Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 50
50 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 Sudoku Frumstig 8 5 9 9 4 1 5 6 8 2 4 6 8 1 2 3 1 7 8 8 3 9 5 6 9 3 2 6 5 1 3 1 6 2 5 5 8 3 7 8 6 8 3 8 9 7 4 6 9 4 8 3 5 8 4 3 7 2 6 7 9 2 3 1 5 2 9 7 5 4 7 6 8 3 1 5 9 4 8 6 7 2 9 8 2 5 7 6 4 3 1 4 7 6 1 2 3 8 5 9 5 3 8 4 9 1 2 6 7 7 2 1 6 8 5 9 4 3 6 9 4 2 3 7 1 8 5 1 5 9 7 6 4 3 2 8 2 6 3 8 5 9 7 1 4 8 4 7 3 1 2 5 9 6 7 8 6 4 3 2 1 5 9 5 3 2 1 9 6 4 7 8 9 4 1 7 8 5 2 3 6 4 1 3 2 6 8 7 9 5 2 5 9 3 7 4 8 6 1 8 6 7 9 5 1 3 2 4 1 7 8 5 2 9 6 4 3 3 9 4 6 1 7 5 8 2 6 2 5 8 4 3 9 1 7 5 2 7 1 6 9 8 3 4 8 9 4 3 7 2 1 5 6 1 3 6 4 5 8 2 9 7 9 4 8 5 2 6 7 1 3 3 6 2 7 8 1 9 4 5 7 5 1 9 4 3 6 2 8 2 7 9 6 3 5 4 8 1 6 8 5 2 1 4 3 7 9 4 1 3 8 9 7 5 6 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 21. mars, 80. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Enn sagði hann við þá: „Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt.“ (Mk. 4, 24.) Víkverji hefur setið löngum stund-um í strætó þessa vikuna. Strætó er að mörgu leyti fínn val- kostur en hinsvegar finnst Víkverja sér gert óskaplega erfitt fyrir að taka skyndiákvörðun um að skjótast í strætó eins og greiðslufyrirkomu- lagið er, enda notar hann kerfið ekki nógu oft til að strætókort borgi sig. Svona lýsir strætóferli Víkverja sér: 5 mínútum áður en hann þarf að leggja af stað út í skýli áttar hann sig á að hann á ekkert lausafé. Þá er að finna næsta hraðbanka, sem iðulega er víðs fjarri, til að sækja seðil. Þar lendir Víkverji í vandræðum við að rifja upp pin-númerið á debetkortinu sem hann notar aldrei. x x x Þegar seðillinn er loks kominn þarfað finna sjoppu sem getur skipt honum í klink, því ekki gefur strætó til baka. Reikna þarf út hæfilega sam- setningu af klinki, því einhverra hluta vegna er fargjaldið ekki þægileg tala sem 100-kallar og 50-kallar ganga upp í, heldur kostar 280 krónur í strætó. Með fulla vasa af margskonar klinki hleypur Víkverji svo eins og fætur toga í skýlið og nær strætó ef hann er heppinn, í svitabaði. Þetta bölvaða vesen má að einhverju leyti skrifa á vanhæfni Víkverja til að hugsa fram í tímann, en hann rekur minni til þess að hið sama eigi við um flesta Íslendinga og telur að strætó- farþegum væri gert lífið töluvert auð- veldara ef gjaldkerfið væri liprara. x x x Sú árvissa frétt sem þó verðuraldrei klisja barst í gær, að lóan væri komin og fagna Íslendingar henni með von í hjarta um bjartar stundir framundan. Víkverja verður jafnan hugsað til Frakka þegar hann sér landa sína tárast og verða há- fleyga í ljóðum vegna lóunnar. Í Frakklandi er lóan étin án nokkurs tillits til hversu hjartfólgin hún er ey- þjóðinni í norðri. Hinsvegar fordæma Frakkar þann sið Íslendinga að éta hval. Lítill munur er á tilfinningasem- inni sem tengd er hvorri skepnu fyrir sig, en Frakkar munu sennilega seint samþykkja það. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tilviljunar, 8 regnýra, 9 verða laus, 10 grátur, 11 ganga saman, 13 rýja, 15 karldýr, 18 sundfæri, 21 ætt, 22 sef- aði, 23 hafni, 24 guðs- ríki. Lóðrétt | 2 hundrað ára, 3 raka, 4 heilnæmt, 5 klasturs, 6 mynni, 7 drepa, 12 tangi, 14 ótta, 15 för, 16 rengdi, 17 húð, 18 elskaðir, 19 hrekk, 20 vond. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 stokk, 4 gígja, 7 eyðir, 8 ljótt, 9 ref, 11 karp, 13 kann, 14 offur, 15 höst, 17 álfs, 20 æra, 22 lýtur, 23 gef- in, 24 súrar, 25 síður. Lóðrétt: 1 smekk, 2 orður, 3 korr, 4 golf, 5 gjóta, 6 aft- an, 10 elfur, 12 pot, 13 krá, 15 hólfs, 16 sætir, 18 lyfið, 19 sonur, 20 ærir, 21 agns. