Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 6
LANDMÆLINGAR Íslands hafa
samið við Loftmyndir ehf. um að-
gang að myndkortum fyrirtækisins
til nota við staðsetningu örnefna.
Þá hefur í samvinnu við fyrirtækið
verið þróuð kortasjá sem gerir
starfsmönnum Landmælinga Ís-
lands og örnefnasviðs Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum kleift að staðsetja örnefni
og leiðrétta.
Samstarf milli þessara tveggja
stofnana og þessi nýja veflausn
mun án efa hleypa miklum krafti í
skráningu og staðsetningu örnefna
í stafrænan gagnagrunn, segir á
heimasíðu Landmælinga. aij@mbl.is
Staðsetning
á örnefnum
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
MEIRIHLUTI heimila í landinu
mun ráða við vaxandi greiðslubyrði
húsnæðislána, að mati starfshóps
Seðlabanka Íslands um áhrif fjár-
málakreppunnar á heimilin.
Á það er hins vegar bent að rúm-
lega fjórða hvert heimili er talið
búa við þrönga eiginfjárstöðu.
Um bráðabirgðaniðurstöður er
að ræða og er fyllri myndar af stöð-
unni að vænta á næstu vikum, að
sögn Þorvarðar Tjörva Ólafssonar,
hagfræðings hjá Seðlabankanum.
Greiningin byggist á gögnum
sem Seðlabankinn hefur aflað í
samstarfi við fjármálafyrirtækin
og byggjast tölur um húsnæðiseign
á fasteignamati frá árinu 2008.
Því er ljóst að mörg heimili í
vanda geta ekki selt fasteignir á því
verði sem þau keyptu þær.
Ná til 80.000 húseigenda
Gögnin ná til 80.000 húseigenda
en samkvæmt þeim skulda 72,9%
heimila undir 20 milljónir í hús-
næði, 16,3% frá 20 og upp undir 30
milljónir, 5,2% frá 30 og upp í 40
milljónir, 2,3% frá 40 og upp í 50
milljónir og afgangurinn, eða 3,3%,
50 milljónir eða meira.
Þessar tölur endurspeglast í
kökuritinu hér til hliðar þar sem
kemur fram að um 80% heimila
greiða undir 150.000 krónur í
húsnæðisafborganir á mánuði.
Að sama skapi er heildar-
greiðslubyrði 68,4% heimila með
fasteigna- og bílalán undir 150 þús-
und krónum á mánuði.
Sú niðurstaða að heimili með er-
lend fasteignalán hafi tilhneigingu
til að vera skuldsettari en önnur
kemur vart á óvart. Það vekur hins
vegar athygli að aðeins 3% heimila
eru með húsnæðislán í erlendri
mynt, en um 8% með lán í innlendri
og erlendri mynt. Því fer það nærri
að 9 af hverjum 10 heimilum hafi
húsnæðislán í innlendri mynt og
býr um helmingurinn við eiginfjár-
stöðu sem er jákvæð um 10 millj-
ónir króna eða meira.
Erlendu lánin vega þungt
Áhrif lántöku í erlendri mynt á
hag heimilanna koma glöggt fram í
því að 23% heimila í neikvæðri
eiginfjárstöðu eru með erlend lán,
eða rúmlega tvöfalt fleiri en sem
nemur hlutfalli þeirra af heildinni.
Af 8.900 heimilum með lán í er-
lendri mynt eða erlendri mynt og
krónum eru 3.400 í neikvæðri
eiginfjárstöðu, þar af 2.400 heimili
um 5 milljónir króna eða meira.
Alls er 31.571 heimili, eða um
41% heimila, talið búa við þrönga
eiginfjárstöðu, þar af er eiginfjár-
staða 5 þúsund heimila neikvæðari
en 5 milljónir króna.
Þá kemur fram í skýrslu hópsins
að aukning í mánaðarlegri
greiðslubyrði heimila með verð-
tryggð fasteignalán sé nær undan-
tekningarlaust undir 50 þúsund
kr., á sama tíma og 30% heimila
sem hafi eingöngu lán í erlendri
mynt hafi orðið fyrir meira en 50
þúsund kr. hækkun sömu byrðar.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Aðferðin Gögnin ná til 86% Íslendinga á þjóðskrá og til um 80% af húsnæðisauði þjóðarinnar. Skuldlaus heimili og þau sem fengu húsnæðislán
hjá lífeyrissjóðunum eru ekki tekin með í reikninginn. Sama gildir um launatekjur og stendur til að bæta úr því í næstu skýrslum starfshópsins.
