Morgunblaðið - 12.03.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.03.2009, Qupperneq 36
36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009 Fólk ÞRETTÁN myndlistarnemar í Listaháskóla Ís- lands ætla að vera með Vesen á Nýlistasafninu á morgun, föstudaginn 13. mars. Vesen þetta felur í sér gerninga og athafnir ýmsar þar sem að líkaminn er miðja alls þó stuðst verði við aðskotahluti í sumum tilvikum. Vesenið er lokahluti af gerningaáfanga sem listamaðurinn Erling T.V. Klingenberg kenndi. „Þau vinna algjörlega út frá líkamanum, nota hann í gerningnum, sumir nota önnur tæki en líkaminn er náttúrlega miðjan. Lifandi gern- ingar ganga út frá líkamanum, hann er notaður sem listaverk,“ segir Erling. Á námskeiðinu hefur saga þessa lifandi list- forms verið skoðuð náið. „Svona gerningar byrj- uðu á sjöunda og áttunda áratugnum en það eru ekki margir sem fást við þá í dag. Þó að meg- ináherslan sé á að þetta sé lifandi er fín lína milli vídeólistar, gerningalistar og ljósmyndar.“ Myndlistarmennirnir sem taka þátt eru: Axel Valur D. Diego, Bryndís Björnsdóttir, Gustav Samrelius, Jessica T. Sanderheim, Leó Stef- ánsson, Logi Höskuldsson, Margrét Rut Eddu- dóttir, Nora Elisabeth Matthewes, Ragnhildur Jóhannsdóttir, Sigríður Liv Ellingsen, Sindri Snær S. Leifsson, Veronika Viková og Þór- gunnur Oddsdóttir. „Þau eru öll með sinn gerning en þeir munu eflaust fléttast hver ofan í annan. Við köllum þetta aðskilda samvinnu.“ Vesenið hefst í Nýlistasafninu kl. 18 á morgun og er aðgangseyrir enginn. ingveldur@mbl.is Þrettán nemendur með vesen á Nýlistasafninu Dæmigert vesen Vesenið er lokahluti af gerningaáfanga nemendanna í LHÍ.  Að undanskildum Bubba Mort- hens og Erpi Eyvindarsyni hafa fá- ir popparar nýtt sér þann efnivið sem í kreppunni býr. Nú hefur ann- ar tónlistarmaður bæst í þann góða hóp og „sent“ frá sér kreppuóð sem ætti að ylja mörgum um hjartaræt- ur. Hér er að sjálfsögðu átt við Sverri Stormsker sem hefur sett saman íslenskan texta við lag Pa- per Lace „The Night Chicago Died“. Lagið heitir „Þann dag er Klakinn dó“ í flutningi Sverris en honum til halds og trausts í laginu er enginn annar en 80’s hetjan og fyrrum söngvari Rickshaw, Rich- ard Scobie. Þess má geta að síðast þegar þeir kumpánar leiddu saman hesta sína var það í laginu „All- staðar er fólk“ fyrir um 20 árum. Nýja lagið kemur víst út á sólóplötu Sverris sem væntanleg er með haustinu en þangað til geta áhuga- samir hlýtt á lagið á bloggsíðu Sverris, stormsker.blog.is. Kreppuóður Sverris Stormskers Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG held að myndin sé orðin nokkuð góð, þótt ég segi sjálfur frá, og hún er eiginlega komin fram úr væntingum. Hún er full af drama og pólitísku náttúrulífsefni. Sumt af því er sláandi og sumt álíka krassandi og fengitími í mynd eftir Attenborough,“ segir Andri Snær Magnason um heim- ildarmyndina Draumalandið sem verður frumsýnd hinn 8. apríl næstkomandi. Myndin er lauslega byggð á samnefndri bók Andra sem kom út fyrir nokkrum árum og tók á virkjana- og umhverf- ismálum á Íslandi með mjög gagn- rýnum hætti. Andri segir myndina hins vegar vera nýtt og sjálfstætt verk. „Það var náttúrulega lagt af stað með Draumalandið, við fylgj- um mörgum þráðum en að öðru leyti er þetta sjálfstætt verk.“ Frá mömmu og afa Leikstjórar myndarinnar eru tveir, þeir Þorfinnur Guðnason og Andri. „Þetta er viðamikið verk, við fórum um allt land og rúmlega það í tökur og heimildarleit,“ út- skýrir Andri. Myndin hefur verið í vinnslu í heil þrjú ár sem að sögn Andra er vissulega nokkuð langur tími. Hann segir hins vegar að þetta langa ferli hafi líklega gert mynd- ina betri en ella. „Þegar banka- hrunið varð ætluðu til dæmis allir að fara að gera heimildarmyndir um það. En maður höndlar ekkert svona stóra atburði á meðan þeir eru að gerast, þá er ekki komin yfirsýn.“ Þeir Þorfinnur og Andri viðuðu að sér myndefni héðan og þaðan, og er sumt af því allt að 60 ára gamalt. „Við erum líklega með einhverjar flottustu náttúrulífs- myndir sem hafa verið teknar hér á landi, og sumar þeirra eru tekn- ar á stöðum sem eru horfnir í dag. Við erum líka með gamlar myndir úr kvikmyndasafninu og úr heima- söfnum, til dæmis notum við myndir sem bæði mamma og afi tóku.