Morgunblaðið - 12.03.2009, Page 26

Morgunblaðið - 12.03.2009, Page 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 ✝ Guðmundur HelgiÞórðarson fædd- ist í Hvammi á Völl- um í S-Múlasýslu 26. mars 1924. Hann lést þriðjudaginn 3. mars sl.. Foreldrar hans voru Þórður Helga- son, f. 27.2. 1901, d. 19.3. 1985 og Vilborg Guðmundsdóttir, f. 15.10. 1892, d. 13.1. 1983. Systkini Guð- mundar Helga eru: Óskar, f. 8.1. 1923, d. 22.3. 1934, Arnþór, f. 20.6. 1925, d. 7.7. 2004, Ásdís, f. 25.4. 1927, d. 27.12. 2004, Margrét, f. 13.4. 1929, Ingibjörg, f. 10.5. 1931, d. 29.6. 2008 og uppeld- issystir Auðbjörg Stefánsdóttir, f. 25.5. 1942. Guðmundur kvæntist árið 1953 Lóu Stefánsdóttur, f. 2.11. 1933. Börn þeirra eru: 1) Bryndís heyrn- Árið 1952 lauk hann prófi í lækn- isfræði. Eftir aðstoðarlæknisstarf á Egilsstöðum og kandidatsár gerðist hann héraðslæknir, fyrst í Hofsósshéraði 1954 til 1961 og síðar Stykkishólmshéraði 1961 til 1974. Frá 1974 til starfsloka árið 1993 var hann heilsugæslulæknir í Hafnarfirði. Guðmundur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum meðfram starfi sínu. M.a. sat hann í hrepps- nefnd Hofsósshrepps 1958-61, í stjórn Læknafélags Vesturlands í nokkur ár og formaður þess 1971- 72. Hann var ritari í stjórn Læknafélags Reykjavíkur 1978-80 og varamaður í stjórn Lækna- félags Íslands 1977-78. Hann sat í stjórnskipaðri nefnd til að und- irbúa frumvarp til heilbrigðislaga 1971 og sat í stjórnskipaðri nefnd um heilbrigðismál 1980-81. Hann sat í stjórn Heilsugæslu Hafn- arfjarðar 1987-1991 og í heil- brigðisnefnd Garðabæjar 1990-98. Guðmundur var kjörinn heiðursfélagi Félags íslenskra heimilislækna árið 1997. Útför Guðmundur Helga fer fram frá Vídalínskirkju í Garða- bæ í dag, 12. mars, og hefst at- höfnin klukkan 15. arfræðingur, f. 20.8. 1952, gift Jóhanni Tómassyni lækni og eru börn þeirra Tóm- as Helgi, Guðmundur Freyr og Guðrún Arna. 2) Vilborg hjúkrunarfræðingur, f. 19.7. 1955, gift Einari Indriðasyni bifreiðasmiði, f. 15.8. 1956 og eru börn þeirra Indriði, Berg- þóra og Halldór. 3) Heimir, grafískur hönnuður, f. 21.5. 1958. Guðmundur ólst upp hjá for- eldrum sínum og systkinum í Hvammi við búskaparhætti gamla tímans. Hann gekk í farskóla í sveitinni en vorið 1940 tók hann próf upp í 2. bekk gagnfræðastigs Menntaskólans á Akureyri. Þaðan lauk hann stúdentsprófi árið 1945. Siðferði er kærleikur. Þessi orð tengdaföður míns, sem þá lá fjötraður af völdum sjúkdóms, voru einkenn- andi fyrir hann. Þessi óvenju tæra hugsun. Orðin jafnan fá en meitluð. Ég kynntist honum fyrir fjörutíu árum, nítján ára gamall. Fyrst tók ég eftir stórum fallegum augum hans. Í þeim spegluðust mannkostir hans. Miklar gáfur og djúp vizka öguð af hógværð og eðlislægu lítillæti. Hann var fyrirmynd öllum, sem kynntust honum og þeim mest, sem þekktu hann bezt. Það gladdi mig, þegar starfsbróðir hans um langa hríð, sagði við mig: „Hann er magnaður klíniker, gamli maðurinn.