Standa af sér storminn
Flest heimili munu komast í gegnum efnahagsóveðrið að mati Seðlabankans
80% heimila greiða undir 150.000 krónur í húsnæðisafborganir á mánuði
Dreifing
húsnæðisskulda (B)
Eiginfjárstaða
húseigenda (A-B)
Greiðslubyrði
fasteignalána
0-19 m. kr.
H: 57.168
H: = Fjöldi heimila
20-29 m. kr.
H: 12.803
30-39 m. kr.
H: 4.065
40-49 m. kr.
H: 1.777
50+ m. kr.
H: 2.619
Meirihluti heimila skuldar minna en
30 m. kr. vegna fasteignaveðlána
(fasteignaveðlán lífeyrissjóða ekki meðtalin)
Heimild: Seðlabanki Íslands
Tæplega 20% heimila eru þegar komin í
neikvæða eiginfjárstöðu og 22% með afar
takmarkaða jákvæða eiginfjárstöðu
75% heimilanna borga minna en
100 þúsund krónur á mánuði
6-9 m. kr.
H: 9.5630-5 m. kr.
H: 16.742
-10 m. kr. +
H: 3.296
-6--9 m. kr.
H: 1.882
0--5 m. kr.
H: 9.651
10-19 m. kr.
H: 18.215
40 m. kr. +
H: 4.099
30-39 m. kr.
H: 4.911
20-29 m. kr.
H: 8.843
50-99 þ. kr.
H: 42,3%
0-49 þ. kr.
H: 32,8%
100-149 þ. kr.
H: 13,7%
150-199 þ. kr.
H: 4,4%
200-249 þ. kr.
H: 2,0%
250 þ. kr. +
H: 4,8%
EKKERT íslenskt skip mun hafa
verið á gulldepluveiðum suður af
landinu síðustu daga. Bræla gerði
sjómönnum erfitt fyrir í síðustu
viku, auk þess sem gulldeplan virt-
ist á hraðri suðurleið og hafði dreift
sér. Tæpum 38 þúsund tonnum af
gulldeplu hefur verið landað í ár.
Í vikubyrjun hélt færeyskt skip
hins vegar til veiða á gulldeplu.
Færeysku sjómennirnir höfðu með-
al annars kynnt sér aðferðir Íslend-
inga við þessar veiðar og farið í túr
með íslensku veiðiskipi. aij@mbl.is
Færeyingar
reyna fyrir sér
á gulldeplu
ÞÓ að við séum í miðri kreppu og efnahagslægð er ég að
koma af fundi þar sem ég var að tala við erlenda fjárfesta
sem eru að koma hingað með 100 manna fyrirtæki. Við
gerum um það samning vonandi á næstu 60 dögum. Þeir
koma hingað vegna þess að hér er hægt að finna græna
orku og það er ein tegund orku sem þeir vilja sem er jarð-
orka.“
Þetta sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í
ræðu sem hann flutti á aðalfundi Marels í vikunni. Össur
vildi í samtali við Morgunblaðið ekki upplýsa hvaða fyr-
irtæki þetta væri en samkvæmt heimildum blaðsins var
hann að vísa til fundar með forsvarsmönnum Verne
Holdings, sem hefur verið með gagnaver á Keflavíkur-
flugvelli í undirbúningi. Eru vonir bundnar við að hægt
verði á næstu tveimur mánuðum að gera fjárfestingar-
samning milli íslenskra stjórnvalda og Verne Holdings.
Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður Verne Hold-
ings, vildi ekkert tjá sig um stöðu mála þegar haft var
samband við hann í gær en heimildir blaðsins herma að
félagið hafi nýverið landað samningi við stóran viðskipta-
vin sem er reiðubúinn að láta Verne hýsa sín gögn. Ný-
verið var haft eftir Vilhjálmi í Morgunblaðinu að starf-
semi gagnaversins hæfist í samræmi við gerða samninga.
Gagnaverið gæti tekið til starfa að ári. bjb@mbl.is
Samið við Verne Hold-
ings á næstu 60 dögum
Fjárfestingarsamningur um gagnaver Verne Holdings í
burðarliðnum Gæti skapað um eitt hundrað ný störf
Gagnaver Stefnt er að rekstri gagnavera hér á landi á
næstu árum hjá Verne Holdings, Greenstone o.fl.
Á FJÓRÐA tug grásleppubáta frá
Siglufirði að Vopnafirði lögðu netin
í blíðskaparveðri á þriðjudags-
morgun Áætlanir gera ráð fyrir að
260 bátar stundi veiðarnar í ár og
vertíðin veiti um 600 sjómönnum
atvinnu, segir á heimasíðu Lands-
sambands smábátasjómanna.
Um 260 bátar
á grásleppu