Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 19

Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 19
Daglegt líf 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is A tvinnurekandi getur ekki ákveðið einhliða að sumarorlof falli innan þriggja mánaða uppsagnarfrests, að sögn lögfræðings ASÍ. Tveir hæstaréttadómar hafa fallið þar sem kveðið var á um rétt starfs- manns til sumarleyfis utan þriggja mánaða uppsagnarfrests. Ljóst er að uppsagnarfrestur þeirra sem fá uppsagnarbréf um þessar mundir nær yfir í hefð- bundinn sumarleyfistíma, sem vek- ur upp spurningar um réttindi starfsmanna til sumarleyfis í tengslum við uppsagnarfrest. Magnús M. Norðdahl, lögfræð- ingur hjá ASÍ, segir atvinnurek- anda ekki geta ákveðið einhliða að sumarorlof skuli tekið meðan á uppsagnarfresti standi. „Það á að nota uppsagnarfrestinn til að finna nýja atvinnu en orlofið er til hvíld- ar og slökunar,“ útskýrir hann og vísar þar til hæstaréttardóms sem féll starfsmanni í vil árið 1994. „Þar var ekki fallist á að launþegi í orlofi þyrfti að eyða áunnum or- lofstíma í að leita sér að nýrri at- vinnu í uppsagnarfresti.“ Hins vegar geti verið um sam- komulagsatriði að ræða. „Ef búið er að ákveða hvenær orlofið verður tekið, getur atvinnurekandinn ekki skellt því inn í uppsagnarfrestinn. En hafi ekki verið búið að ákveða orlofið þegar uppsögn kemur, gæti opnast einhver vettvangur til að fólk geti samið um hvernig því verði háttað.“ Þrír mánuðir hæfilegir Magnús segir að þarna geti skipt máli hversu langur uppsagn- arfresturinn er. „Ef viðkomandi er t.a.m. með sex mánaða uppsagn- arfrest og inn í það kæmi orlof sem væri einn mánuður má leiða að því líkum að sá uppsagn- arfrestur sé það langur að við- komandi hafi tíma til að finna sér vinnu án þess að það skemmi or- lofið. En sé uppsagnarfresturinn aðeins mánuður eru öfgarnar al- veg í hina áttina. Í hæstaréttardóminum sem Magnús vísar til fluttist hluti upp- sagnarfrests starfsmannsins til og lauk mánuði síðar en vinnuveit- andinn hafði áætlað, vegna orlofs- ins. „Þarna metur hæstiréttur það svo að þriggja mánaða uppsagn- arfrestur sé í rauninni hæfilegur, að það megi ekki skerða hann með því að skella sumarorlofinu inn í hann,“ segir hann en svipuð niðurstaða var í öðrum hæstarétt- ardómi sem féll árið 1959. Orlofsréttur helst í uppsögn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Atvinna Fólk heldur réttindum sínum til sumarorlofs þótt uppsagnarfrestur nái yfir orlofstímann. Ekki má skerða þriggja mánaða uppsagnarfrest Atvinnuleitandi á ekki rétt á at- vinnuleysisbótum á þeim tíma sem hann er í sumarorlofi, að sögn Lín- eyjar Árnadóttur, forstöðumanns Greiðslustofu Vinnumálastofn- unar. „Þegar einstaklingur hættir hjá fyrirtæki er orlofið oft gert upp við hann,“ segir hún. „Þá á hann ekki rétt á atvinnuleysisbótum á sama tíma og hann nýtir orlofið, enda fær hann það greitt. Í raun- inni er orlofið sambærileg áunnin réttindi og atvinnuleysisbætur.“ Taki starfsmaður sumarorlof í beinu framhaldi af uppsagn- arfresti á hann þannig ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en orlof- inu lýkur. „Hins vegar þarf hann ekki endilega að taka orlofið í beinu framhaldi af starfi heldur getur hann geymt það, t.d. um mánuð, ef hann vill skipuleggja það á öðrum tíma sumarsins,“ heldur Líney áfram. „Það þarf þó að vera innan orlofstímans.“ Vinnuleitandinn getur svo tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið með atvinnuleysisbæturnar þegar orlofinu lýkur. „Þó er rétt að taka fram að þeir sem eiga gamalt orlof, sem er áunnið frá eldri orlofstímabilum, verða að byrja að taka það áður en þeir geta þegið atvinnuleysis- bætur,“ segir Líney. „En það sem er áunnið á orlofstíma ársins 2008 – 2009 geta menn valið um að taka meðan orlofstímabilið varir.“ Fá ekki atvinnuleysisbætur í sumarorlofi Bónus Gildir 12. - 15. mars verð nú verð áður mælie. verð Bónus ferskar grískótilettur ......... 798 998 798 kr. kg Ali ferskur grísabógur ................. 398 498 398 kr. kg Ali ferskur heill kjúklingur ............ 598 798 598 kr. kg Bónus ferskir kjúklingabitar ........ 359 539 359 kr. kg KF nýtt kjötfars .......................... 399 499 399 kr. kg NF saltfiskbitar m/ roði/beini ..... 598 0 598 kr. kg NF sjófryst ýsuflök roð/beinlaus .. 