“ „Einstakur heið- ursmaður,“ sagði annar. Þegar ég kynntist honum var hann héraðs- læknir í Stykkishólmi og fór einu sinni í viku í Grundarfjörð, þar sem hann hafði móttöku fram á kvöld. Hann sinnti fæðingum, dró úr tennur og svæfði sjúklinga væri skurðlæknir á sjúkrahúsinu. Ef ekki var skurð- læknir sinnti hann sjúkrahúsinu einn- ig. Einn veturinn gegndi hann einnig Dalasýslu. Þrátt fyrir mikið álag kvartaði Guðmundur aldrei. Hann var einn þessara manna, sem aldrei nota orðið ég. Það var einstakt að fylgja honum í vitjanir. Honum fylgdi traust og friður, þegar hann gekk í bæinn með hattinn sinn. Hólmarar mátu hann mikils og heiðruðu, þegar hann kvaddi eftir langa og farsæla þjónustu. Eftir að hann gerðist heim- ilislæknir í Hafnarfirði hélt hann áfram að fara í vitjanir. Guðmundur var náttúrubarn, alinn upp í torfbæ á Héraði við kvöldvökur og húslestra. Ríkulegar gáfur riðu baggamun fátæktar og hann hélt ásamt æskuvini sínum, Sigurði Blön- dal, til náms í Menntaskólanum á Ak- ureyri. Hann var ósvikinn húmanisti, óvenju víðlesinn og átti vandað bóka- safn. Minnið var traust, ræktað með stöðugum upprifjunum og athuga- semdum, sem hann skráði hjá sér. Ríkri kímnigáfu beitti hann af óbrigð- ulli smekkvísi. Engan þekkti ég sjálf- stæðari í hugsun. Allt var ígrundað, aldrei hrapað að niðurstöðu. Ef ég mætti velja honum eitt orð væri það klettur. Guðmundur hafði mikinn áhuga á þjóðmálum og skrifaði alla tíð mikið um hugðarefni sín í blöð og tímarit. Barnabörnin áttu í honum ótæmandi fjársjóð. Hann miðlaði þeim af Íslendingasögunum, sem hann kunni nánast utan að, sýndi þeim fuglahreiðrin í Heiðmörkinni, ræktaði með þeim trjálund á Reykja- nesi og kartöflur á Garðaholti, stofn- aði með þeim gönguklúbb og hafði alltaf tíma til að hlusta á bollalegg- ingar þeirra og áhugamál. Hlutskipti eiginkvenna héraðs- lækna í erfiðum einmenningshéruð- um var ekki auðvelt. Þar reyndist tengdamóðir mín, Lóa Stefánsdóttir, eiginmanni sínum mikil stoð. Þegar heilsa Guðmundar bilaði af völdum Parkinsonsjúkdóms hjúkraði hún honum heima allt til loka. Með því af- reki veitti tengdamóðir mín manni sínum það sem hann vildi helzt. Að fá að vera heima. Þannig lauk fallegum lífsferli með þeirri reisn og virðingu sem hann átti skilið. Blessuð veri minning míns kæra tengdaföður og vinar. Jóhann Tómasson. Afi minn var gull af manni með stórt hjarta. Trúr Íslendingur sem elskaði landið sitt og íslenska tungu. Hann var höfðingi fjölskyldunnar og stoltur af fólkinu sínu. Aldrei gerði hann upp á milli en gaf hverju okkar ómetanlegar minningar í veganesti fyrir lífið. Afi naut þess að ferðast um landið og skoða náttúruna og söguslóðir. Hann sýndi okkur fáfarnar göngu- leiðir og kenndi okkur að þekkja blóm og fugla, fjöll og steina. Hann var okk- ur hvatning til að varðveita málið okk- ar, rækta það og virða og var mennt- un okkar afkomendanna honum mikið kappsmál. Ljóðaáhuga minn í bernsku var afi fljótur að grípa og nærði mig á ljóðum og gaf mér bækur úr safninu sínu. Við áttum eitt ljóð saman sem reglulega var rifjað upp, limruna um Laxinn sem var svo góður í sér eftir Þorstein Valdimarsson. Skemmtilegur húmor einkenndi afa. Stjórnmál voru mikið rædd sem hann gat gert að hinni bestu skemmt- un. Hláturinn var svo innilegur og brosið svo