Morgunblaðið - 12.03.2009, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2009
NÚ fer að bresta á með miklu Watch-men-æði, en kvikmyndin, byggð ásögu Alan Moore, verður frumsýnd á
morgun. Mikil spenna hefur verið að byggj-
ast upp fyrir myndinni, jafnt hjá almennum
kvikmyndaáhugamönnum sem og myndasög-
unörðum og næsta víst að síðarnefndi hóp-
urinn er tvístígandi um það hvort mæta skuli
eður ei. Watchmen er sem heilagt gral í huga
þess hóps en einróma samþykkt er um það í
heimi hér að um sé að ræða mesta þrekvirki í
sögu myndasagna, fyrr og síðar. Sagan hefur
verið mærð, nánast á slig, allt síðan hún kom
fyrst út árin 1986 og 1987. Og frægt er þegar
Time valdi hana eina af hundrað bestu skáld-
sögum á ensku árabilsins 1923-2005. Var hún
eina myndasagan á listanum. Er nema von að
aðdáendur séu því með lífið í lúkunum?
Það er hins vegar öruggt að höfundurinn
sjálfur, Alan Moore, er ekki með lífið í lúk-
unum. Hann hefur ekki skipt sér af Holly-
wood-yfirhalningu sögunnar og ætlar ekki að
sjá myndina. Hann hefur enda lýst því yfir að
sagan sé raunverulega ókvikmyndunarhæf,
sagan hefði verið gerð m.a. til að sýna fram á
hvað hægt væri að gera í myndasögu sem
ekki væri hægt að gera í kvikmyndum eða
bókum.
Myndasöguhöfundar – og lesendurmyndasagna – eiga það til að taka á sig
mynd sérstaks ættbálks þar sem sérstakar
venjur þrífast. Tungutak er með sérstökum
hætti o.s.frv. Alan Moore tekur þessa kjör-
mynd sem fólk hefur af „myndasögunörðum“
hins vegar mun lengra, eiginlega í einhvern
handanheimi. Að segja Moore dularfullan er
léttvæg lýsing á manninum. Hann er eig-
inlega meira eins og teiknisöguhetja sjálfur,
svo langt frá norminu er allt líf og hættir
þessa sérlundaða snillings.
Já, Moore er sveipaður bæði goðgá og
göldrum, það er óhætt að segja. Alan Moore
er enginn venjulegur maður og saga hans
eiginlega lygileg. Hann býr enn á fæðing-
arstað sínum, Northampton, Englandi. Þar
var hann var rekinn úr skóla sautján ára að
aldri fyrir að versla með LSD. Hann er græn-
metisæta, anarkisti og galdrakarl og hefur
hann sinnt því síðasttalda í æ meiri mæli hin
síðustu ár, aðdáendum frumlegra og út-
úrspekúleraðra myndasagna til mikillar ar-
mæðu.
Ferill Moorer hófst á áttunda áratugnummeð neðanjarðarsælum teiknisögum
fyrir hin og þessi tímarit, m.a. NME. Orðstír
hans óx svo jafnt og þétt og hróðurinn barst á
endanum vestur um haf en myndasöguhúsið
DC Comics réð hann þá til að skrifa Swamp
Thing. Þetta var árið 1983 en sagan var þá á
fallanda fæti, óvinsæl nokk og einkar form-
úlukennd. Moore tók sig til og dýpkaði svo
um munaði á fenjaviðrininu og það fór að
seljast von úr viti. Útgefendur Moore hófu að
ráða evrópska höfunda í meiri mæli í kjölfar-
ið. Moore blómstraði um þetta leyti, skrifaði
til dæmis eina Batman-sögu, The Killing
Joke, sem þótti (og þykir) mikið meist-
araverk.
Þetta var árið 1986, sama ár og hann réðist
í Watchmen, saga sem gerði hann að stjörnu.
Myndasaga sem listrænt form fyrir fullorðið,
bjargálna fólk var staðreynd.
Eins og nærri má geta hlaut að koma því að
Moore færi að líða illa í markaðsvænum meg-
instraumnum. Eftir að hafa klárað V for Ven-
detta árið 1989 hætti hann hjá DC og árið
1993 gaf hann t.a.m. út söguna 1963, sem ber
með sér blöndu af heiðrun og háði til handa
gömlum teiknimyndasögum.
