Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 1. M A R S 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
78. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
Í RANNSÓKNARLEIÐ-
ANGRI UM NETHEIMA
«DANIEL CHUN
OFURVALD AUGLÝS-
ENDA YFIR SIMPSON
Ásgeir H. Ingólfsson ræðir við
franska leikskáldið Marie Darrieus-
secq, höfund Sædýrasafnsins sem
frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu
27. mars næstkomandi.
LESBÓK
Frönsk heims-
endisstemning
Myndröðin Íslenskt heldur áfram
að birtast í miðopnu Lesbókar. Ein-
ar Falur Ingólfsson skoðar birting-
armyndir íslenskrar menningar,
hönnunar og framkvæmda.
Af íslenskum
mannvirkjum
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson
skrifaði einkavæðingarnefnd bréf
þar sem hann hótaði, fyrir hönd
Samson, að slíta viðræðum um kaup
á Landsbankanum tveimur dögum
áður en skrifað var undir samkomu-
lag þess efnis 18. október 2002.
Umrætt bréf er meðal þeirra
gagna framkvæmdanefndar um
einkavæðingu sem varða sölu
Landsbankans og Búnaðarbankans
og Morgunblaðið hefur fengið fullan
aðgang að. Á næstu dögum verður
farið ítarlega yfir þau gögn á síðum
blaðsins. Í bréfinu segir að „verðbil
Samson og forsendur um eignar-
hluti hafa verið þekktar frá fyrsta
degi. Að gera þessi atriði að bitbeini
nú á síðari stigum viðræðna bendir
til þess að önnur sjónarmið en fag-
leg séu farin að vera ráðandi við
ákvarðanatöku. Ofangreint tilboð
gildir til kl. 17:00 fimmtudaginn 17.
október 2002. Að öðrum kosti lítur
Samson svo á að ríkið hafi slitið við-
ræðum við félagið.“
Heimildir Morgunblaðsins herma
að fundað hafi verið fram á nótt
þann fimmtudag í Þjóðmenningar-
húsinu til að fá niðurstöðu í málið.
Daginn eftir var skrifað undir sam-
komulag um kaup á 45,8% hlut rík-
isins í Landsbankanum.
Samson hótaði viðræðuslitum
Björgólfur Thor hótaði að slíta viðræðum um kaup á
Landsbankanum Sagði önnur sjónarmið en fagleg ráða
SJÖTTI og fjölmennasti landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs til þessa var settur í gær og stendur nú um helgina. Kynnt
voru drög að kosningamálum sem nánar verður unnið að um helgina.
Mikil þátttaka var í almennum stjórnmálaumræðum í gærkvöldi. Fund-
argestir gagnrýndu þingflokkinn harðlega fyrir að hafa brugðist jafn-
réttisstefnu sinni með nýlegri skipan í nefndir. Evrópumálin brunnu
einnig á mörgum. Ekki bárust ný framboð til embætta formanns, vara-
formanns og ritara flokksins en kosið verður í dag.
Vinstri græn fjölmenntu á fund
Morgunblaðið/Golli
Engin ný framboð bárust til embættis formanns, varaformanns og ritara
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
„VIÐ höfum mestar áhyggjur af
óhóflegri tekjutengingu fjármagns-
tekna við lífeyri hjá Tryggingastofn-
un. Það er líka slæmt ef lífeyrissjóð-
irnir bregðast, ofan á allt annað,“
segir Helgi K. Hjálmsson, formaður
stjórnar Landssambands eldri borg-
ara. Samtök eldri borgara hafa
áhyggjur af fyrirsjáanlegri skerðingu
á lífeyri hjá lífeyrissjóðunum.
Eignir allra lífeyrissjóðanna rýrn-
uðu á síðasta ári vegna erfiðleika á
fjármálamarkaði um 10 til 30% og það
vantar upp á að eignir allra stærri
sjóðanna dugi til að hægt sé að standa
undir fullum lífeyrisgreiðslum í fram-
tíðinni. Nokkrir sjóðir hafa boðað
lækkun lífeyris.