“ Best á stóra tjaldinu Draumalandið verður bæði sýnd í Háskólabíói og í Smárabíói, sem að sögn Andra er kannski svolítið sérstakt. „Það var gerð svona hnakkaprufa, við fengum nokkra menn sem höfðu ekkert pælt í svona málum til að horfa á mynd- ina, og þeir voru alveg gapandi. Þannig að hún verður líka í Smárabíói,“ segir Andri og bætir því við að hann sé nokkuð bjart- sýnn á góða aðsókn. „Maður veit svo sem aldrei, en þessi mynd virkar og hefur sterk tilfinn- ingaleg áhrif á fólk. Henni er ætl- að að vera fyndin og skemmtilegt, en um leið er hún dálítil hroll- vekja.“ Myndin er 90 mínútna löng og er að mestu á íslensku, þótt nokk- ur viðtöl í henni séu á ensku. Þul- ur er Helga Jónsdóttir. „Þetta er með stærri heimild- armyndum sem hafa verið gerðar hér á landi og maður á að sjá hana í bíói. Hún nýtur sín lang- best á stærsta tjaldinu í Há- skólabíói,“ segir Andri að lokum. Hrollvekja Andra Snæs  Heimildarmyndin Draumalandið verður frumsýnd hinn 8. apríl næstkomandi  „Fyndin og skemmtileg, en um leið dálítil hrollvekja,“ segir höfundurinn Morgunblaðið/Ómar Áhrif „Maður veit svo sem aldrei, en þessi mynd virkar og hefur sterk til- finningaleg áhrif á fólk,“ segir Andri Snær Magnason um Draumalandið. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÞETTA sló í gegn og fólk klapp- aði og hrópaði á öllum sýning- unum,“ segir Dýri Jónsson, fram- kvæmdastjóri Vesturports, um uppsetningu leikhópsins á Ham- skiptunum í Hong Kong dagana 19. til 22. febrúar. Upphaflega stóð til að sýningarnar yrðu þrjár en í ljósi mikillar aðsóknar var þeirri fjórðu bætt við og því sáu tæplega 5.000 manns sýninguna í Hong Kong. Uppsetningin var hluti af leiklist- arhátíðinni Hong Kong Arts Festi- val og var sýnt í The Hong Kong Academy for Performing Arts. Það var 12 manna hópur sem fór til Hong Kong, þar af átta Íslend- ingar, en íslenskir leikarar í upp- setningunni voru þau Gísli Örn Garðarsson, Ingvar E. Sigurðsson og Lára Sveinsdóttir sem leysti Nínu Dögg Filippusdóttur af hólmi. Líkamlegt afrek Sýningin fær mjög góða dóma í tímaritinu Time Out Hong Kong og gefur gagnrýnandinn, Hamish McKenzie, fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Fer hann meðal ann- ars mjög fögrum orðum um frammistöðu Gísla Arnar Garð- arssonar í aðalhlutverkinu. „Bara líkamlegt afrek hans í hlutverki skordýrsins Gregors gerir það þess virði að kaupa miða á þessa sýn- ingu ,“ segir McKenzie meðal ann- ars. „En það verður að hrósa hin- um leikurunum líka því þeir standa sig allir mjög vel. Hver leikari er sannfærandi í túlkun sinni á hverri þessara gölluðu, flóknu og eig- ingjörnu persóna.“ Hamskipti Vesturports slógu í gegn í Hong Kong Ljósmynd/Þjóðleikhúsið - Eddi Líkamlegt Gagnrýnandi Time Out hrósar Gísla Erni Garðarssyni í hástert. Fá fjórar stjörnur af fimm mögulegum í Time Out www.vesturport.com Bókin Draumalandið kom nýver- ið út í Bretlandi og hefur Andri haft nóg að gera við að svara er- lendum blaðamönnum í kjölfar- ið, enda finnst þeim sérstakt að nokkur skuli kalla Ísland „draumaland“ eftir það sem á undan er gengið. „Núna eru einhver komment í nýjasta New Yorker, og svo hafa komið símtöl frá Financial Tim- es, New York Times, Der Spie- gel, Wall Street Journal, Die Zeit, Die Welt, Harpers, Dagens Nyheter og Dan Rather Reports. Maður reynir bara að vera kurt- eis, smá grimmur, en skilja eftir smá von um að þetta reddist,“ segir Andri. Fjölmiðlafulltrúinn  Eins og komið hefur fram spýttu Paparnir í lófa á dögunum og tóku upp plötu þar sem helstu smellir Gylfa Ægissonar voru teknir traustum Papa-tökum. Gylfi er þó ekki eina kempan sem kemur við sögu í endurkomu Papanna því Hemmi Gunn mun tala inn á aug- lýsingar fyrir sveitina auk þess að ljá sveitinni rödd sína á tónleikum með einkar sérstökum hætti. Papar leita til sér reyndari manna  Ný heim- ildamynd um ís- lenska umhverf- isverndarbaráttu Nattura– Summer 2008 var gefin út í gær á iTunes og Today (One Little Indian). Myndin fjallar um andstöðuna við áframhaldandi uppbyggingu stór- iðju á Íslandi og hefur að útgangs- punkti Náttúrutónleikana sem haldnir voru undir beru lofti í Laugardalnum í í fyrrasumar þar sem Björk, Sigur Rós og Ólöf Arn- alds tróðu upp. Íslensk umhverfis- mynd á iTunes Sjá má stikluna úr Draumalandinu á mbl.is í dag. MBL.IS | SJÓNVARP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.