Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Spádómar               ! "#$   %&' ()*) +++,-$ ,  Hljóðfæri Dúndurtilboð Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 1/2 stærð kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr. 12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá kr. 29.900. Hljómborð frá kr. 17.900. Trommusett kr. 49.900 með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27 sími 552 2125 www.gitarinn.is Hljómtæki Heyrnartól Koss- gæðaheyrnartól Koss heyrnartól, margar gerðir, verð frá 999 kr. Eigum til fín heyrnartól sem víbra, í tölvuleikina. Rafgrein, Skipholti 9. www.rafgrein.is Húsnæði í boði Íbúð til leigu Björt og góð 2ja herb. íbúð í lyftuhúsi til leigu, er laus og leigist til lengri tíma. Er í póstnr. 104. Uppl. í síma 867-9486. Til leigu 2- herb. íbúð á Álftanesi. Íbúðin er í Birkiholti á 3.hæð 76,3 fm. þvottahús á hæð, sérinngangur úr stigahúsi, stórar svalir. Geymsla á jarðhæð. Leiga 90þús.+ Hússj. 5þús. Upplýsingar í síma 822 3811. Spánn - Alicante Meðeigandi óskast að fallegu raðhúsi í Torrevieja. Upplagt fyrir starfsmanna- og félagasamtök. S. 899 2940. Apartment on Grettisgata weekend / week. Apartment for rent in a quiet place in 101 Reykjavík. www.rentin101reykjavik.com Húsnæði óskast Lítil einstaklingsíbúð óskast fyrir mann á fertugsaldri. Keflavík, Hafnarfjörður og nágrenni. Uppl. í síma: 869 9330 / 848 0484. Atvinnuhúsnæði Fornubúðir 10 HF Iðnaðarhúsnæði til leigu um66m2, neðri hæð 40m2 með 3 m lofthæð, efri hæð eitt herbergi ásmt slerni, eldhúskrók og geymslu. Myndir á www.enta.is upplýsingar í síma 8976240 og 8211173 eða tölvupóst enta@enta.is . Enta ehf. Bakkabraut 5a, 200 Kópavogi. www.enta.is, sími 821 1170. Sumarhús Álftavatn Óska eftir sumarhúsi við Álftavatn í Grímsnesi. Upplýsingar í síma 822 2233 Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Útsala -- For sale Nuddstofan lokar - allt á að seljast : Bekkir, púðar, innanstokksmunir og fleira. Everything from a massage practice must be sold out : benches, cushions etc. Sími: 588 1404 / 895 9404. D85EX/PX-15 Til sölu KOMAT'SU jarðýta Árg. 2007, notkun 1450 vinnustundir. Upplýsingar í síma 892-0111. Bókhald Bókhald, vsk.-skil, skattframtal og kærur fyrir einstaklinga með rekstur og félög. Aðstoðum við kærur, stofnun ehf. og léna og gerð heima- síðna. Áralöng reynsla. Dignus ehf. - dignus.is - s: 699-5023. Skattframtöl Framtalsþjónusta 2009 Skattaframtöl fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og félög. Einnig bókhald. Hagstætt verð - vönduð vinna. Sæki um frest. Sími 517 3977 - framtal@visir.is Viðskipti Atvinna í boði Óska að ráða manneskju með reynslu af markaðsmálum og sölumennsku. Góð tungumálakunnátta og tölvu- kunnátta er nauðsynleg. Starfað er samkvæmt árangurstengdri sölu. Fjölbreytt og spennandi starf. Um mjög góð laun getur verið að ræða og vinnutími getur verið sveigjanlegur. Leitað er að snyrtilegum einstaklingi með góða