Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.03.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 SAMTÖKIN Vinir Perú halda kynningu á starfi sínu í kvöld en samtökin hafa m.a. milligöngu um að 64 börn í fjallaþorpi í Andesfjöll- unum fá heita máltíð daglega í skól- anum. Selja samtökin m.a. hand- unna minjagripi og rennur allur ágóði, auk framlaga frá styrktarað- ilum hér á landi, óskertur til upp- byggingar skólans. Kynningin fer fram í Þjóðarbókhlöðunni, hefst kl. 18 og er öllum opin. Einnig mun Daniel Salazar, sem er tengiliður við verkefnið í Andesfjöllum, kynna menningarferðalög um Perú sem hann skipuleggur. Vinir Perú Eftir Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður | Í Sögumiðstöðinni á Grundarfirði var þess minnst um helgina að 50 ár eru liðin frá því að bandaríska leikfangafyrirtækið Mattel hóf framleiðslu á Barbie- dúkkunni. Í Þórðarbúð mátti sjá sýningu á þróun Barbie-dúkkunar í tímans rás og hvernig Ken kom til sögunar sem og að ýmsar eftirlík- ingar litu dagsins ljós. Í Bærings- stofu flutti forstöðumaður Sögu- miðstöðvarinnar lærða fyrirlestra um sögu Barbie og eftirlíkingar hennar. Á laugardagskvöldinu var síðan sérstakt afmælishóf fyrir jafnöldrur Barbie, þ.e. þær konur sem fæddar voru á því merkisári 1959, í Sögumiðstöðinni. Að sögn Inga Hans Jónssonar hjá Sögu- miðstöðinni vakti uppátækið verð- skuldaða athygli því um 250 manns komu til að skoða sýninguna og voru gestir jafnt heimamenn sem og frá hinum þéttbýlisstöðunum á Snæfellsnesinu. Ingi Hans taldi líkur á að sýn- ingin yrði uppistandandi eitthvað fram á vorið og hugsanlegt að þeir sem misstu af henni um helgina gef- ist kostur á að sjá hana um páskana. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Sýning Ingi Hans sýningarstjóri á tali við Ragnhildi Gunnarsdóttur. Haldið upp á 50 ára afmæli dúkkunnar Barbie í Sögumiðstöðinni á Grundarfirði RÁÐSTEFNA um áhrif krepp- unnar á börn og unglinga fer fram í Norræna húsinu í dag, fimmtu- daginn 12. mars, frá kl. 16.30- 18.30. Lions-hreyfingin á Íslandi stendur fyrir ráðstefnunni. Dagskráin hefst með ávarpi fé- lagsmálaráðherra en í kjölfarið fylgja erindi úr ýmsum áttum. Efnahagsþrengingar og geðheilsa nefnist erindi sem Ólafur Guð- mundsson, yfirlæknir BUGL, flyt- ur. Þá flytur Sigurður Rafn A. Levy sálfræðingur á BUGL erindið Tölum við börnin okkar – drögum úr óöryggi þeirra. Börnunum er búinn tvöfaldur háski nefnist er- indi sem Þorbjörn Broddason, pró- fessor í félagsfræði við Háskóla Ís- lands, flytur og Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnu- eftirlitinu, flytur erindi undir yf- irskriftinni Atvinnulíf og andleg heilsa – fyrirmynd fyrir börn og unglinga. Ráðstefnustjóri er Jón Bjarni Þorsteinsson, heimilislæknir og fyrrverandi alþjóðastjórnarmaður Lions. Áhrif kreppunnar á börn og unglinga STARFSENDURHÆFING Norðurlands hlaut þann heiður í vikunni að vera valið eitt af fyrirmyndarverkefnum Evrópusambandsins í flokki nýsköpunar. Það er sú hugmyndafræði sem Starfsendurhæfingin byggist á sem var verðlaunuð fyrir tilraunaverkefnið Social Return (www.social- return.net.) sem unnin var á árunum 2004-2007 í samvinnu við Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Framhaldsskólann á Húsavík, Rann- sóknastofnun Háskólans á Akureyri og aðila frá Ítalíu, Hollandi, Lithá- en og Slóveníu. Verkefnið hafði áður hlotið hvatningarverðlaun Ör- yrkjabandalagsins í desember 2007 og í desember 2008 fékk verkefnið gæðaverðlaun frá Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambands- ins á Íslandi. Hugmyndafræðin byggist á samvinnu ólíkra stofnana og sér- fræðigreina og miðar að því að veita þjónustu í nærumhverfi ein- staklingsins og að hann axli ábyrgð á eigin endurhæfingu með virkri þátttöku í mótun hennar. Nýsköpunarverðlaun frá ESB STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjáv- arútvegsráðherra hefur staðfest breytingu á reglugerð um hval- veiðar. Í