Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.03.2009, Blaðsíða 32
Rökleysur í stjórnlagafrumvarpi FYRIR skömmu skrifaði ég Morgunblaðs- grein þar sem ég gagnrýndi harðlega aðdrag- anda stjórnlagafrumvarpsins sem nú er til meðferðar á Alþingi, skort á pólitísku samráði og fyrirætlanir um að keyra málið í gegn á ör- fáum vikum. Ekki hef ég orðið var við að helstu talsmenn frumvarpsins hafi gert tilraun til að svara þessari grein minni. Ég hef heldur ekki orðið var við að þessir talsmenn hafi reynt að útskýra hrópandi mót- sagnir í frumvarpinu sjálfu. Ekki hefur verið útskýrt hvers vegna þar eru annars vegar lagðar til þrjár veigamiklar efnisbreytingar á stjórn- arskránni samhliða því að gerð er tillaga um sérstakt stjórnlagaþing, sem á að hafa það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána í heild. Frumvarpið gerir ráð fyrir að stjórnlagaþingið taki til starfa síðar á þessu ári. Í ljósi þess hefði auðvitað verið rökréttara að bíða með þessar tilteknu breytingar og fela stjórnlagaþinginu að taka afstöðu til þessara ákvæða eins og annarra umdeildra atriða í stjórn- arskránni. Mér hefur skilist að hugmyndin um stjórn- lagaþing byggist á því, að ekki sé heppilegt að alþingismenn taki ákvarðanir um stjórn- arskrárbreytingar. Betra sé að fela öðrum það hlutverk. Því sé nauðsynlegt að stofna sérstakt stjórnlagaþing og tryggja að þar eigi engir al- þingismenn sæti. Það vekur óneitanlega furðu, að sama fólk og flytur tillögu á þessum for- sendum skuli um leið ætlast til þess að alþing- ismenn geri þrjár veigamiklar breytingar á stjórnarskránni nú fyrir vorið. Er það rökrétt? Og að lokum: Hver er meiningin með því að setja á næstu vikum nýja reglu um það hvernig breyta eigi stjórnarskránni og stofna um leið til stjórnlagaþings, sem taka mun afstöðu til þess hvernig stjórnarskrárbreytingar verða afgreiddar í framtíðinni? Hafa tillöguflytjendur einhver áform um að gera stjórn- arskrárbreytingar á meðan stjórnlagaþingið er enn að störfum? Er virkilega ætlunin að breyta stjórnarskránni með tveimur mismunandi aðferðum á sama tíma? Er ekki eitthvað meira en lítið bogið við slíkar ráðagerðir? Eftir Birgi Ármannsson Birgir Ármannsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. mbl.is verður með viðtalsþátt tileinkaðan kosningabaráttunni. Þátturinn heitir Zetan og þar munu formenn stjórnmálaflokkanna sitja fyrir svörum í beinni útsendingu. Fyrsta útsendingin er mánudaginn 23. mars kl. 12:00 en þá mætir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs í Zetuna. Strax kl. 14:00 sama dag kemur Þór Saari, hagfræðingur og talsmaður Borgarahreyfingarinnar. Forsvarsmenn flokkanna koma í Zetuna næstu mánudaga og hægt verður að horfa á þættina á mbl.is þegar hverjum og einum hentar. Það eru blaðamennirnir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Agnes Bragadóttir, Björn Vignir Sigurvinsson og Karl Blöndal sem hafa umsjón með þáttunum. Kraumandi kosningabarátta á mbl.is Zetan Kosningar 2009 32 UmræðanKOSNINGAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MARS 2009 UPPBYGGING samfélags okkar er brýnasta verkefni stjórnmálanna. Þrátt fyrir áföll síðustu mánaða blasa möguleik- arnir við ef vel er á málum haldið. Þar mun miklu valda hver á heldur. Í slíku uppbyggingarstarfi verðum við að leiða saman reynslu og þekkingu, nýjar hug- myndir og frjóa hugsun. Í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi blasir við mikil endurnýjun. Tveir þingmanna okkar hafa ákveðið að láta af störfum eftir farsælt og gott starf. Nú ríður því á að sú reynsla og þekking sem hefur byggst upp skili sér áfram inn í þau mik- ilvægu verkefni sem sinna þarf í kjördæminu. Norð- vesturkjördæmið er margbrotið á alla lund; ekki ein- asta landfræðilega vegna stærðar sinnar og stórbrotinnar náttúru, heldur vegna þeirrar fjöl- breytni sem einkennir það. Þessu hefur verið lær- dómsríkt að kynnast með samstarfi