Morgunblaðið - 12.03.2009, Side 38
HANDTÖSKUR eru nauðsynlegur fylgi-
hlutur flestra kvenna og sumra karla. Und-
anfarið hafa handtöskur verið mjög, mjög
stórar og halda þær áfram að vera svo þetta
árið. Pínulitlar töskur, sem eru rétt fyrir
farsímann og varalitinn, sáust líka nokkuð á
pöllunum á tískuvikunum í helstu stór-
borgum heimsins í febrúar. Áberandi var að
töskur sem eru með ól til að setja yfir öxlina
eða á ská yfir sig sáust ekki mikið, heldur
eru þær flestar skjóðulegar með litlum
höldum og á konan að danglast með þær í
annarri hendinni til hliðar við sig. Sama var
upp á teningnum hjá körlunum, þeirra tösk-
ur litu flestar út eins og gamlar læknatösk-
ur, rúmgóðar en fyrirferðarmiklar.
Dýramynstur sást mikið á töskum
kvenna, það er alltaf mjög smart en vara-
samt. Hafa skal sérstaklega í huga með
hverskonar klæðnaði slík
taska er borin. Annars
virðist brúnt og svart að-
alliturinn sem fyrr á
handtöskum, lof sé fyr-
ir það.
ingveldur@mbl.is
Tískulegar
tuðrur
Baby Phat Það má varla
á milli sjá hvort er
stærra, kjóllinn eða
taskan.
Topp taska Mjög flott hliðartaska með smá
hlébarðamynstri frá Rebeccu Taylor.
Nina Ricci Breið taska og
mjóir leggir.
Læknir? Karlmannleg taska
hjá Antonio Miro.
Klassísk Snákaskinntaska hjá
John Richmond.
Flottheit Hlébarðamynstur
eftir kanadíska hönnuðinn
DSquared2.
Litskrúðug Pamela
Anderson sýndi
hönnun Vivienne
Westwood .
John Richmond Það verður að
passa að týna þessari ekki.
Reuters
Box Kassalög-
uð taska hjá
Christian
Lacroix.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009