reglugerðinni er kveðið á um þau skilyrði sem uppfylla þarf til að fá leyfi til að stunda hrefnu- veiðar. Skilyrðin eru þau, að að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum og einnig að skyttur sem annist veiðar og af- lífun dýra skuli hafa sótt námskeið í meðferð skutulbyssna og sprengi- skutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Þá er einnig kveðið á um veiðiaðferðir og veiðibúnað sem hvalveiðiskip skulu búin. Hvalveiðar hefjast FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is MIÐAÐ við bráðabirgðaupplýs- ingar sem Reykjavíkurborg fékk frá Þjóðskrá þarf ekki að færa kjör- dæmamörkin milli Reykjavík- urkjördæmanna tveggja fyrir kom- andi alþingiskosningar. Skiptingin verður því líklega sú sama og síð- ast. Reykjavík er eina sveitarfélag landsins sem skipt er á milli tveggja kjördæma, þ.e. Reykjavíkur norður og Reykjavíkur suður. Skiptingin var lögfest með kjördæmabreyting- unum árið 2000 en í greinargerð með frumvarpinu sagði að „óhjá- kvæmilegt“ væri að skipta Reykja- víkurkjördæmi í tvennt til að fjöldi þingsæta í hverju kjördæmi gæti verið sem jafnastur. Reykvíkingar mótmæltu Þessi skipting mætti töluverðri andspyrnu meðal Reykvíkinga, m.a. sá borgarráð tvívegis ástæðu til að mótmæla skiptingunni, fyrst árið 1999 og aftur árið 2000. Í janúar í fyrra lögðu fjórir af þingmönnum Reykjavíkur fram frumvarp um að kjördæmaskipt- ingin í Reykjavík yrði afnumin. „Skemmst er frá að segja að í Reykjavík skilur ekki nokkur mað- ur af hverju sveitarfélagið þarf að skiptast í tvö kjördæmi við alþing- iskosningar,“ sagði í greinargerð með frumvarpinu. Þá bentu þing- mennirnir á að Reykvíkingar mynd- uðu engin tengsl við „sína“ þing- menn umfram þingmenn í hinu borgarkjördæminu og flokkarnir skipulegðu starfsemi sína líkt og um eitt kjördæmi væri að ræða. Í greinargerðinni er einnig bent á að skiptingin hafi valdið því að erf- itt sé að láta þann vilja kjósenda sem kemur fram í prófkjörum end- urspeglast í kosningaúrslitum. Bæði 2003 og 2007 hafi það gerst að frambjóðandi sem ekki náði kjöri til Alþingis, hafi fengið meiri stuðning í prófkjöri flokks síns en frambjóð- andi sem náði kjöri á lista flokksins í hinu borgarkjördæminu. Frumvarpið var sett í stjórn- arskrárnefnd þar sem það sofnaði. Skiptingin kom fyrst til fram- kvæmda árið 2003. Samkvæmt kosningalögum skal miða við að fjöldi kjósenda hvors kjördæmis sé „nokkurn veginn“ sá sami og að misvægið verði ekki meira en „2-3%“. Vegna íbúaþróunar varð að breyta kjördæmamörkunum fyrir kosningarnar árið 2007 þannig að íbúar í suðurhlíðum Grafarholts sem tilheyrðu Reykjavík suður árið 2003, tilheyrðu Reykjavík norður árið 2007. Kjördæmamörkin skal tilkynna fjórum vikum fyrir kjördag. Reyk- víkingar bíða sjálfsagt spenntir.              ! " # $ % & " ' ( ) * +  ! " # $ % & " , + * +  : ; '  < :  = > !  + ? @ ,  &%  9 7446 Grafarholt skiptist áfram milli kjördæma Ekki nokkur Reykvíkingur skilur ástæðuna fyrir skiptingu                    7$65A 7$AB3 6$414 6$352 6$3B4      !  "         Í HNOTSKURN » Fyrir kosningarnar 2007var Mörður Árnason í 4. sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík suður en Ellert Schram í 5. sæti í norður. » Í prófkjöri flokksinshreppti Mörður 7. sæti en Ellert 12. sæti. »Vegna skiptingar borg-arinnar í tvö kjördæmi komst Ellert á þing en Mörður missti af þingsæti. * G ild ir m eð an bi rg ði r en da st og á ky nn in gu st en du r. E in n ka up au ki á vi ðs ki pt av in . Sími 568 5170 GJAFADAGARNIR ÞÍNIR KYNNING Í SNYRTIVÖRUVERSLUNINNI Í GLÆSIBÆ 12. TIL 14. MARS Kaupaukinn þinn þegar þú kaupir 2 Lancôme vörur* - 4 snyrtibuddur (hægt er að stafla þremur minni buddunum í þá stærstu) - Rénergie krem 15 ml - Rénergie augnkrem 5 ml - Rénergie Serum 10 ml - Eau Micellaire Douceur 50 ml - Virtuôse Black Carat maskari 2 ml - Color Fever varalitur Verðmæti kaupaukans kr. 15.500 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.