einlægt. Mamma erfði þennan húmor og enginn fékk hana eins til að hlæja og afi. Það er notalegt að rifja upp með henni sögur af afa. Sérstaklega þótti mér gaman að fylgjast með afa og ömmu í kaffi á sunnudögum, því oft voru þau ósam- mála um málefni líðandi stundar. Þrátt fyrir æsing í umræðunni svar- aði afi alltaf jafnrólega og alltaf hittu svörin beint í mark. Þrátt fyrir skotin sem gengu yfir kaffiborðið á Smára- flötinni sást hversu mikið þau hjónin virtu hvort annað. Amma reyndist afa einstök í veikindum hans. Af mikilli nákvæmni hugsaði hún um hann frá morgni til kvölds. Stundum sagði afi okkur frá því hve natin amma hefði verið í umönnuninni um börnin sín „og ekki er nú öldrunarþjónustan hennar síðri“ bætti hann við síðustu árin. Ef einhver á skilið fálkaorðu, þá er það amma. Þegar ég hugsa um afa, sé ég hann alltaf fyrir mér í frakkanum með hatt- inn sinn. Hann var virðulegur, hóg- vær maður sem aldrei setti sjálfan sig í forgrunn. En nokkrum dögum fyrir andlátið minnti ég hann á hlý orð fólks í hans garð sem ég hafði heyrt og ég sá hversu mikið þau glöddu hann. Afi skráði hjá sér ýmsa reynslu sína frá héraðslæknisárunum, sem er hin mesta spennulesning. Faðir minn hefur sagt mér að afi hafi verið ein- stakur læknir og að hann hafi verið sér fyrirmynd í starfi. Ég var mikil afastelpa. Þegar ég var lítil komu þau tímabil að enginn mátti gera neitt fyrir mig nema afi. Það reyndist afa víst ekki alltaf auð- velt. Eina tilraun gerði hann til að gefa mér hafragraut þar sem graut- urinn endaði alls staðar annars staðar en uppi í mér og notaði afi þetta atvik óspart á mig síðar. Aldrei hef ég upp- lifað aðfangadagskvöld án afa og er ég svo þakklát fyrir að hann gat verið með okkur síðustu jól þó að heilsan leyfði það varla. Afi minn, þú varst elskaður, dáður og virtur. Allar minningarnar okkar saman mun ég geyma í hjarta mínu alla tíð. Ég bið góðan guð að varðveita þig þar til við sjáumst næst. Þín, Guðrún Arna. Í dag kveðjum við fyrrum sam- starfsmann og vin, Guðmund Helga Þórðarson heimilislækni. Guðmundur hóf störf við Heilsugæsluna í Hafn- arfirði, síðar Heilsugæslustöðin Sól- vangi, árið 1974 og lét af störfum eftir afar farsælan starfsferil árið 1994. Áður en ég fór að leysa Guðmund af kynntist ég honum sem heimilislækn- inum mínum. Hann kom mér fyrir sjónir sem traustur og heilsteyptur læknir sem af áhuga og djúpri þekk- ingu á læknislistinni leysti vandamál Guðmundur Helgi Þórðarson ✝ Þorlákur Ó. Snæ-björnsson fæddist í Ólafsvík 23. des. 1921. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 8. mars 2009. Foreldrar hans voru Snæbjörn Þorláks- son, f. 7.8. 1884, d. 19.10. 1974 og Guð- rún María Vigfús- dóttir, f. 28.11. 1886, d 8.5. 1923. Þorlákur var yngstur 4 alsystkina. Hin eru Ásthildur Gyða, f. 6.2. 1911, d. 29.1. 1914, Helga, f. 3.7. 1913, d. 10.2. 2000, og Kristófer, f. 6.5. 1918, d. 1.10. 1997. Hálfsystkini þeirra samfeðra eru Guðrún M., f. 2.2. 1933 og Auðunn, f. 4.8. 1936. Hinn 25.12. 1947 giftist Þorlákur Ásdísi E. Þorvaldsdóttur, frá Sval- vogum við Dýrafjörð, f. 19.2. 1918, d. 24.11. 2007. