Morgunblaðið - 12.03.2009, Qupperneq 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
✝ Unnur Nikulás-dóttir Eyfells
fæddist í Reykjavík
21. janúar 1924. Hún
lést á Landspít-
alanum 26. febrúar
2009. Foreldrar
hennar voru Ragna
Stefánsdóttir hús-
móðir, f. 6. 4. 1889, d.
29.3. 1974 og Nikulás
Friðriksson, starfs-
maður Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, f.
29.5. 1890, d. 6.6.
1949. Systkini Unnar
voru: Stefán, Ragnheiður og Einar
sem nú eru látin, en eftir lifa Hall-
dór, Sæmundur og Halla.
Unnur kynntist árið 1942 manns-
efni sínu Einari Eyfells, f. í Reykja-
vík 12.1. 1922, d. 7.9. 1994 og giftu
þau sig í Berkeley í Kaliforníu árið
1946. Foreldar hans voru Ingibjörg
Einarsdóttir Eyfells húsmóðir, f.
4.12. 1895, d. 24.2. 1977 og Eyjólf-
ur J. Eyfells listmálari, f. 6.6. 1886,
d. 3.8. 1979. Dætur Unnar og Ein-
ars eru. 1) Ingibjörg, f. 10.7. 1948.
Dóttir hennar og Gísla Aðalsteins
Pálssonar, f. 16.10. 1944 er Unnur
Silfá Eyfells, f. 1983. Sonur hennar
og Baldurs Freys Gústafssonar, f.
1975 er Ófeigur Ingi, f. 2008. 2)
Margrét Kristín, f. 16. 5. 1951, gift
Karli Davíðssyni, f. 4.11. 1949. Syn-
giftu þau sig í Berkeley Kali-
forníu árið 1946. Eftir heimkom-
una ári síðar hófu þau búskap að
Skólavörðustíg 4 C og þar fædd-
ust dæturnar tvær. Unnur var
heimavinnandi, en tók þátt í fé-
lags- og menningarlífi. Hún lék
undir á píanó í ballett hjá Sigríði
Ármann, þau hjónin voru ein af
stofnendum Þjóðdansafélags
Reykjavíkur 1951 og ferðuðust
þau víða um heim með sýningar
og var Unnur þá jafnan í fremstu
röð, einkum sem forsöngvari. Hún
stundaði söngnám hjá Maríu
Markan og Sigurði Demetz
Franzsyni. Árið 1957 fluttu þau
Einar og Unnur í Selvogsgrunn
10, þar sem þau áttu heimili sitt
alla tíð. Húsið var teiknað af bróð-
ur Einars, Jóhanni Eyfells arki-
tekt sem búsettur hefur verið í
Ameríku. Einar og Unnur voru
mikið útivistarfólk og ferðuðust
þau mikið bæði innanlands sem
utan. Þau stunduðu bæði skíða- og
skautaíþróttina af kappi og gam-
an var að sjá til þeirra í valsi á
ísnum. Þau voru með í stofnun
Skíðaskólans í Kerlingarfjöllum
og eftir að Einar féll frá vann
Unnur á sumrin sem pottadís í
heitu pottunum þar og þá var
ósjaldan tekin aría. Unnur starf-
aði síðustu árin með Gerðuberg-
skórnum, bæði sem söngvari, und-
irleikari og stjórnandi. Þá söng
hún með Vinabandinu og lék und-
ir við messur hjá eldri borgurum
víða í Reykjavík.
Útför Unnar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag 12. mars og
hefst athöfnin kl. 11.
ir þeirra eru. a) Ein-
ar Þór, f. 1969, kona
hans er Auður Krist-
ín Ebenezersdóttir, f.
1969. Börn þeirra
eru Arnaldur Karl, f.
1998, Eyjólfur Jó-
hann, f. 2000 og
Ólafía Elísabet, f.
2003. b) Karl Freyr,
f. 1972, kvæntur Sig-
ríði Örvarsdóttur, f.
1972. Börn þeirra
eru Margrét Assa, f.
1993, Katla, f. 1996
og Jökull, f. 2000. c)
Ingimar Örn, f. 1975, kvæntur
Guðrúnu Björgu Björnsdóttur, f.
1971. Börn þeirra eru Arnar Már,
f. 1993, Ýmir, f. 1996, Birna Björg,
f. 1998, Sigurður Orri, f. 2003 og
Helga Margrét Eyfells, f. 2007.
Unnur ólst upp á Hringbraut 26
og átti hún góðar minningar frá
æskuárum sínum. Hún var borg-
arbarn, en var lítt fyrir sveitadvöl.
Gekk hún hefðbundna skólagöngu
en einnig stundaði hún píanónám.
Tjörnin var mikill samkomustaður
á köldum vetrarkvöldum og þar
kynntist hún eiginmanni sínum
Einari Eyfells. Árið 1942 hélt Ein-
ar til Ameríku til náms í vélaverk-
fræði og var Unnur heima þrjá
vetur í festum. Að stríðinu loknu
hélt hún utan með herflugvél og
Í dag kveðjum við elskulega
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu, hana Unni Eyfells.
