Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Qupperneq 12

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 12 LesbókGAGNRÝNI LEIKLIST Rústað, Sarah Kane Borgarleikhúsið „Leikararnir standa sig með prýði í þessu erfiða verki sem hlýtur að reyna á þá sem listamenn og manneskjur. Túlkun þeirra á þessum brotnu og ónýtu manneskjum var mjög góð og er á engan hallað þótt hér sé tekið fram að Ingvar sýnir enn og aftur að hann er einn af okk- ar allra mögnuðustu leikurum. Leikmynd Barkar Jónssonar var fagmannlega unnin og vel út- hugsuð. Lýsing og hljóð þjónuðu verkinu vel. Tónlistin, nokkrir píanóhljómar, undirstrikaði einmanaleika persónanna. Rústað er vel unnin og mögnuð sýning þar sem áhorfandinn er skilinn eftir í rúst.“ Ingibjörg Þórisdóttir Fólkið í blokkinni, Borgarleikhúsið „[Þ]að er skemmtilegur leikur í leiknum, húmor auðvitað, persónurnar beint úr íslenskum veru- leika og boðskapur alters ego höfundarins, hans Óla, bræðir að lokum harðsvíruðustu hjörtu, sviptir ógninni af alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr höfðinu að minnsta kosti nokkur andartök og fær mann til að trúa að í blokk í Hólahverfinu þar sem raunveruleg samhygð ríkir, menn syngja saman og beita töfrabrögðum, kunni okkur öllum að verða bjargað með kærleikanum einum saman.“ María Kristjánsdóttir Sumarljós Þjóðleikhúsið (síðasta sýning) „Í sviðsetningunni er aðaláherslan á drauga- gang og girnd, spaug; kvennærbuxur, gegnsæir kjólar, berrassaðir kallar, menn sem pissa á sig (og pissa á aðra – ekki frá Jóni Kalman heldur úr sjávarplássi „Steinars í djúpinu“). Og svo þessi hefðbundna kóreógrafía sýninga á stóra sviðinu, einn léttur hópdans – hreyfing hér og þar.“ María Kristjánsdóttir KVIKMYNDIIR The Reader bbbmn „Sviðsmyndirnar og bún- ingarnir líta óaðfinn- anlega út, Lesarinn spannar nokkra áratugi á ofanverðri síðustu öld, frá grámyglu Þýskalands eft- irstríðsáranna til Þýska- lands samtímans eftir efnahagsundrið. Kvikmyndatakan er í færum höndum tveggja af virtustu tökustjórum sam- tímans, Rogers Deakins og Chris Menges, um- búðirnar eru sterkari en brothætt innihaldið.“ Sæbjörn Valdimarsson Doubt bbbbn Shanley leikstýrir handriti sem hann gerði eftir eigin leikriti sem vann til verðlauna á sínum tíma, en höfundurinn er sjálfsagt þekktastur fyr- ir krassandi handrit Moonstruck, eina eftir- minnilegustu mynd 9. áratugarins, ekki síst fyrir litríkar persónur (sem voru að auki frábærlega vel leiknar), og leiftrandi smáatriði í textanum („… la Luna …“). Sömu kostir eru meginstyrkur Doubt. Sæbjörn Valdimarsson MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur Ásmundur Ásmundsson – Steypan bbbbn Sýningu lýkur 8. mars „Verk Ásmundar hafa ætíð samfélagslega skír- skotun og er auðvelt að sjá skúlptúrinn sem enn einn steypuminnisvarðann eins og þá sem standa óhreyfðir eftir efnahagshrunið. Ásmund- ur ýjaði reyndar að þessari tengingu með kóm- ískri hógværð í ræðu sem hann hélt við opnun og hangir nú á vegg til aflestrar. Er óhætt að mæla með þessari æðislega vondu sýningu fyrir alla sem elska og hata íslenska samtímalist.“ Jón B.K. Ransu 101 Projects Davíð Örn Halldórsson – Væmin natúr og dreki. Sýningu lýkur á morgun „Myndirnar eru nosturslega unnar, af listfengi og hugmyndaríki. Listamaðurinn notar ýmsan efnivið sem á vegi hans verður og má því segja að útlit verkanna ráðist að einhverju leyti af til- viljun. Anna Jóa Í GANGI U m Ísalönd aukast nú vandræðin … Þessi titill á þjóðlagi á hádeg- istónleikum í Norræna húsinu á mánudaginn vakti kátínu tónleika- gesta. Skiljanlega. Ólíkt því sem nú á sér stað í þjóðfélaginu var ekki mikill vand- ræðagangur í flutningi þjóðlagsins. Þvert á móti var ánægjulegt að hlýða á hann. Pí- anóleikararnir Snorri S. Birgisson og Anna Guðný Guðmundsdóttir spiluðu lagið fjór- hent og þrjú önnur að auki, öll