878 988 878 kr. kg Mackinthos, 2,9 kg.................... 1.998 3.598 689 kr. kg Bónus flatkökur, 5 stk. ............... 69 98 14 kr. stk. Bónus þvottaefni, 210 skammtar ................................................ 2.598 12 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 12. - 14. mars verð nú verð áður mælie. verð Folaldagúllas úr kjötborði ........... 1.098 1.478 1.098 kr. kg Svínalundir úr kjötborði .............. 1.498 2.195 1.498 kr. kg 1/1 ferskur Móa kjúklingur ......... 649 998 649 kr. kg Fjallalambs blóðmör .................. 530 757 530 kr. kg Fjallalambs lifrarpylsa ................ 558 797 558 kr. kg Londlamb frá Kjarnafæði ............ 1.311 2.017 1.311 kr. kg SS VSOP helgarsteik .................. 1.758 2.198 1.758 kr. kg SS hrossasaltkjöt úrb. ................ 554 738 554 kr. kg Hamborgarar, 4x80 g m/brauði .. 396 496 396 kr. pk. Hagkaup Gildir 12. - 15. mars verð nú verð áður mælie. verð Svínasíða.................................. 559 998 559 kr. kg Svínahnakki úrbeinaður.............. 799 999 799 kr. kg Hamborgarhryggur ..................... 899 1.898 899 kr. kg Svínahakk................................. 545 779 545 kr. kg Svínakótilettur með beini............ 799 999 799 kr. kg Eggaldin ................................... 397 699 397 kr. kg Neutral þvottaduft, 2 kg ............. 589 789 589 kr. stk. Ota haframjöl, 500 g ................. 179 237 179 kr. stk. Tuborg létt öl ............................. 69 97 69 kr. stk. Krónan Gildir 12. - 15. mars verð nú verð áður mælie. verð Grísalundir ................................ 1.349 2.698 1.349 kr. kg Grísahnakki úrb. sneiðar............. 849 1.698 849 kr. kg Grísaskankar............................. 199 298 199 kr. kg Grísakótilettur............................ 899 1.498 899 kr. kg Grísagúllas................................ 998 1.598 998 kr. kg Grísahryggur með pöru ............... 798 1.198 798 kr. kg Móa kjúklingabringur ................. 1.498 2.798 1.498 kr. kg Greens laukhringir í orly.............. 298 398 298 kr. pk. Nóatún Gildir 12. - 15. mars verð nú verð áður mælie. verð Ungnauta innralæri .................... 2.449 3.498 2.449 kr. kg Ungnauta piparsteik .................. 2.399 3.998 2.399 kr. kg Ungnautaglóðaborgari, 120g...... 139 199 139 kr. stk. Lambalærissneiðar .................... 1.498 2.498 1.498 kr. kg Klaustursbleikja flök................... 1.258 1.798 1.258 kr. kg Íslensk matvæli heill kjúklingur ... 588 989 588 kr. kg Goða medisterpylsa................... 696 928 696 kr. kg Meistara massarínukaka ............ 549 679 549 kr. stk. Þín Verslun Gildir 12. mar - 18. mar verð nú verð áður mælie. verð Ísfugl úrb.kjúkl.bringur án skinns. 2.061 2.945 2.061 kr. kg Jacobs pítubrauð fín/gróf, 400 g. 189 245 473 kr. kg Ota Solgryn haframjöl, 500 g...... 209 255 418 kr. kg Pataks Tikka Masala sósa, 540 g 339 485 628 kr. kg Pataks Naan brauð, 280 g.......... 329 465 1.175 kr. kg Chicago Town osta flatbaka ........ 598 989 1.759 kr. kg Milka súkkulaði m/hnetum, 100 g .............................................. 179 229 1.790 kr. kg Lambi eldhúsrúllur, 3 rúllur ......... 298 379 100 kr. stk. helgartilboðin Kjúklingakjöt á tilboði Ingólfur Ómar Ármannsson yrkirum kreppuna: Kreppan gerir lífið leitt lýðinn ærið þjakar; stjórnin aðhefst ekki neitt og afkomu margra hrakar. Einn og einn dagur hefur liðið án Vísnahorns vegna þess að umsjónarmaður var í leyfi. Það olli Rúnari Kristjánssyni á Skagaströnd áhyggjum, sem sendi kveðju: Pétur er horfinn – ég finn hann ei framar, fæ engar vísur í blaðinu að sjá. Í kollinum hugsunin stuðlandi stamar, stakan í hættu og maðurinn frá! Hvert er hann farinn – sá bústólpi Braga, best sem hér stutt hefur kveðskaparmál? Hann sem gaf okkur um ótalda daga andlega næringu í huga og sál! Feginn ég vona að finnist hann aftur, fastgróin tryggð við hann lifir í mér. Áram hann leiði sá kveðskapar kraftur sem kynnt hefur dug hans í Mogganum hér! Af kreppu og kveðskap VÍSNAHORN pebl@mbl.is MÁLI skiptir í tískuheiminum hvernig förðun og föt fara saman. Því getur verið vandaverk að finna rétta litinn á varirnar. Hér er fag- maður að verki á tískusýningu líb- anska hönnuðarins Elie Saab á tískuvikunni í París. Reuters Rétti liturinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.