söluhæfileika og góða framkomu. Konur á aldrinum 35-45 ára eru sérstaklega hvattar til þess að sækja um. Áhugasamir/ar vinsamlegast sendið nauðsynlegar upplýsingar á smida@simnet.is fyrir 26. mars. Þjónusta GULLSKARTGRIPIR - GULL Kaupum til bræðslu allar tegundir gullskartgripa, gamla, nýlega, ónýta, gegn staðgreiðslu. demantar.is Magnús Steinþórsson, Pósthússtræti 13, sími: 699-8000. Einbýlishúsa- og sumarhúsaeigendur Tek að mér allt viðhald og nýsmíði á sumarhúsum og sólpöllum. Vönduð vinnubrögð Haddi smiður 899-7569 / 555-3126 Bátar Vegna sérstakra ástæðna er eitt fegursta fley landsins til sölu, Síldin RE 26. Upplýsingar í síma 696 2265 og í heimasíma 517 4935. Vegna sérstakra ástæðna er eitt fegursta fley landsins til sölu, Síldin RE 26. Upplýsingar í síma 696 2265 og í heimasíma 517 4935. Trefjaplastviðgerðir - breytingar - nýsmíði. Tek að mér trefjaplast- viðgerðir, breytingar og lakksprautun á bátum og hlutum úr trefjaplasti. Einnig hef ég áhuga á að kaupa skemmda báta, vélar og drif. Upplýsingar í síma 869 9330. Bella 530 2007 40 hö. Mercury 2 stroke Vel með farinn lítið notaður bátur, keyrslutími 20 klst. Kerra, blæja yfir dekk og 40 ha. mótor fylgja með. Ásett verð 2,9 m. Tilboð 2,4 m. stgr. Nývirði 4,7 m. Uppl. í síma 691-4441, skoða skipti. Sendibílar Sendibíll til sölu VW Transporter, 2007, Ek. 26 þús. km. Með talstöð - mæli - sumar- + vetrardekk. Gott tækifæri til að skapa sér vinnu. Fæst á yfirtöku láns. Uppl. í gsm: 699-4166. Bílaþjónusta SEINNI hluti Íslandsmóts tafl- félaga fyrir tímabilið 2008/2009 hófst í Brekkuskóla á Akureyri í gærkvöldi. Teflt er í öllum fjórum deildum og er þetta í fyrsta skipti sem keppni í öllum deildum er háð samtímis utan höfuðborgarinnar. Íslandsmót taflfélaga hefur fyrir löngu unnið sér sess sem ein vin- sælasta reglulega skákkeppnin hérlendis. Þarna er ekkert kyn- slóðabil, hörð keppni þar sem meira en 300 skákmenn taka þátt ár hvert. Að venju beinast sjónir manna mjög að keppni í 1. deild en þar bregður svo við að Taflfélag Bol- ungarvíkur hefur náð öruggri for- ystu. Bolvíkingar sömdu við nokkra unga og upprennandi skákmenn sl. haust og fengu einn- ig til liðs við sig hinn þrautreynda stórmeistara Jón L. Árnason og þrjá öfluga skákmenn frá Úkra- ínu. Þessir samningar voru gerðir fyrir „Hrunið mikla“ sl. haust. Reikna má með að útlendingum fækki eitthvað á komandi miss- erum en þeir hafa flestir sett skemmtilegan svip á keppnina. Staðan í 1. deild fyrir 5. umferð keppninnar var þessi: 1. Taflfélag Bolungarvíkur 24½ v. 2.-3. Taflfélagið Hellir og Skák- deild Fjölnis 21½ v. 4. Taflfélag Reykjavíkur 15½ v. 5.