Morgunblaðið - 12.03.2009, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
69. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
UM 5.000 ÁHORFENDUR
VESTURPORT SLÓ Í
GEGN Í HONG KONG
KYNHLUTVERK Á FYRRI ÖLDUM
KONUR MÁTTU SÍN
LÍKA NOKKURS
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Baldur Arnarson
„ÞAÐ má segja að þetta sé slæmt en
þó skárra en ég átti von á,“ segir
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
Seðlabanki Íslands greindi í gær frá
því að einungis 3% heimila væru með
húsnæðislán í erlendri mynt, um 8%
með lán í innlendri og erlendri mynt,
en tæp 90% heimila hefðu sín hús-
næðislán eingöngu í krónum. Um
helmingur þeirra hefði eiginfjár-
stöðu sem væri jákvæð um tíu millj-
ónir króna eða meira og að um 80%
heimila greiddu minna en 150.000 kr.
í húsnæðisafborganir á mánuði.
Aldrei hægt að hjálpa öllum
„Það kom á óvart að þrátt fyrir allt
er mjög stór hluti heimila sem virðist
ekki vera í neinum vandræðum,
hvorki með eigið fé né að standa í
skilum. Það er auðvitað ánægjulegt
þótt það dragi ekkert úr vanda
þeirra sem eru í hinum hópunum,“
segir Gylfi. Tölurnar muni hjálpa til
við að kortleggja vanda skuldugra.
Það sé mjög mikilvægt því ómögu-
legt sé að hjálpa öllum. Sé það reynt
þurfi á endanum að senda öllum
jafnháan reikning fyrir það. „Með
því að beina kröftunum beint að
þeim sem helst þurfa aðstoð, hvort
sem það er vegna þess að lánin
þeirra hafa hækkað mest, eða af því
að tekjur þeirra hafa dregist mest
saman, þá nýtum við sem best það
svigrúm sem við höfum. Það er lyk-
illinn að því að ná árangri.“
Fjölmargir standa vel
Morgunblaðið/Golli
Vitneskja Rannsókn sýnir að er-
lend lán eru minnsti hluti vandans.
Aðeins þrjú prósent heimila hafa húsnæðislán sín alfarið í erlendri mynt
Kom viðskiptaráðherra á óvart og gerir aðgerðir fyrir heimilin markvissari
Standa af sér storminn | 6
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SÖNGLEIKURINN Söngvaseiður
verður settur upp í Borgarleikhús-
inu í maí næstkomandi. Fylgst er
með barnfóstrunni Maríu og glímu
hennar við börn ekkjumannsins Von
Trapp, alls sjö talsins. Til að manna
hlutverk barnaskarans var blásið til
áheyrnarprufa og var fjöldi þeirra
sem mættu með miklum ólíkindum,
alls 4.000. Tólf krakkar náðu svo
landi og skiptast á að leika, en Lára
Sveinsdóttir leikur elsta systkinið.
Einn af þeim sem komust í gegn-
um nálaraugað var Árni Beinteinn
Árnason, sem er orðinn sæmilega
sviðsvanur þrátt fyrir ungan aldur.
„Ég gerði mér auðvitað litlar von-
ir í upphafi,“ segir Árni keikur. „En
eftir því sem fækkaði í hópnum fór
að hýrna á manni bráin. Maður
leyfði sér að dreyma, en passaði sig
um leið að vera sæmilega vondauf-
ur. Þetta voru snúnar tilfinningar!“
Hópurinn hefur æft af miklum
krafti síðan í janúar en kemur fram í
sviðsljósið í fyrsta skipti á meðfylgj-
andi ljósmynd.
Æfingar fyrir Söngvaseið komnar á blússandi siglingu
Morgunblaðið/Ómar
Hátt og snjallt Hópurinn stillti sér upp en átti hins vegar erfitt með að vera stilltur, slík er eftirvæntingin vegna frumsýningarinnar.
Leyfði sér að dreyma
og draumurinn rættist
Fámenniseignarhald á íslenskum
bönkum hafði mikil áhrif á stjórnun
þeirra og hvernig fyrir þeim fór, að
sögn Svein Harald Øygard, seðla-
bankastjóra á Íslandi.
Fáir eigendur
orsök bankahruns
Smærri fjármálafyrirtæki, eins og
sparisjóðirnir Byr og SPRON, eiga
óöruggar veðkröfur á Baug upp á
um 48 milljarða króna. Gæti þetta
fé allt tapast við gjaldþrot Baugs.
Smærri kröfuhaf-
ar Baugs tapa
Eitt af því sem veikti lausafjárstöðu
Straums var að lífeyrissjóðir tóku
fé út af innstæðureikningum sínum
í bankanum. Geymdu sjóðirnir háar
fjárhæðir á slíkum reikningum.
VIÐSKIPTI
Lífeyrissjóðir
flýðu Straum
MIKILL óhugur er í Þjóðverjum
vegna skotárásar 17 ára pilts sem
varð a.m.k. fimmtán manns að bana
áður en hann fyrirfór sér eftir að
hafa særst á fæti í skotbardaga við
lögreglu. Á meðal fórnarlambanna
voru níu skólanemar á aldrinum 14-
15 ára og þrír kennarar.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, lýsti yfir þjóðarsorg í landinu
og lýsti árásinni sem „skelfilegum
glæp“. Innanríkisráðherra landsins
sagði að flaggað yrði í hálfa stöng í
dag til að minnast þeirra sem létu
lífið. »18
Þjóðarsorg í Þýskalandi
vegna mannskæðrar árásar
www.sigridurandersen.is
Sigríði Á. Andersen
í eitt af 4 efstu
sætunum
Prófkjör sjálfstæðismanna
í Reykjavík 13. og 14. mars.