ættuð úr Norður-Múlasýslu. Um var að ræða frum- flutning á glænýjum útsetningum Snorra. Þetta eru einstaklega fallegar tónsmíðar sem einkennast af framandi, nánast mun- úðarfullum hljómum. Á tónleikunum voru þeir listilega útfærðir af píanóleikurunum. Svipaða sögu er að segja um frábært ör- verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Hermetique. Það samanstóð af hvikulum nótnahend- ingum og brotnum hljómum sem mynduðu heillandi tónavef. Anna Guðný spilaði það afar vel, leikur hennar var skýr og örugg- ur, auk þess sem viðkvæm, skáldleg blæ- brigði voru mótuð af kostgæfni. Haukur Tómasson átti líka skemmtilegt verk í einskonar „ambient“ stíl sem ég hef áður fjallað um, Glacial Pace. Snorri spilaði það og gerði af réttu mýktinni; útkoman var samfelldur unaður. Loks léku þau Anna Guðný og Snorri glitrandi fagrar útsetningar Györgys Kur- tágs á tveimur stykkjum eftir Frescobaldi, einu eftir Purcell og öðru eftir Bach. Það var sérlega ljúft áheyrnar. Flutningurinn á því síðastnefnda, Gottes Zeit ist die all- erbeste Zeit, úr einni af fyrstu kantötum tónskáldsins, var svo hástemmdur og fullur af andakt að tónlistin virtist ekki vera af þessum heimi. Maður gat ekki ímyndað sér betri endi á tónleikum. Vandræði á Ísalöndum TÓNLIST JÓNAS SEN Þetta eru einstaklega fal- legar tónsmíðar sem ein- kennast af framandi, nán- ast munúðarfullum hljómum. Á tónleikunum voru þeir listilega útfærð- ir af píanóleikurunum. NORRÆNA HÚSIÐ | Myrkir músíkdagar – pí- anótónleikar Verk eftir Snorra Sigfús Birgisson, Þuríði Jónsdóttur, Hauk Tómasson, Frescobaldi, Purcell og Bach. Flytjendur: Snorri Sigfús Birg- isson og Anna Guðný Guðmundsdóttir. Mánudagur 9. febrúar. bbbbm Morgunblaðið/Sverrir Allt í öllu Snorri Sigfús Birgisson frumflutti glænýja út- setningu eftir sjálfan sig. P étur Már Gunnarsson er ellefti lista- maðurinn til að sýna í sýningaröð í D-sal Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Sýningin nefnist Mæri sem ég vil túlka þannig að listamaðurinn vilji brjóta einhver sjónræn eða skynræn mörk. Hins vegar er hluti sýningarinnar leikur að einhvers konar rök- rænu stafarugli, þannig að ég hef þessa túlkun mína með fyrirvara um að verið sé að krukka svolítið í túlkun manns. Á sýningunni skoðar Pétur möguleika rýmis út frá orðum, hljóði og sjón. Umfangsmesta verk sýningarinnar er hringlaga spegill sem virkar eins og plötuspilari. Tónlistin er í raun hljóðið sem hann nemur af sjálfum sér og ómar um salinn með viðeigandi rispu í speglinum sem heggur í nálina í jöfnum takti samhliða snúningi spegilsins. Um leið virkar rýmið heldur á floti þegar maður starir á seiðandi snúninginn, Með þessu sjónarspili, að viðbættu spegla- verki sem vísar út fyrir rýmið og tölvumynd sem flýtur í einu horninu, tekst listamanninum að losa um afmörkun rýmis og/eða minna á að það er svo margt sem við sjáum ekki, svo margt sem ekki er fýsískt og við getum ekki snert en er þarna engu að síður. Pétur er nærgætinn listamaður og allt að því dundari (ekki í neikvæðri merkingu) og er sýn- ingin hóflega sniðin og ósköp þægileg að sækja. Hins vegar virkar hún heldur bundin við ein- hvers konar ráðsett eða stofnanalegt síð-flúxus, sem ég kyngi ekki alveg (er eiginlega ennþá að tyggja), sérstaklega þar sem hún er hluti af sýn- ingaröð sem upphefur nýnæmi íslenskrar sam- tímalistar. MYNDLIST JÓN B.K. RANSU Morgunblaðið/Heiddi Plötuspilari „Umfangsmesta verk sýningarinnar er hringlaga spegill sem virkar eins og plötuspilar.“ Með þessu sjónarspili [...] tekst listamanninum að losa um afmörkun rým- is og/eða minna á að það er svo margt sem við sjáum ekki [...]. Þetta sem við sjáum ekki LISTASAFN REYKJAVÍKUR – HAFNARHÚS | Pétur Már Gunnarsson Opið alla daga frá 10-17. Sýningu lýkur 8. mars. Aðgangur ókeypis. bbbnn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.