Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
SÉRA Gunnar
Björnsson, sem á
dögunum var
sýknaður í
Hæstarétti af
ákæru um kyn-
ferðislega
áreitni, snýr aft-
ur til starfa í Sel-
fosskirkju 1. maí
skv. upplýsingum
Biskupsstofu. Á sínum tíma óskaði
sóknarnefnd eftir því að sá, sem nú
gegnir embættinu, yrði við störf þar
til fermingum lyki. Síðasta ferming
vorsins á Selfossi verður 10. maí.
Séra Gunnar snýr
aftur til starfa 1. maí
Gunnar Björnsson
FRÆÐSLUFUNDUR og aðal-
fundur ADHD-samtakanna verður
haldinn nk. miðvikudag kl. 20 á
Háaleitisbraut 13 á 4. hæð.
Á fræðslufundinum mun Dagmar
K. Hannesdóttir kynna námskeiðið
„Snillingarnir“ sem er þjálfun í
samskiptum, tilfinningum, sjálfs-
stjórn og athygli barna með ADHD.
Á aðalfundinum kl. 20.30 verða
venjuleg aðalfundarstörf.
Nánari upplýsingar um ofvirkni
og athyglisbrest má nálgast á
www.adhd.is.
ADHD-samtökin
Nýr vefur Veður-
stofu Íslands
VEÐURSTOFA Íslands kynnti í
gær nýjan vef sinn og nýtt merki.
Um er að ræða vef og merki nýrrar
stofnunar sem tók til starfa um síð-
ustu áramót þegar Vatnamælingar
og eldri Veðurstofa Íslands voru
sameinuð í nýja stofnun. 120 starfs-
menn starfa því hjá stofnuninni.
Hlutverk stofnunarinnar er vöktun
lofts, láðs og lagar með öflun,
greiningu, gæðaeftirliti og varð-
veislu upplýsinga og rannsóknum.
Ennfremur miðlun upplýsinga og
þjónusta við notendur.
Nýjum vef stofunnar er ætlað að
verða helsti miðill upplýsinga stofn-
unarinnar. Slóðin er sem fyrr
www.vedur.is
Veigamestu breytingarnar á
vefnum eru á forsíðunni og efni
hennar nú skipt fernt: veðurspá,
veðurathuganir, jarðskjálftar og
vatnafar. Í takt við breytt hlutverk
stofnunarinnar verður vinda-, hita-
og úrkomuspám gert hærra undir
höfði. Notendur eru hvattir til að
skoða nýja vefinn og senda inn
ábendingar og tillögur.
UNDIRRITAÐUR hefur verið lána-
samningur milli landstjórnar Fær-
eyja og íslenska ríkisins. Skrifað var
undir í Þórshöfn í Færeyjum í gær
og samkvæmt samningnum lána
Færeyingar íslenska ríkinu 300
milljónir danskra króna.
Lánið er veitt til langs tíma og er á
hagstæðum kjörum. Það er viðbót
við lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
er lánunum ætlað að efla gjaldeyr-
isvarasjóð Íslands.
Þetta er fyrsta tvíhliða lánið til Ís-
lands af þessu tagi, en Danmörk,
Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa
sameiginlega gefið fyrirheit um að
veita Íslandi gjaldeyrislán sem nem-
ur 2.500 milljónum bandaríkjadala.
Viðræður við löndin standa nú yfir
og lýkur væntanlega á næstu vikum.
Skrifað undir lánið
frá Færeyingum
Morgunblaðið/Eyþór
Samið Steingrímur J. Sigfússon og
Joannes Eidesgaard skrifuðu undir.
FYRIRTÆKI sem flutt hafa vörur
til landsins með Atlantsskipum geta
ekki nálgast vörur sínar þessa dag-
ana vegna skulda Atlantsskipa við
Eimskip. Enginn hefur verið til svara
hjá Atlantsskipum undanfarin miss-
eri, að sögn forsvarsmanna fyr-
irtækja sem skipt hafa við fyrirtækið.
Þeir vildu ekki tjá sig um vandamálin
undir nafni þar sem þeir voru að
reyna að vinna að því að fá vörurnar
sínar afhentar.
Atlantsskip hafa flutt vörur hingað
til lands með skipum Eimskips und-
anfarin misseri. Þetta hefur verið
gert á grundvelli samnings milli fyr-
irtækjanna. Atlantsskip skuldar
Eimskip umtalsverðar fjárhæðir, um
200 til 300 milljónir króna. Fyr-
irtækið hefur ekki getað greitt fyrir
flutninginn til landsins og því hafa
gámar á vegum fyrirtækisins staðið
með vörum á svæði Eimskips
óhreyfðir.
Þetta hefur valdið fyrirtækjunum
sem flutt hafa vörur til landsins á
Vörur fyrirtækja fastar í gámum
Morgunblaðið/RAX
Höfuðstöðvar Ekki náðist í for-
svarsmenn Atlantsskipa í gær þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir.
Atlantsskip skulda Eimskip 200 til 300 milljónir króna Fyrirtæki búin að
borga fyrir flutning en fá ekki vörur Eimskip má ekki afhenda vörur beint
vegum Atlantsskipa, og greitt fyrir
það að fullu, umtalsverðu tjóni.
Samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skip hefur fyrirtækið ekki heimild til
þess að afgreiða vöruna beint til við-
skiptavina Atlantsskipa, heldur ein-
ungis til fyrirtækisins. Því stendur
upp á Atlantsskip að greiða úr stöð-
unni, þá helst með því að greiða skuld
sína við Eimskip. Fyrirtækið er hins
vegar ekki í stöðu til þess, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, vegna
fjárhagsvandræða. magnush@mbl.is
INNSTÆÐUR AÐ FULLU TRYGGÐAR
Að tilmælum stjórnvalda hafa allar innstæður hjá SPRON og nb.is verið
færðar yfir í Nýja Kaupþing. Innstæðurnar eru að fullu tryggðar sam-
kvæmt yfirlýsingu frá ríkisstjórninni. Engin útlán viðskiptavina SPRON
og nb.is hafa færst yfir til Nýja Kaupþings.
NETBANKI, DEBET- OG KREDITKORT
Viðskiptavinir SPRON og nb.is geta stundað öll almenn bankaviðskipti
í gegnum netbanka sína. Debet- og kreditkort virka eins og áður.
AÐGENGI AÐ NETBANKA FYRIR VIÐSKIPTAVINI SPRON
Viðskiptavinir SPRON hafa aðgengi að netbanka SPRON næstu daga
en þeir fá jafnframt aðgengi að netbanka Kaupþings.
VIÐ ERUM REIÐUBÚIN AÐ VEITA ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR
Starfsfólk Kaupþings svarar almennum fyrirspurnum í síma 444 7000 og
í útibúum Kaupþings. Jafnframt geturðu nálgast frekari upplýsingar á
vefsíðu okkar, www.kaupthing.is
Með vinsemd og virðingu,
Starfsfólk Kaupþings
TILKYNNING
TIL VIÐSKIPTAVINA
SPRON OG nb.is
www.kaupthing.is