við fólk úr kjör- dæminu öllu. Þeirra forréttinda hef ég notið í ríkulegum mæli sem þingmaður kjördæmisins frá því að það varð til árið 2003. Stjórnmálastarfið er margslungið og ögr- andi enda eru úrlausnarefnin fjölþætt. Alþingi er líka einstæður vinnustaður sem vettvangur opinnar um- ræðu lýðræðislega kjörinna fulltrúa. Hlut- verk þingsins verður vaxandi á næstunni, vegna þeirra einstæðu verkefna sem við okkur blasa. Sú reynsla sem ég hef aflað mér sem þingmaður og ráðherra þýðingarmikilla málaflokka mun án efa nýtast í þessum uppbyggingarverkefnum. Með skírskotun til alls þessa býð ég mig fram í 1. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvest- urkjördæmi sem fer fram nú í dag. Okkar sjálfstæðismanna bíður það verk- efni að setja fram skýra stefnu og tafarlaus úrræði vegna þeirra vandamála sem hvar- vetna blasa við. Þá gildir að læra af reynsl- unni; horfast í augu við þau mistök sem hafa verið gerð, viðurkenna þau og umfram allt að læra af þeim. Það minnkar nefnilega enginn af því að viðurkenna það sem miður hefur farið. En framtíðinni skuldum við fyrst og síðast það að við leggjum fram trúverð- ugar tillögur um mótun samfélags okkar, setjum fram skýra framtíðarsýn. Ísland er gott samfélag. Unga fólkinu okkar skuld- um við að móta samfélag, þar sem allir hafi mögu- leika og tækifæri, óháð stöðu og búsetu. Þannig vilj- um við að Ísland framtíðarinnar sé. Reynsla og yfirsýn í öndvegi Eftir Einar K. Guðfinnsson Einar K. Guðfinns- son Höfundur er alþingismaður. Með og á móti Íris Bjarnadóttir | Ungt fólk til forystu, styðjum Þórdísi Kolbrúnu í 5. sætið Meira: mbl.is/kosningar Meira: flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið PRÓFKJÖRIÐ í dag er gríðarlega mikilvægt fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Flokkurinn er auð- velt skotmark og aug- ljóst er að ákveðnir fjölmiðlar gæta ekki sanngirni. Það er því hlutverk Sjálfstæð- isflokksins að koma hreint fram, viðurkenna þau mistök sem hafa verið gerð og halda því til haga sem vel hefur verið gert. Ég vil að gildi sjálfstæðisstefn- unnar séu höfð í öndvegi. Að ein- staklingnum sé treyst, að atvinnu- frelsi sé tryggt og að þeim sé veitt hjálp sem á henni þurfa að halda. Ríkisvaldið skapar ekki verðmæti, það gerum við sjálf. Það eru þess vegna Íslendingar sem munu endurreisa Ísland. Stór hluti ungs fólks hef- ur misst trúna á Sjálfstæð- isflokknum. Ímynd hans er á margan hátt neikvæð og á flokkurinn þátt í því að svo varð. Það breytir því hins vegar ekki að stór hluti ungs fólks er sam- mála gildum Sjálfstæð- isflokksins. Þess vegna er mikilvægt að ungur ein- staklingur sé á listanum fyrir kosningarnar í apríl. Framboðslistinn á að vera fjölbreyttur og endurspegla það mannlíf sem er í kjördæminu. Ungur frambjóðandi á meira erindi við unga kjósendur, enda reynsluheimur þeirra sambærilegur. Við í stjórn Þórs, Félags ungra sjálfstæðismanna á Akranesi, höfum sýnt það og sannað að það er hægt að fá ungt fólk til að taka þátt í pólitík. Við endurvöktum félagið í desember síðastliðnum og hefur það blómstrað síðan þá. Við höfum fjölgað verulega í félaginu, gefið út málgagn og haldið fundi. Fyrir vikið hefur umræða um gildi hugmyndafræði sjálfstæð- isstefnunnar aukist til muna meðal ungs fólks á Akranesi. Til þess að ég geti unnið að því að afla fylgis við Sjálfstæðisflokkinn meðal ungs fólks og sýna fólki fram á að hugmyndafræði okkar sjálfstæð- ismanna sé best til þess fallin að byggja upp landið þarf ég þinn stuðning. Ég veit að það er hægt þótt það verði erfitt og ég mun leggja mig alla fram. Ég vona því að þú setjir mig í 5. sætið á laugardaginn. Ungt fólk á listann Eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Höfundur er formaður Þórs og býður sig fram í 5. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins í Norðvesturkjördæmi. Sími 551 3010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.