Unnar Stefánsson, nýkjörinn for-
maður Félags eldri borgara í Reykja-
vík, segir mikilvægt að standa vörð
um lífeyrissjóðina, þeir eigi að vera
friðhelgir.
Helgi Hjálmsson segir að vissulega
hafi bankahrunið haft áhrif á ávöxtun
lífeyrissjóðanna. Skerðing sparnaðar
eldri borgara í lífeyrissjóðunum bæt-
ist ofan á ýmsar aðrar hremmingar,
s.s. tap margra á séreignarsparnaði.
„Fólk hefur ekki í nein hús að venda.
Við höfum verið að berjast fyrir
hækkun grunnlífeyris Trygginga-
stofnunar en talað fyrir daufum eyr-
um. Það er ætlast til þess að eldri
borgarar lifi á tekjum langt undir fá-
tæktarmörkum. Svo er fólki refsað
fyrir ráðdeildarsemi því vextir og
verðbætur af sparnaði sem fólk hefur
náð að nurla saman og rétt nær að
hanga í verðlagsþróun koma til frá-
dráttar lífeyri,“ segir Helgi.
Áhyggjur af skerðingu
Eldri borgarar gagnrýna óhóflega
tekjutengingu vaxta við lífeyri
Í HNOTSKURN
»Allir lífeyrissjóðirnir töp-uðu á fjárfestingum sínum
á síðasta ári. Mismiklu þó.
»Fæstir eiga eignir til aðstanda að fullu undir líf-
eyrisskuldbindingum í fram-
tíðinni.
»Lífeyrisþegar geta haft 99þúsund kr. í fjármagns-
tekjur á ári án þess að það
skerði lífeyri. Vextir umfram
það skerða lífeyrisgreiðslur að
fullu, í stað 50% áður.
Allir lífeyrissjóðir | 2
Lilja Pálma-
dóttir, dóttir
Pálma Jónssonar
í Hagkaup, hefur
stofnað sjóð í
nafni föður síns
sem ætlað er að
styrkja hin ýmsu
verkefni sem
tengjast íslenskri
náttúru. Alls eru
um 300 milljónir í sjóðnum, en ár-
lega verða allt að 25 milljónir veitt-
ar úr honum. Lilja segir að öll verk-
efni eigi möguleika á að fá styrk úr
sjóðnum, svo lengi sem þau tengist
náttúrunni með einum eða öðrum
hætti.
„Við erum að kalla eftir hug-
arfarsbreytingu hjá fólki, hvað
þessi náttúra okkar skiptir miklu
máli. Við viljum vekja fólk til vit-
undar um hversu mikils virði hún
er. Þetta er eins konar áminning
um vægi og verðmæti náttúrunn-
ar,“ segir Lilja.
Fyrsta styrkveiting verður nú í
vor, en auglýst verður eftir um-
sóknum um helgina. »Lesbók
300 milljónir í Náttúruvernd-
arsjóði Pálma Jónssonar
Lilja Pálmadóttir
Samanlagðar
skuldir stjórn-
málaflokkanna
sex í lok kosn-
ingaársins 2007
námu rúmum
hálfum milljarði
króna, að því er
fram kemur í
úttekt Rík-
isendurskoðunar á fjármálum
þeirra. Er sambærilegrar nið-
urstöðu fyrir árið 2008 að vænta
næsta haust.
Ýmislegt athyglisvert kemur fram
í úttektinni, m.a. að tekjur Sjálf-
stæðisflokksins eru langmestar og
að nokkur stéttarfélög styðja ein-
göngu Samfylkinguna. »8
Flokkarnir skulduðu
hálfan milljarð króna
Sjálfstæðisflokkurinn verður að
skapa traust á ný og gangast við
mistökum. Þetta kemur fram í
skýrslu Endurreisnarnefndar
flokksins sem kom út í gær. Þar er
bent á fjölmörg mistök stjórnvalda í
aðdraganda bankahrunsins og
komið með tillögur að því hvernig
haga skuli endurreisn efnahagslífs-
ins í framtíðinni. »6
Bent á mistök og hugað að
endurreisn í framtíðinni