-7. Skák- félag Akureyrar Taflfélagið Hellir (b- sveit) og Skákdeild Hauka 11½ v. 8. Taflfélag Reykjavíkur (b- sveit) 10½ v. Eins og mörg undanfarin ár er efsta deild Íslandsmóts Skák- félaga að hnoðast með a- og b-lið inn í þessari merku keppni. Þessi lið tefla í fyrstu umferðunum og er undirliggjandi einhver óljós er pressa á b-liðinu að tapa með sem mestum mun fyrir a-liðinu. Þessu fyrirkomulagi þarf að breyta. Það þekkist ekki í öðrum keppn- isgreinum hér á landi. Hinsvegar bregður svo við að þegar þessi mál eru rædd virðast ýmis önnur sjónarmið fá mikið vægi og eru ráðandi í dag. Einfalt og gott fyrirkomulagið væri t.d. að hafa sex lið í efstu deild sem tefldu tvöfalda umferð yfir þrjár helgar. Keppni í öllum fjórum deildunum gæti þá farið fram á sama stað við upphafs- og loka- umferðir en þrem aukaumferðum yrði skotið inn á milli í efstu deild. Hinsvegar er skemmtileg til- breyting að fara með Íslandsmótið út fyrir höfuðborgarsvæðið en það var síðast gert þegar fyrri hluti Íslandsmótsins fór fram í Vest- mannaeyjum haustið 2001. Fram- kvæmdin þar þótti til mikillar fyr- irmyndar en veðurguðirnir og ýmsir aðrir kraftar voru þar í stórum hlutverkum. Akureyringar héldu hluta Íslandsmóts skák- félaga síðast í mars fyrir tíu árum. Keppnin í öðrum deildum er hörð en í 2. deild virðist Taflfélag Vestmannaeyja ætla að end- urheimta sæti sitt í 1. deild. Tvö efstu liðin færast upp. Staðan: 1. Taflfélag Vestmannaeyja 19 v. 2. Skákdeild Hauka (b-sveit) 16 v. 3. Skákdeild KR 14½ v. 4.-5. Skákfélag Selfoss og Taflfélag Garðabæjar 10½ v. Reykjanes- bæjar 9 v. 7. Skákfélag Akureyrar (b-sveit) 8½ v. 8. Taflfélagið Hellir (c-sveit) 8½ v. Í 3. deild er b-sveit Taflfélags Bolungarvíkur í efsta sæti með 6 vinninga forskot á næstu sveit og í 4. deild leiðir hið nýstofnaða tafl- félag Mátar örugglega en þar tefla nokkrir skákmenn sem áður voru virkir fyrr Skákfélag Akureyrar. Aronjan og Kramnik efstir á Melody Amber-mótinu Nær allir bestu skákmenn heims eru saman komnir á Melody Amber-skákmótinu sem nú er haldið í borginni Nice sem liggur við strendur Miðjarðarhafsins. Það er haldið af stofnun sem ber nafn Hollendingsins Max Euwe sem var heimsmeistari á árunum 1935-’37. Kostunarmaður mótsins hefur ávallt verið hollenski millj- arðamæringurinn Joop Van Oste- rom en mótið ber nafn dóttur hans, Melody Amber. Tefld er tvö- föld umferð, ellefu blindskákir 25 20 og ellefu at-skákir 25 10. Þegar tefldar hafa verið 2x5 umferðir er staðan þessi: 1.-2. Lev Aronjan (Armeníu) og Vladimir Kramnik (Rússlandi) 6½ (af 10) 3. Alexander Morozevich (Rússlandi) 6 v. 4.-5. Wisvanathan Anand (Indlandi) og Venselin Topalov (Búlgaríu) 5½ 6.-8. Magn- ús Carlsen (Noregi), Gata Kamsky (Bandaríkjunum) og Teimour Radjabov ( Aserbadsjan ) 6 v. 9. Peter Leko (Ungverjalandi) 4½ v. 10. Sergei Karjakin (Úkraínu) 4 v. 11. Vasilí Ivantsjúk (Úkraínu ) 3½ v. 12. Yue Wang (Kína) 3 v. Bolvíkingum spáð sigri á Íslandsmótinu SKÁK Brekkuskóli, Akureyri Íslandsmót skákfélaga – seinni hluti 20.-21. mars 2009 Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Velkomnir til Bolungarvíkur Nýir liðsmenn f.v.: Jón Viktor Gunnarsson, Bragi Þorfinnsson, Stefán Arnalds liðs- stjóri, Jón L. Árnason og Dagur Arngrímsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.