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d6 2. Rf3 Bg4 3. c4 g6 4. g3 Bxf3 5. exf3 Bg7 6. Rc3 Rd7 7. Bg2 e6 8. d5 Bxc3+ 9. bxc3 e5 10. O-O Re7 11. f4 exf4 12. Bxf4 O-O 13. Bh6 He8 14. g4 Rc8 15. g5 f5 16. Dd4 He7 17. Hae1 Rcb6 18. He2 Rc5 19. Hfe1 Hf7 20. h4 Rbd7 21. h5 Rf8 22. f4 Dd7 23. Bf3 a6 24. Kh2 Hd8 25. Bxf8 Hdxf8 26. He6 Hg7 27. H6e2 Dd8 28. He3 Rd7 29. H3e2 Rc5 30. Kg3 Rd7 31. Hh1 He8 32. Heh2 Rf8 33. hxg6 hxg6 34. Df6 Rh7 Staðan kom upp nýverið í efstu deild þýsku deildarkeppninnar. Þýski stórmeistarinn Rustem Dautov (2.594) hafði hvítt gegn Hollend- ingnum Michiel Bosman (2.351). 35. Dxg7+! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 35… Kxg7 36. Hxh7+ Kf8 37. Hh8+ Ke7 38. H1h7#. Hvítur á leik. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Regla Cohens: Norður ♠Á63 ♥763 ♦K864 ♣G94 Vestur Austur ♠104 ♠G52 ♥KD1095 ♥G42 ♦1053 ♦DG7 ♣ÁD3 ♣K865 Suður ♠KD987 ♥Á8 ♦Á92 ♣1072 Suður spilar 3♠. Þegar drottninguna vantar í átta- spila samlegu á alltaf að svína, en aldr- ei með níu spil á milli handanna: Eight ever, nine never, segja Bandaríkja- menn við nýliða sína. Nema Larry Co- hen. Hann hefur snúið þessari þekktu þulu við og segir blákalt: Eight never, nine ever. Cohen er auðvitað að tala um allt annan hlut – sagnbaráttuna: „Segðu aldrei þrjá yfir þremur með átta-spila tromplit, en alltaf með níu- spila tromplit.“ Þessi ráðlegging Co- hens er grundvölluð á lögmálinu um heildarfjölda slaga. Suður opnar á 1♠ og vestur kemur inn á 2♥. Norður hækkar í 2♠ og aust- ur berst í 3♥. Við borðið sagði suður 3♠ og braut þar með reglu Cohens. Eins og sjá má fara 3♠ einn niður og hið sama má segja um 3♥ í AV. En hvernig er hægt að vita slíkt fyr- irfram? Skoðum það á morgun. Stjörnuspá (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Hlutirnir munu fara að breyt- ast til batnaðar í vinnunni innan tíðar. Enginn kemst hjá afleiðingum verka sinna eða getur falið þær. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú hefur með ákveðni og þol- inmæði náð þeim áfanga sem þú hefur lengi stefnt að. Sinntu því skyldum þínum af kostgæfni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Samræður innan fjölskyld- unnar verða þýðingarmeiri núna og á næstu vikum en oft áður. Gerið bara gott úr því sem fyrir er. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert ekki viss um hvað rétt- ast væri að taka til bragðs. Kynntu þér reglur laganna og hvort allt er eins og það á að vera. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Samræður um heimspeki, trúmál og pólitík virðast dálítið óraunsæjar í dag. Skoðaðu málið og þú færð nám- skeið og bækur á góðu verði. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Oft finnst þér þú vera eina manneskjan sem getur gert hlutina rétt. Vertu opinskár og þá munu aðrir fallast á þín rök. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur mikla þörf fyrir að tjá þig í dag. Víkkaðu út sjóndeildarhring þinn og þá gæti verið að þú fyndir lausnina. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Láttu verða af hug- myndum um að taka til hendinni heima fyrir. Hlustaðu gaumgæfilega á málavöxtu og vertu opinn fyrir öllu. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Fjölskyldan skiptist á sög- um sem ekki varpa jákvæðu ljósi á aðalsöguhetjurnar. Láttu þig ekki dreyma um að ganga að skilmálum annarra athugasemdalaust. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þetta er upplagður dagur til að hafa ofan af fyrir öðrum og gleðjast með fólki á öllum aldri. En mundu að ganga hægt um gleðinnar dyr. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Láttu ekki hugfallast þótt allt virðist ganga á afturfótunum þessa dagana. Njóttu þess að fá þér eitthvað virkilega gott að borða. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú færir út kvíarnar og eign- ast nýja vini. En oftast eru smáat- riðin ekki síður mikilvæg og því þarf að gefa þeim gaum líka. Elfar Berg Sig- urðsson, hljóm- listarmaður, fyrrv. kaup- maður og núver- andi starfsmaður hjá Olís, Efsta- koti 6, Álftanesi, er sjötugur í dag, 21. mars. Elfar fagnar einnig 50 ára tónlistar- afmæli á þessu ári en hann spilar með hljómsveitinni Lúdó & Stefán. Eiginkona Elfars er Guðfinna Sig- urbjörnsdóttir. Elfar og fjölskylda hans eru að heiman í tilefni dags- ins. 70 ára Gissur Ólafur Erlingsson svaraði kumpánlega í GSM-símann þegar blaðamaður hringdi. Hann var meira en lítið til í afmælisspjall enda nýbúinn að kveðja gesti en varaði þó við að heyrnin væri að- eins farin að skerðast. Það kom ekki að sök. Giss- ur fagnar 100 ára afmæli sínu í dag og gerir það með fögnuði að Seljahlíð þar sem hann býr. Hann býst við talsverðum gestagangi og að óseskju; af- komendur Gissurar eru vel á annað hundrað. En hver er leyndardómurinn bakvið góða heilsu og langlífi? „Hann gæti nú verið, að ég hef verið hóflegur letingi alla mína tíð. Hef lifað heldur hægt, með lágan blóðþrýsting og kannski hægan hjartslátt. Svo hef ég aldrei lagt stund á erfiðar íþróttir,“ segir Gissur sem var þó stofn- félagi í golfklúbbum Vestmannaeyja, Neskaupstaðar og Siglufjarðar. „Golf er ekki erfið íþrótt heldur afskaplega afslappandi.“ Gissur segist ekki leggja stund á golfið lengur og ástæðan helst sú að hann hefur ekki haft ökuleyfi í hálft annað ár. Þá endurnýjaði hann ekki leyfið eftir nærri 80 ára slysalausan ökuferil. Hann hjólar þó daglega – á þrekhjóli – og skemmtir sér við að senda ættingjum limrur með tölvupósti. andri@mbl.is Gissur Ólafur Erlingsson 100 ára í dag Hófleg leti leyndardómurinn 21. mars 1874 Amtmannsstofan á Möðruvöll- um í Hörgárdal (Friðriksgáfa) brann. Hún var reist í stað húss sem brann tæpri hálfri öld áður. 21. mars 1881 Frost á Akureyri mældist 32° á Réaumurmæli (40° á Celsíus- mæli) en það var mesta frost sem þar hafði orðið þennan mikla frostavetur. Metið er ekki viðurkennt. 21. mars 1974 Undirskriftir 55.522 Íslend- inga voru afhentar forseta sameinaðs Alþingis þar sem varað var við uppsögn varn- arsamningsins við Bandaríkin. Þetta var stærsta undir- skriftasöfnunin hérlendis og var hún nefnd Varið land. 21. mars 1982 Fjarhitun Vestmannaeyja var formlega tekin í notkun, en það var fyrsta hraun- hitaveitan í heiminum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Nýirborgarar Reykjavík Ísak Smári fæddist 30. desember kl. 18.17. Hann vó 3.840 g og var 55 cm langur. For- eldrar hans eru Sigrún Eygló Fuller og Sigurjón Árnason. Reykjavík – Kaupmannahöfn Frændsystkinin Rakel Ósk og Axel Þór fæddust í ágúst. Rakel fæddist í Reykjavík 13. ágúst kl. 11.49. Hún vó 3.460 g og 47 cm. Foreldrar hennar eru Gréta Sif Sverrisdóttir og Ólafur Atli Ólafsson. Axel fæddist í Kaupmannahöfn 26. ágúst kl. 22.26. Hann vó 2.010 g og 44 cm. Foreldrar hans eru Nína Rún Nilsen og Gunnar Rúnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.