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Jón Kristjánsson, f. 1976 og Þorlákur Helgi, f. 1983. 4) Sólborg, f. 4.10. 1957, maki Reynir Gunnarsson, börn þeirra eru Sæ- borg, f. 1977, Steinberg, f. 1979, Rebekka Rós, f. 1986 og Snæbjörn Marinó, f. 1987. Langafabörnin eru 23. Á öðru aldursári var Þorláki komið í fóstur hjá Ingibjörgu Jóns- dóttur frá Nýjabæ í Ólafsvík, þeg- ar móðir hans lést, og ól hún Þor- lák upp til 14 ára aldurs, en frá þeim tíma þurfti hann að hugsa um sig sjálfur. Skólaganga Þor- láks var í Ólafsvík og í barnaskól- anum á Arnarstapa en hann var víðlesinn. Hann stundaði sjóinn og var í fiskvinnu í Ólafsvík. Þau Ásdís hófu búskap á Þing- eyri 1945 en fluttu síðar í Stapadal í Arnarfirði árið 1949. Frá árinu 1955 gerðist hann bóndi og vita- vörður í Svalvogum, en hann reri jafnframt á vetrarvertíðum á bát- um frá Þingeryi. Þau fluttu til Þingeyrar 1976 og Þorlákur starf- aði í fiskvinnu meðan heilsan leyfði. Til Reykavíkur fluttu þau á árinu 2002 og bjuggu á Dalbraut 20, en Þorlákur flutti síðan haustið 2008 á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þorlákur verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 12. mars, og hefst athöfnin kl. 15. 29.21. 1873, d. 27.7. 1960 og Sólborg Matthíasdóttir, f. 25.12. 1875, d. 25.12. 1957. Þorlákur og Ás- dís eignuðust 4 börn. Þau eru 1) Gunn- laugur, f. 7.12. 1945, d. 22.2. 2009, maki Þórdís Jeramíasdótt- ir, börn þeirra eru Agnar Þór, f. 1966 Ásdís Emelía, f. 1971 og Steinunn Marta, f. 1981. 2) Ingibjörg, f. 6.9. 1947, sambýlis- maður Hólmgeir Pálmarsson. Ingi- björg var áður gift Sigþóri Gunn- arssyni, börn þeirra eru: Sigmar Örn, f. 1973, og tvíburarnir Gunn- hildur Þorbjörg og Guðrún Snæ- björg, f. 1975. Áður átti Ingibjörg Þórdísi Haf- rúnu Ólafsdóttur, f. 1967. 3) Matt- hildur, f. 25.7. 1951, maki Hilmar Viktorsson, börn þeirra eru Hildur Ísfold, f. 1973, Helena Dögg, f. Ég heyri engils vængjaþyt og ljósin helgu sindra. Þá genginn þú á æðri vit þar ljómar um þig tindra. Alsæll ætíð hvílir nú eiginkonu og syni hjá. Umvafinn í traustri trú ástúð, sem að þau þér ljá. Sem barn, þú söngst mér fagurt lag svo svefn í faðmi bærir. Sú minning lifir mér í dag, mynd sem hjartað hrærir. Barnið í mér skynjar sárt Söknuð vegna fráfalls þín. En fullvissan um þína sátt æ, græðir hjartasárin mín. Elsku pabbi minn, þakka þér fyrir allt. Ég veit að nú ertu sáttur hjá mömmu og Gulla bróður. Hvíl í friði, þín dóttir. Matthildur Ólöf. Hann Þorlákur tengdapabbi var mjög lífsglaður og dagfarsprúður maður. Hann bar þess merki að hafa fengið gott uppeldi í æsku hjá Ingi- björgu fósturmóður sinni. Sjórinn var honum hugleikinn, enda stundaði hann sjómennsku margar vertíðir bæði frá Ólafsvík og síðar frá Þingeyri eftir, að þau Ásdís Þorvaldsdóttir hófu búskap. Hann fylgdist vel með aflabrögðum á lands- vísu og var vel að sér varðandi báta og togara frá stríðslokum og allt fram á þennan dag. Þorlákur hafði stálminni bæði á tölur og mannanöfn, ef okkur vantaði nákvæmar upplýsingar var nóg að spyrja Þorlák. Hann fylgdist mjög vel á öllum sviðum þjóðlífsins allt til dauðadags. Hann var fastur fyrir