Af því tilefni langar mig að
þakka henni og Einari fyrir að taka
mér opnum örmum inn í sína fjöl-
skyldu á sínum tíma og að hafa tek-
ið sonum mínum og öllu okkar fólki
með hlýju og ást.
Unnur var glæsileg og yndisleg
kona sem hafði á þessari lífsleið
upplifað svo margt með honum
Einari sínum og auðvitað dætrun-
um Ingibjörgu og Margréti.
Mér er um megn í stuttu máli að
fara yfir lífshlaup þeirra hjóna.
Það verður vonandi gert af betri
pennum en mér.
Unna amma eins og við kölluðum
hana alltaf var algerlega gersemin
hans afa Einars. Hún var fegursta
og sú tignarlegasta.
Söng best, og var … Það er eig-
inlega best að stoppa hér, listinn er
svo langur.
Ég á ekki nógu sterk orð til að
þakka Unni og Einari fyrir allt það
góða og skemmtilega á lífsleiðinni.
Ég vil tileinka þeim texta Gunn-
ars Dal, föðurbróður míns, sem
segir svo fallega um vináttuna í
einni bók sinni.
Orð milli vina gera daginn góðan.
Það gleymist ei, en býr í hjarta mér,
sem lítið fræ.
Það lifir og verður að blómi og löngu
seinna góðan ávöxt ber.
Jakobína Johnsen var Vestur-Ís-
lendingur sem fluttist til Winnipeg
og var mikill vinur Einars og Unn-
ar þegar þau voru við nám í Am-
eríku.
Hún gaf út ljóðabókina Kertaljós
og eitt ljóðið í þessari bók á vel við
nú.
Ég man þig bezt með bros í augum
er bauðst þú gestum inn.
Hve hollt og bjart í húsi þínu
og hlýtt við arinn þinn
Hver vinur velkominn.
Kærar þakkir fyrir allt.
Þinn tengdasonur,
Karl.
Elsku amma okkar og
langamma, þú ert farinn til afa.
Þetta var það fyrsta sem ég hugs-
aði þegar ég frétti að þú værir far-
in. Það er skrítið að hugsa til þess
að þú sért ekki með okkur lengur,
alla tíð hefur þú verið til staðar fyr-
ir okkur, elsku amma, það var eins
sjálfsagt og að sólin kæmi upp á
morgnana. Ef allir hefðu sömu sýn
á lífið og tilveruna og þú hafðir
væri heimurinn betri staður, þú
dæmdir aldrei neinn og tókst öllum
fagnandi eins og þeir voru. Það
skipti engu máli hvernig viðraði, þú
varst alltaf með sól í hjarta og
tókst á móti manni á svölunum, og
varst búin að kveikja á kertaljósi í
glugganum þínum. Þær eru marg-
ar minningarnar og sögurnar sem
ég mun halda í heiðri, og segja
börnunum mínum frá. Þau Arnar
Már, Ýmir, Birna Björg og Sigurð-
ur Orri munu aldrei gleyma henni
langömmu sinni, og mun ég segja
henni Helgu Margréti Eyfells sög-
ur af þér og sýna henni myndir.
Það fá ekki allir að eiga ömmu á ní-
ræðisaldri sem er skautadrottning,
söngvari í hljómsveit, súpermódel,
heiðursborgari og lífskúnstner.
Að hafa fengið að kynnast þér
hefur verið okkur heiður og gert
okkur að betri manneskjum, við
kveðjum þig með trega, elsku
amma og langamma okkar, með
þínum eigin orðum sem lýsa þér
best.
Ég lyfti fólki upp með söng mínum,
ég er heilsuhraust og ung í anda,
ég sé gleðina í lífinu.
Ég er sérstök kona.
Ingimar Örn Karlsson,
Guðrún Björg Björnsdóttir,
Arnar Már, Ýmir, Birna
Björg, Sigurður Orri, og
Helga Margrét Eyfells.
Elsku amma.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um þig sem ég er þakklát
fyrir.
Það var alltaf svo gaman að
koma til ykkar afa á Selvogsgrunn-
inn, þú spilaðir á píanóið og söngst
fyrir mig á meðan afi kenndi mér
að kveikja upp í kamínunni. Svo
leyfði hann mér að standa á tánum
á sér og við dönsuðum saman við
undirleik þinn.
Alltaf varstu tilbúin að segja mér
sögur, um uppvaxtarár þín, fyrstu
kynni ykkar afa, tíma ykkar í Am-
eríku og svo mætti lengi telja.
Þessar sögur munu lifa með okkur
um ókomna tíð og barnabörnin mín
eiga eftir að segja sínum börnum
frá ævintýrum þínum.