Moore er fjölhæft ólíkindatól og hefurauk myndasagna samið ljóð, skáldsög-
ur, kvikmyndahandrit og greinar (mikið til
um galdra). Hann skrifaði líka ítarlega grein
um sögu, þróun og stöðu kláms. Hann hefur
einnig leikið í sjónvarpi og í kvikmyndum.
Moore hefur þá gert þónokkuð af því að
semja og flytja tónlist og kemur reglulega
fram með hópnum The Moon and Serpent
Grand Egyptian Theatre of Marvels þar sem
ljóðaspuni og galdraskotnir gjörningar eru í
aðalhlutverki. Eins og maðurinn sagði: Ein-
mitt!
Sá stríðhærði
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
Meistarinn Moore lítur út eins og blanda af Raspútín og spænskum óðalsbónda frá 16. öld.
» Að segja Moore dularfullaner léttvæg lýsing á mann-
inum. Hann er eiginlega meira
eins og teiknisöguhetja sjálfur,
svo langt frá norminu er allt líf
og hættir þessa sérlundaða
snillings.
arnart@mbl.is
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
Fanboys kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
He’s just not that into you kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Hotel for dogs kl. 5:30 LEYFÐ
The Pink Panther 2 kl. 8 - 10 LEYFÐ
Bride wars kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
Frost/Nixon kl. 5:30 B.i. 12 ára
The Wrestler kl. 10:30 B.i.14 ára
Vicky Cristina Barcelona kl. 5:50 LEYFÐ
The Reader kl. 8 - 10:20 B.i.14 ára
Frá leikstjóra The Hours og Billy Elliott
- S.V., MBL- L.I.L.,TOPP5.-FBL.IS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
750k
r.
- S.V., MBL
- DÓRI DNA, DV8ÓSKARSVERÐLAUN
Þ A R Á M E Ð A L
BESTA MYNDIN OG
BESTI LEIKSTJÓRINN
750kr.
BRÁÐSKEMMTILEG MYND
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Frábær gamanmynd um fimm vini
sem brjótast inn í Skywalker Ranch
til að stela fyrsta eintaki af Star Wars
Episode I.
ÞEIR RÁÐA YFIR FJÁRHAGI ÞÍNUM
ÞEIR STJÓRNA LÍFI ÞÍNU
OG ALLIR BORGA
EN HVAÐ EF ÞEIR NOTA PENINGANA ÞÍNA
TIL AÐ KAUPA MORÐ?
- Tommi, kvikmyndir.is
- S.V., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
750k
r.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
- D.V.- Tommi, kvikmyndir.is
- D.Ö.,
KVIKMYNDIR.COM
- DÓRI DNA, DV
- S.S., MBL
- Ó.H.T., Rás 2
2
- ÓHT, Rás 2
Marley & Me kl. 6:30 - 9 LEYFÐ
The International kl. 8 - 10:30 B.i.16 ára
Ævintýri Dexperaux ísl. tal kl. 6 LEYFÐ
Milk kl. 5:30 - 8 B.i.12 ára
Marley & Me kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Ævintýri Despereaux ísl. tal kl. 6 LEYFÐ
He’s just not that into you kl. 8 síðasta sýning B.i.12 ára
Viltu vinna milljarð? kl. 10:15 B.i.12 ára
750k
r.
750k
r.
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Tvær vikur á toppnum í U.S.A.!
Þau voru í fullkomnu sambandi
þangað til einn lítill hlutur
komst upp á milli þeirra
Frábær gamanmynd með
Jennifer Aniston og Owen Wilson
... og hundinum Marley
750k
r.
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLLIR MEÐ CLIVE OWEN OG
NAOMI WATTS Í FANTAFORMI!
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b
- S.V., MBL
- E.E., DV
„HELVÍTIS FOKKING BANKAHYSKI”
Bráðfyndin rómantísk gamanmynd sem
sviptir hulunni af samskiptum kynjanna
750k
r.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
“Marley & Me er skemmtileg
kvikmynd sem lætur
engan ósnortinn.”
- M.M.J., Kvikmyndir.com
“...vönduð og ómissandi fjöl-
skyldumynd öllum þeim sem
unnalífinu í kringum okkur.”
- S.V., MBL