Morgunblaðið - 12.03.2009, Síða 18

Morgunblaðið - 12.03.2009, Síða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 KÍNVERSKUR vegalögreglumaður í Chongqing-héraði í suðvestanverðu landinu fylgist með því að ökumaður fái sér chili-pipar. Átið er að sögn þarlendra dagblaða þáttur í mikilli aðgerð lögreglunnar gegn slysum. Kraftmikill piparinn á að koma í veg fyrir að menn verði sljóir eða jafnvel sofni undir stýri með afleiðingum sem allir geta ímyndað sér. Chili-pipar er mikið notaður í matargerð en einnig lyfjum, einkum í heit- um löndum í Asíu og Rómönsku Ameríku. Þeir sem hafa prófað að fá sér hráan pipar vita að lítil hætta er á að svefn sigri þann heppna, bragðið er geysisterkt og fáir þola mikið í einu. Sé skammturinn of stór er eins og munnurinn standi í ljósum logum. Piparinn vex á berjarunni sem á upp- runa sinn í Ameríku en er nú ræktaður víða um heim. Ættin er nefnd Cap- sicum á latínu sem notuð er við nafngiftir á jurtum. Strangt til tekið er um grænmeti að ræða en yfirleitt eru berin notuð sem krydd. Reuters Chili-pipar gegn svefndrunga bílstjóra London. AFP. | Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, er leiðinlegasti ræðumaður landsins, jafnvel leiðinlegri en fót- boltamaðurinn David Beckham, ef marka má við- horfskönnun sem birt var í gær. Einn af hverjum þremur aðspurð- um sagði að Gordon Brown væri leið- inlegasti ræðumaðurinn. Leikkonan Kate Winslet er í þriðja sæti á listanum. Hún hefur verið gagnrýnd í Bretlandi fyrir grátþrungið ávarp sem hún flutti þegar hún fékk Golden Globe-verð- launin fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Reader fyrr á árinu. Á eftir þeim þremur koma breski útvarps- maðurinn Chris Moyles og Karl prins. Breski leikarinn Stephen Fry þykir á hinn bóginn besti ræðumað- urinn, ef marka má könnunina. Hún var gerð á vegum fyrirtækisins Spin- Vox og náði til 1.000 fullorðinna Breta. bogi@mbl.is Brown leiðin- legastur Þykir verri ræðumað- ur en David Beckham Gordon Brown Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is SJÓNARVOTTAR segja frá skotum og öskrum á skólalóðinni. Einn nem- endanna hélt að einhver væri að fífl- ast. Svo sá hann að aðrir nemendur hentu sér út um glugga skólans, þá tók hann líka til fótanna. Sautján ára piltur, Tim K., skaut að minnsta kosti 15 manns til bana í bænum Winnenden norðan við Stuttgart í Suður-Þýskalandi í gær. Flest fórnarlambanna voru nem- endur í Albertville-iðnskólanum en Tim var fyrrverandi nemandi við skólann. Pilturinn réðst inn í tvær skóla- stofur og skaut af handahófi í kring- um sig. Níu nemendur á aldrinum 14 og 15 ára fundust látnir í skólastof- unum auk þriggja kennara. Þrír vegfarendur biðu bana Eftir árásina í skólanum flúði Tim fótgangandi niður í miðbæ Winnend- en og skaut á tvo vegfarendur á leið- inni, annar þeirra lést en hinn særð- ist. Því næst stöðvaði pilturinn bíl og þvingaði bílstjórann til að aka sér áfram, hleypti svo bílstjóranum út úr bílnum og ók sjálfur. Tim stöðvaði bílinn í nágrenni bílasölu þar sem hann skaut tvo menn til bana. Til skotbardaga kom við lögregluna og hermt er að pilt- urinn hafi særst á fæti. Að sögn lög- reglunnar er talið að hann hafi síðan fyrirfarið sér með byssu sinni. Pilturinn hafði ekki vakið sérstaka eftirtekt í skólanum og hafði, að sögn nemenda skólans, ekki verið einfari. Hann lauk námi í fyrra og hafði byrjað í starfsþjálfun. Samkvæmt viðmælendum vefsíðu þýska ríkissjónvarpsins ZDF þótti Tim rólegur, eðlilegur og ekki árás- argjarn. Hann hafi þó átt það til að vera merkilegur með sig. „Hann var góður í íþróttum. Svo góður að með- spilendur hans fengu stundum að kenna á því,“ segir gamall borðtenn- isþjálfari Tims í viðtali við ZDF. Faðir Tims var meðlimur í skot- félagi og átti 16 lögleg skotvopn, að sögn lögreglunnar vantaði eitt vopn- anna við húsrannsókn í gær. Skotárásin er ein sú alvarlegasta sem orðið hefur í þýskum skóla. Hún þykir minna á skotárásina sem var gerð hinn 26. apríl 2002 í Gutenberg- menntaskólanum í Erfurt. Þá skaut nítján ára nemandi, sem hafði verið rekinn úr skólanum, 16 manns til bana áður en hann batt enda á eigið líf. Átakanleg árás í menntaskóla Pilturinn talinn hafa fyrirfarið sér eftir að hafa orðið minnst 15 manns að bana Reuters Gæsla Fjöldi lögreglumanna og sjúkraliða var við skólann. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is EINA Evrópuríkið sem heimilar að kynferðisglæpamenn séu geltir með skurðaðgerð vilji þeir það sjálfir er Tékkland, þar hafa 94 fengið slíka meðferð undanfarin tíu ár. En málið er umdeilt. Nefnd á vegum Evrópu- ráðsins, sem beitir sér gegn pynt- ingum, hefur fordæmt geldingar Geldingin tekur um eina klukku- stund og er fjarlægður vefur sem framleiðir karlhormónið testósterón, þ.e. eistun. Tékkneskir geðlæknar, sem hafa yfirumsjón með aðgerðun- um, segja að engin önnur lausn tryggi jafn vel að hafður sé hemill á kynlöngun í mönnum sem séu öðru fólki stórhættulegir vegna mikillar kynlífsbrenglunar. Fullyrt er að geltir afbrotamenn drýgi yfirleitt ekki aftur sams konar glæpi eftir að þeir eru lausir úr haldi. Dönsk rannsókn á 900 geltum kyn- lífsafbrotamönnum á sjöunda ára- tugnum bendir til þess að gelding með skurðaðgerð hafi lækkað tíðnina úr 80% í 2,3%. En sumir sérfræð- ingar segja að treyst hafi verið á upplýsingar frá brotamönnum sjálf- um. Einnig er sagt að brotin eigi sér rætur í huga glæpamannsins, ekki kynfærunum og hann geti auk þess keypt sér testósterón á netinu eftir að hafa verið geltur. Þrátt fyrir gagnrýnina íhuga nú nokkur ríki í álfunni að heimila eða krefjast þess að beitt sé efnafræði- legri geldingu gegn ofbeldisfullum brotamönnum, þeir eru þá þvingaðir til að taka lyf sem stöðva framleiðslu hormónanna. Er að sögn The New York Times búist við að Pólverjar og Spánverjar verði fyrstir og þá verði heimildinni beitt gegn mönnum sem dæmdir hafa verið fyrir að beita börn kynferðisofbeldi. Rætt um að gelda kynferðisglæpamenn ÓGNVÆNLEGIR tennisspaðar urðu þess valdandi að manni var meinað að fara um borð í flugvél á Vínarflugvelli árið 2005. Spaðarnir voru reyndar bara venjulegir tenn- isspaðar en samkvæmt leynilegum lista Evrópusambandsins flokkuðust slík tól undir möguleg vopn hryðju- verkamanna og því ólöglegir í hand- farangri. Gottfried Heinrich, eigandi spað- anna, komst að tilvist leynilega listans þegar hann höfðaði skaða- bótamál gegn flugvellinum. Leyni- legi listinn hefur nú verið úrskurð- aður ólöglegur en hann hafði ekki verið gerður opinber af öryggis- ástæðum. Evrópskir dómarar kom- ust að því að ekki væri hægt að not- ast við listann vegna þess að farþegum væri ómögulegt að vita hvað væri á honum og gætu því ekki fylgt settum reglum. jmv@mbl.is Hættulegur tennisspaði EINEYGÐUR heimildarmyndagerðamaður ætlar að fela myndbandsupptökuvél í gerviauga sínu og verða þannig að gangandi eftirlitsmyndavél. Rob Spence hyggst kanna einkamál fólks og að hans sögn mun hann ná bet- ur til viðmælendanna en ef hann notaði venjulega myndavél. „Við gerð heimildarmynda reynir maður að ná sambandi við fólk. Besta leiðin til þess er með augn- sambandi,“ segir Spence. Hann segist þó verða var við óöryggi hjá fólkinu sem hann umgengst. „Fólk vill ekki endilega vera með einhverjum sem gæti verið að festa þig á filmu hvenær sem er,“ segir Spence. Nú er hann ásamt færustu verkfræðingum að leggja lokahönd á myndavélina en vöðv- ar munu hreyfa augað á sama hátt og raunverulegt auga Spence. Myndar með auganu Rob Spence Eru mannréttindi í húfi? Umræðan snýst m.a. um það hvort skuli fremur vernda, réttindi afbrotamanna sem gætu þurft að þola refsingu sem margir álíta grimmdarlega ef geldingin er þvinguð, eða rétt samfélagsins sem vill losna við árásir kynlífs- glæpamanna. Hver er reynsla geldinganna? Hún er misjöfn en getur verið já- kvæð. Lýst er í blaðinu Tékka sem réðst á 12 ára strák og myrti hann, að sögn geðlækna vegna kynlífsbrenglunar. Maðurinn bað um að vera geltur með uppskurði þegar hann hafði afplánað og segist nú loksins vita að hann muni ekki framar skaða nokkurn. S&SKolbrúnBaldursdóttir Vöndum valið www.kolbrun.ws PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Í REYKJAVÍK 13. OG 14. MARS 2009 Fyrirhyggja, festa og framfariir Kolbrún er sálfræðingur með langa og víðtæka reynslu af félags- og velferðarmálum. Einkum er henni annt um hag fjölskyldna í landinu. Gætum að velferð barna og setjum hagsmuni þeirra ofar öllu. • Samvinna og eining er grunnur velgengni • Ég vil styrkja stoðir Sjálfstæðisflokksins og efla innviði hans með nýjum sjónarhornum Hlustum á þjóðina 4.-5. SÆTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.