Þú varst alltaf svo góð við mig og
árin sem við höfum búið saman
verða mér alltaf kær. Oft vorum við
eins og tvær gamlar hænur og ég
get ekki annað en brosað þegar ég
minnist ísskápsdeilunnar okkar,
þegar við breyttum hitastiginu sitt
á hvað því við gátum ekki verið
sammála um hvað hann ætti að
vera kaldur og þegar þú gekkst á
eftir mér um húsið og slökktir öll
ljós sem ég skildi eftir kveikt. Æ,
elsku amma, þú varst yndisleg.
Eftir að sonur minn fæddist var
eins og það kæmi nýr kafli í sam-
band okkar. Þú stóðst þétt við bak-
ið á mér á erfiðum tímum og það
verð ég þér ævinlega þakklát fyrir.
Þér þótti svo vænt um hann
Ófeig minn, vildir alltaf leyfa hon-
um að sitja hjá þér og syngja fyrir
hann – þú sagðist vera fyrsti söng-
kennarinn hans og varst alveg viss
um það að hann yrði „músíker“.
Ég veit að nú ert þú komin til afa
en samt á ég erfitt með að halda
aftur af tárunum, ég sakna þín svo
mikið.
Stundum finnst mér ég heyra
röddina þína og stundum finnst
mér ég sjá þig sitja í Frúardyngj-
unni og í augnablik gleymi ég því
að þú sért farin. Mig langar svo að
setjast hjá þér, heyra þig segja
mér hvert þú fórst að syngja í dag
og segja þér hvaða nýju uppgötvun
sonur minn gerði á meðan.
En ég veit að þú kvaddir á þeim
tíma sem þér fannst réttur. Þú
vildir alltaf vera „síung“ og það
varstu fram á síðasta dag.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Úr vísum Vatnsenda-Rósu.)
Elsku amma mín, ég elska þig.
Þín,
Unnur Silfá Eyfells.
Amma er dáin og ég gleðst yfir
því að hún fékk að fara frekar
fljótt. Hún missti skyndilega þrótt
og ég fann í fyrsta sinn frá henni
þá strauma að hún væri tilbúin til
að yfirgefa sviðið og þið sem þekkt-
uð hana vitið að þar vildi hún alltaf
vera óháð stað og stund. Því er ég
sáttur við brotthvarf hennar og þó
ég hafi ekki náð á síðustu metr-
unum að halda í höndina á henni,
horfa í augun á henni og segja
henni hvað ég elskaði hana hreint
og mikið, þá held ég að hún hafi vit-
að hvern hug ég bar til hennar og
hversu ólýsanlega mikið hún og afi
hafa gefið mér og mínum í gegnum
árin.
Amma var brothætt sál og brast
oftar en ekki í grát þegar við rædd-
um það sem henni lá á hjarta en
okkar tengsl urðu dýpri og nánari
eftir sem árin liðu og sérstaklega
eftir að við fjölskylda mín fluttum
heim frá Danmörku, skömmu eftir
Unnur Nikulásdóttir
Eyfells
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTJANA S. MARKÚSDÓTTIR
frá Súðavík,
til heimilis að Þórðarsveig 3,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 2. mars, verður jarðsungin
frá Guðríðarkirkju í Grafarholti föstudaginn
13. mars kl. 15.00.
Ásdís Magnúsdóttir, Jón Sigurðsson,
Markús K. Magnússon, Soffía Hólm,
Karl G. Karlsson, Dagbjört Jónsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
BJARGEY FJÓLA STEFÁNSDÓTTIR,
Norðurbrú 5,
Garðabæ,
áður til heimilis í Ásgarði 149,
Reykjavík,
andaðist á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn
5. mars.
Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 13. mars kl. 13.00.
Ágúst Guðmundsson,
Robert J. Severson,
Margrét Ágústsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson,
Kristján Ágústsson, Stefanía Sara Gunnarsdóttir,
Ágúst Björn Ágústsson, Þórdís Björg Kristinsdóttir,
Bjarni Ágústsson, Þórdís Lára Ingadóttir
og fjölskyldur.
✝
ÁSGEIR SIGURÐSSON
frá Birtingaholti,
búsettur í Sarasota, Flórída,
lést í Sarasota miðvikudaginn 4. mars.
Jóna Símonardóttir
og aðstandendur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
LIV SYNNÖVE ÞORSTEINSSON,
áður Foss-Eriksen,
Kleppsvegi 120,
Reykjavík,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítala Hring-
braut sunnudaginn 8. mars.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 18. mars kl. 13.00.
Ellen M. Ingvadóttir, Þorsteinn Ingi Kragh,
Gyða M. Ingvadóttir, Sigþór G. Óskarsson,
Kristín Ingvadóttir, Einar V. Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
ÓSKAR GUÐJÓNSSON
frá Uxahrygg,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu
sunnudaginn 8. mars.
Útförin fer fram frá Oddakirkju laugardaginn
14. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Sveinn Guðjónsson,
Bjarni Guðjónsson,
Gróa Guðjónsdóttir.