundur hitti Johnston að máli eftir tónleika á Hróarskelduhátíðinni árið 2003. Viðtalið var sett upp í gegnum opinbera vef- síðu Johnstons, www.hihowareyou.com, og hafði bróðir hans, Dick, milligöngu þar um. Auðséð var að bróðirinn passaði vel upp á litla bróður sinn. Ég settist niður með Jo- hnston rétt fyrir gigg og viðurkenni að mér brá nokkuð í fyrstu. Johnston var orðinn sæmilega úr lagi genginn og hár, næstum því barnslegur talandinn staðfesting á því að ekki væri allt með felldu. Hann ræddi á ein- lægan hátt um ferilinn og hvatann að list- sköpun sinni og bauð kurteislega upp á Coca Cola. Þegar að tónleikum var komið var tjaldið smekkfullt af fólki sem hlustaði í andakt á hvert og eitt einasta lag. Johnston vafði fólki létt og löðurmannlega um fingurinn, al- gjörlega ómeðvitaður um áhrifin sem hann hafði. Giftum okkur! Fyrir þremur árum kom heimildarmyndin The Devil and Mr. Johnston út sem fjallar um ævi Johnstons og vakti hún mikla at- hygli. Myndin er firnavel gerð, allt hand- bragð einkennist af miklu næmi og sannri ástríðu fyrir viðfangsefninu. Óhefðbundnar leiðir eru nýttar til að koma sögunni sem best á framfæri og myndin nær að komast afar nálægt kviku þess sem fjallað er um, nokkuð sem svo margar myndir af svipuðum toga flaska á. Það er ótrúlegt að fylgjast með þróun og þroska Johnstons. Í æsku og á unglings- árum var sköpunargleðin hamslaus; hann teiknaði, bjó til bíómyndir og samdi lög á gítar og píanó allan liðlangan daginn, alla daga. Um tvítugt fór ýmislegt að bresta og eitt af fyrstu dæmunum er þegar hann fær þrá- hyggju fyrir stúlku sem heitir Laurie. Öll ástarlög hans upp frá því fjalla um þessa stúlku sem hann sá í eitt augnablik á ung- lingsárum. Í aukaefni með myndinni er fylgst með því þegar Johnston hittir Laurie áratugum síðar. „Giftum okkur!“ segir hann við hana, með einlægum, glaðhlakkalegum rómi. Stuttu eftir Woodshock fór Johnston að fikta við LSD og viðkvæm sálin fékk á sig stórt högg. Hann fékk djöfulinn á heilann og var settur á stofnun. Hann hefur verið inn og út af stofnunum eftir það og átti til að taka voveifleg köst. Hin síðustu ár hefur líð- an hans þó verið nokkuð stöðug. Daniel var alinn upp hjá íhaldssamri, strangkristinni fjölskyldu í Texas. Eitt af því sem liggur undir í myndinni, en kemur aldr- ei skýrt fram, er að uppeldið og viss of- verndun hafi líkast til verið eitt af því sem spilaði inn í geggjunina. Johnston var hálf- gert örverpi, sá eini af systkinunum sem sýndi listræna takta og í raun einangraður, bæði í fjölskyldunni og í samfélaginu í kring. Tíminn líður Daniel býr í dag hjá foreldrum sínum í Tex- as sem annast hann af mikilli umhyggju- semi. Viðtölin við þau í gegnum myndina eru áhrifarík. „Við höfum annast eins vel og við getum og um daginn sagði hann við mig að hann vissi ekki hvernig hann færi að ef okkar nyti ekki við,“ segir faðir hans í bláendann með brostinni röddu. „En við erum mjög áhyggjufull þar sem tíminn er að renna út hjá okkur …“ Bréf til Láru Einlægni Þrátt fyrir geðveilu hefur Daniel Johnston heillað fjölda fólks um heim allan með tónlist sinni. Þrátt fyrir daglegar orr- ustur við geðhvarfasýki er bandaríski tónlistar- og myndlistarmaðurinn Daniel Johnston dáður af fjölda fólks, lærðum jafnt sem leikum. Ástæðan er einföld: sköpun hans er hrein og tær, laus við allt stærilæti og prjál. List hans kemur hindr- unarlaust frá hjartanu og er raunverulega það eina sem hefur haldið honum hérna megin grafar í gegnum róstu- sama ævi. En það sem heillar er að hún er gerð af 100% ein- lægni, án meðvitundar um „kröfur“ bransans og vonar um gróða og vin- sældir. Í sumum tilfellum stendur eftir list, svo hrein, tær og einlæg, að ómögulegt er annað en hrífast með. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2009 16 LesbókTÓNLIST Þ að var í september 1992 sem Kurt Cobain, leiðtogi Nirvana og umtal- aðasta rokkstjarna heims á þeim tíma, mætti á MTV-verðlaunin í hvítum T- bol. Á honum var umslagið á kassettu Johnstons, Hi, How Are You frá 1983. Kassettan er nafntogaðasta afurð Johnstons en hann fékk taugaáfall þegar hann var hálfnaður að vinna hana. Cobain, sem var eins og gruggstjörnur þessa tíma mátu- lega afskiptur hvað hreinlæti varð- ar, kom fram í bolnum í margar vikur á eftir og til er fjöldi ljósmynda af honum í honum. Áhrifin létu ekki á sér standa og nú vildu allir vita hver þessi Daniel Johnston væri sem Cobain hélt greinilega svona mikið upp á. Aðdá- endur Nirvana hófu að grafa upp illfáan- legar kassettur Jo- hnstons en það sem meira var, hákarl- arnir hjá stóru út- gáfufyrirtækjunum fóru einnig af stað. Eftir að Nirvana breytti tónlistarsögunni með Nevermind og sveigði jaðartónlistina inn í meginstraum- inn hlupu jakkalakkarnir um eins og haus- lausar hænur í leit að næstu Nirvana og ótrúlegustu neðanjarðarsveitir fengu milljónasamninga, svona til „örygg- is“. Í fyrstu var það Elektra sem bar víurnar í Johnston en hann harðneitaði að gera samning við það fyrirtæki þar sem Metallica var einnig á mála hjá því. Jo- hnston var sannfærður um að sú sveit væri handbendi djöfulsins. Það var síðan Atlantic sem hreppti hnossið en samningaferlið átti sér stað á geðsjúkrahúsi þar sem Johnston dvaldi. Fyrsta og síðasta plata Johnstons fyrir útgáfu- risa kom svo út árið 1994 og kallast Fun. Hún seldist í nokkur þúsund eintökum og Johnston var „dropp- að“ tveimur árum síð- ar. Máttur T-bolsins Frægðin bankar Áhrifamikið Kurt Cobain og bolurinn góði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.