Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Í TILEFNI af 50 ára afmæli Vest- urbæjarskóla verður haldin afmæl- ishátíð í skólanum nk. laugardag. Hátíðin hefst á setningarathöfn og að henni lokinni verður skólinn öll- um opinn til kl. 16. Ýmsar sýningar og uppákomur verða á göngum skólans og í heimastofum nemenda. Nemendur, allt starfsfólk skólans og foreldrar hafa unnið í samein- ingu að undirbúningi hátíðarinnar. Allir fyrrverandi nemendur, kenn- arar og aðrir sem hafa áhuga, eru hvattir til þess að líta við og fagna þessum tímamótum. Vesturbæjarskóli RÍFLEGA 17,3 milljónir króna fóru í ráðgjafar- og verktakaþjón- ustu í umhverfisráðuneytinu, frá síðustu kosningum til 1. febrúar síðastliðins. Stærsti afmarkaði lið- urinn í þeirri tölu voru tæpar 4,6 milljónir króna sem runnu til ráðningarþjónustufyrirtækja, svo sem Capacent, Hagvangs og Intel- lecta. Einnig fóru 2,4 milljónir í lögfræðikostnað vegna álitsgerða og samningar frumvarpa, 2,3 milljónir í þjónustu verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta. Þá fóru um 600 þúsund krónur í þýð- ingar og túlkun og tæpar tvær milljónir í ráðgjöf viðskipta- og hagfræðinga. Önnur sérfræðiþjón- usta kostaði rúmar 5,4 milljónir, svo sem vefsmíði, úttekt á skipu- riti og innleiðing gæðakerfis í ráðuneytinu. Verk voru keypt af m.a. einstak- lingum og einkahlutafélögum á borð við Parex ehf., Frón ehf., Stjórnhætti ehf., Samsýn ehf., Galdur ehf., Reyki sf., Kná ehf. og Alta ehf. onundur@mbl.is 17,3 milljóna ráð- gjafarkostnaður Fréttir í tölvupósti Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis- ráðherra getur rofið Alþingi frá og með deginum í dag í samræmi við ákvæði í stjórnarskránni enda eru nú innan við 45 dagar til boðaðra kosninga 25. apríl n.k. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kann það að dragast í einhverja daga, enda eru ekki öll mál, sem rík- isstjórnin hyggst leggja fram, enn komin fram í þinginu. Í 24. grein stjórnarskrárinnar segir svo:. „Forseti lýðveldisins get- ur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið],1) enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum]1) eft- ir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjör- dags.]“ Samkvæmt þessu skal nýtt þing koma saman eigi síðar en í ann- arri viku í maí. Beðið eftir forsetabréfi Forseti Íslands rýfur þingið form- lega að tillögu forsætisráðherra og gefur út forsetabréf um kosningar. Eftir þessu bréfi er beðið, svo hægt sé að hefja atkvæðagreiðslu utan kjörstaðar bæði hér heima og er- lendis. Mun kosningin hefjast strax og forseti hefur gefið út nefnt bréf, að sögn Hjalta Zóphóníassonar, skrifstofustjóra í dómsmálaráðu- neytinu. Í gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til breytinga á kosn- ingalögunum. Breytingarnar eru þær helstar, að viðmið- unardagur stað- festrar kjörskrár er styttur úr fimm vikum í fjórar fyrir kjördag. Kjörskrá skal leggja fram almenningi til sýnis átta dögum fyrir kjördag í stað tíu daga. Mörk kjördæmanna í Reykjavík skal birta með auglýsingu þremur vikum fyrir kjördag í stað fjögurra vikna. Frestur til að tilkynna framboð rennur út kl. 12 á hádegi 11 dögum fyrir kjördag í stað 15 daga eins og nú er og auglýsingar á framboðum skulu birtast eigi síðar en fimm dög- um fyrir kjördag í stað tíu daga. Þá eru með frumvarpinu gerðar breyt- ingar á nokkrum ákvæðum laganna sem eru til frekari skýringar á lög- unum. Auk þess eru gerðar lagfær- ingar vegna breyttra aðstæðna, m.a. er í frumvarpinu uppfærður listi með sveitarfélögum landsins miðað við breytingar sem hafa orðið vegna sameiningar sveitarfélaga eða vegna breytinga á heitum þeirra. Verði frumvarpið óbreytt að lög- um er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð, að því er fram kemur í greinargerð með frumvarpinu. Hægt að rjúfa þing frá og með í dag Ýmsir frestir styttir vegna kosninganna Jóhanna Sigurðardóttir Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Vor 2009 heimakjólar Nýtt kortatímabil www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Str. 38-52 Flottur sparifatnaður frá Nýtt kortatímabil 70% AFSL. AF ÖLLUM VÖRUM - SÍÐASTA VIKA Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862 Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822 www.polarnopyret.is 20% afsláttur af öllum vörum fimmtudag-sunnudags Vesturröst | Laugaveg 178 S: 551 6770 | www.vesturrost.is kr. 11.900–18.900 Harris tvífætur Laugavegi 63 • Sími 551 4422 VORYFIRHAFNIRNAR KOMNAR Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.