og hafði ákveðnar skoðanir á þjóðmálum. Þá var hann mikill áhugamaður um ræktun sauðkindar- innar. Snyrtimennska var honum í blóð borin og það var aðdáunarvert hve vel hann hirti húsin, vitann og vél- arnar í Svalvogum. Þau voru mjög samhent og sam- rýnd hjón, þau Ásdís og Þorlákur. Þegar heilsu Ásdísar hrakaði, þá annaðist Þorlákur Ásdísi af mikilli al- úð þar til yfir lauk. Síðustu mánuðina dvaldist hann á Hrafnistu í Hafnar- firði og undi hag sínum vel. Honum var annt um afabörnin og langafa- börnin sín og fylgdist vel með þeim öllum. Nú að leiðarlokum er góðs manns að minnast. Hann var góður og þol- inmóður gagnvart fjölda ungmenna er voru hjá honum í sveit í Svalvog- um. Þau fengu góða leiðsögn hjá Þor- láki, sem hefur nýst þeim vel á lífs- leiðinni. Hilmar Viktorsson. Elsku afi, mikið er það skrítið að þú sért farinn frá okkur, þú kvaddir svo skyndilega. Við eigum margar yndislegar minningar um þig og við þökkum fyrir þær. Þú varst alltaf svo góður og hugsaðir alltaf um þína. Það voru óteljandi dagarnir sem við barnabörnin fengum að dvelja hjá ykkur ömmu í litla húsinu ykkar á Þingeyri, þaðan eigum við okkar bestu minningar sem munu ylja okk- ur um ókomin ár. Þrátt fyrir sorgina sem er í hjarta okkar finnum við fyrir gleði því við vitum að núna ertu hjá henni ömmu. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta, elsku afi. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Við sjáumst aftur. Rebekka Rós, Snæbjörn Marinó og Ásthildur Gyða. Elsku afi okkar. Kallið er komið og það kom snögglega. Þegar kemur að kveðjustund rifjast upp margar góð- ar minningar. Þú varst svo yndisleg- ur afi, rólegur, ljúfur og góður. Þegar við fengum að gista hjá ykkur ömmu þá máttum við fá allt það sem við vildum, hvort sem það var matur eða sætindi. Afmælin þín á Þorláksmessu voru líka hátíð í okkar augum. Þá fengum við að vaka svo lengi og fara í afmæli til afa. Oft fengum við að skjótast í búðina sem þá var opin til ellefu um kvöldið að kaupa ís eða ávexti. Mikið var það stórkostlegt að hlaupa í búðina svona seint við þetta hátíðlega tilefni og í minningunni var alltaf jólasnjókoma. Þetta var þinn dagur en samt svo mikið okkar dag- ur líka vegna þess að við fengum svo mikið að taka þátt í honum með ykk- ur ömmu. Við munum svo vel þegar þú varst að koma heim úr vinnunni þegar við vorum bara litlir krakkar. Þá komstu inn og settist í stólinn þinn og við færðum þér kaffi. Það fannst okkur rosalega gaman og ekki var verra að fá að dýfa molasykri í kaffið þitt og borða hann svo með bestu lyst. Stundirnar með þér og ömmu eru okkur ómetanlegar og við eigum eft- ir að ylja okkur við ljúfar minningar. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Það er huggun harmi gegn að nú ert þú komin til ömmu sem þú unnir svo heitt og elsku Gulla frænda sem kvaddi okkur fyrir svo stuttu síðan. Við erum þess fullviss að nú gangið þið amma hönd í hönd, loksins saman á ný. Eftir ykkur stendur yndisleg fjöl- skylda sem hlúir nú hvert að öðru og heldur minningu ykkar á lofti um ókomin ár. Þorlákur Snæbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.