Morgunblaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 24.03.2009, Blaðsíða 38
38 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FYRIR stuttu fóru þrír nemendur í gítarleik við tónlistardeild LHÍ í viku vinnuferð til Spánar auk Péturs Jónassonar kennara þeirra. Gítarleikararnir ungu eru þeir Grétar Geir Kristinsson og Jón Gunnar Biering Margeirs- son, sem útskrifast í vor, og Kristinn Freyr Kristinsson, sem er á öðru ári. Pétur Jónasson segir að ferðin hafi verið lið- ur í árlegri sérverkefnaviku. Í ljósi þess að hann býr á Spáni hafi verið ákveðið að þeir fé- lagar myndu eyða sérverkefnavikunni á heima- slóðum gítarsins. Að sögn Péturs var þetta ekki nein skemmti- ferð þó að hún hafi verið skemmtileg, því það var stíft prógramm alla daga. „Þeir lentu seint á mánudegi 2. mars og í hádeginu á þriðjudegi voru þeir mættir í masterclass-námskeið hjá Javier Jaureguí, gítarleikara og yfirmanni tón- listardeildar St. Louis-háskólans í Madrid. Þeir voru óneitanlega slæptir,“ segir Pétur og hlær við, „en það má segja að þetta hafi verið liður í því að kynna fyrir þeim hvernig það er að vera konserthljóðfæraleikari, maður verður alltaf að vera tilbúinn til að stíga á svið.“ Tónlistarhjarta Spánar Annað masterclass-námskeið beið þeirra fé- laga svo á miðvikudeginum, en nú í Alicante, með Ignacio Rodes, yfirmann gítardeildar Con- servatorio Superior de Música de Alicante sem kennara. Fimmtudaginn voru þeir síðan í vinnubúðum í Bayacas í Granada-héraði á sunnanverðum Spáni, en Pétur segir að þar slái tónlistarhjarta Spánar. Föstudaginn 6. mars þurftu þeir síðan að sýna hvað þeir kunna því þá voru opinberir tónleikar í Bayacas þar sem hver spilaði í hálf- tíma, meðal annars spænska gítarklassík, verk eftir Albéniz, Granados, Tárrega. „Það voru mjög erfiðir tónleikar, þeir þreyttir eftir mikla keyrslu dagana á undan, veðrið vont, rok og rigning, það þvældist hundur inn í salinn í miðjum tónleikum,“ segir Pétur og bætti við að það hafi eðlilega haft áhrif á spilamennsku þeirra félaga. „Áheyrendur voru fólkið í bæn- um og þeir tóku þeim vel. Mér þótti vænt um það að gömul kona kom að máli við mig og hafði orð á því að þeir væru að spila með hjart- anu, því það er einmitt það sem þeir voru að gera og það sem skiptir svo mestu máli.“ Lokatónleikar í ferðinni voru svo í íbúð Pét- urs í Madríd sunnudaginn 8. mars og þá leikin sama dagskrá og í Bayacas. Pétur segist hafa verið eilítið nervus yfir þeim tónleikum, enda hafði hann boðið mjög kröfuhörðum áheyr- endum, fólki sem hann þekki úr tónlistarlífi Madrídar, „en þeir stóðu sig allir ofsalega vel“.  Þrír ungir gítarleikarar eru nýkomnir úr krefjandi vinnuferð til Spánar  Hundur þvældist inn á miðja tónleika í Granada  „Stóðu sig allir ofsalega vel“ Á vinnustofunni Gítarleikararnir með spænska gítarsmiðnum Joaquin García. Þrekraun Gítarleikaranir Grétar Geir Krist- insson, Jón Gunnar Biering Margeirsson og Krist- inn Freyr Kristinsson í vinnuferðinni miklu. Spilað með hjartanu Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞAÐ verða teiknimyndir í bland við leikið efni. Hlutföllin í stiklunni af teiknuðu efni eru heldur meiri en í heildina séð í myndinni. Það eru ákveðin „húmor-element“ sem eru teiknuð, t.d. það sem Böddi, að- alpersónan, hugsar og bloggin hans eru gerð sjónræn með teiknimynd- um og fleiri myndrænum hliðum,“ segir Snorri Þórisson hjá kvik- myndafyrirtækinu Pegasusi. Hann er einn framleiðenda kvikmyndar- innar Rokland sem tökur hefjast á í ágúst. Myndin er gerð eftir sam- nefndri bók Hallgríms Helgasonar. Nýlega birtist á vefsíðunni You- Tube kynningarstikla á myndinni sem lofar góðu. „Þessi stikla var gerð til að fjármagna myndina. Ég var úti í Berlín nýverið á samfram- leiðsluráðstefnu þar sem ég sýndi stikluna og það gekk ljómandi vel. Samningum verður vonandi lokað núna á næstunni í framhaldi af þess- ari ráðstefnu. Við erum komin með Finna með okkur og svo er verið að spjalla við Frakka og fleiri,“ segir Snorri og bætir við að það líti mjög vel út með fjárfesta. Tekin upp á leiðinni suður Marteinn Þórsson skrifaði hand- ritið að myndinni og mun leikstýra henni. Um teiknuðu hliðina sér Her- mann Karlsson. Myndin verður nokkuð trú bókinni að sögn Snorra. „Aðalpersónan kemur vel sköpuð út úr bókinni fyrir kvikmyndina og lífs- hlaup hennar er að mestu tekið úr bókinni þó brugðið sé eitthvað út af því.“ Með aðalhlutverk fer Ólafur Darri Ólafsson og í öðrum hlutverkum verða flestir þeir sem koma fyrir í stiklunni á YouTube. Myndin verður tekin að hluta til á Sauðárkróki og á leiðinni frá Króknum og suður. Inni- senur verða teknar annars staðar á landinu. Snorri segir Rokland verða með kaldhæðnu gríni og ádeilu á þetta eyðsluþjóðfélag sem við höfum lifað í. „Stefnan er svo að hún komi í bíó um næstu áramót.“ Verður teiknimynd að hluta Rokland Úr stiklu myndarinnar, sem er tilbúin þótt tökur séu ekki hafnar. Rokland væntanleg í kvikmyndahús um næstu áramót Fólk EINS og löngu er kunnugt verður myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson fulltrúi Íslands á Feneyjatvíær- ingnum í ár. Nú er ljóst hverskonar sýningu Ragnar verður með en það er vefsíðan ArtInfo sem opinberar það. Ragnar skiptir sýningunni upp í þrjá hluta. Í einu verk- inu, sem ber nafnið The End, verður hluta íslenska skálans breytt í stúdíó myndlistarmanns þar sem karlkyns fyr- irsæta situr daglega fyrir í baðfötum á meðan hún reykir sígarettur og drekkur bjór. Ragnar málar fyrirsætuna á striga á hverjum degi í þann tíma sem tvíæringurinn stendur yfir. Afrakstur gjörningsins, myndirnar, mun svo safnast saman í rýminu. Í öðru herbergi í skálanum verður vídeó- og hljóðinnsetning sem er unnin af Ragnari og Dav- íð Þór Jónssyni tónlistarmanni. „Við erum nýkomnir heim frá Kanada þar sem við dvöldum í mánuð og unnum verkið. Við tókum upp vídeó og hljóð á fimm mismunandi stöðum í Klettafjöll- unum,“ segir Davíð. Hann og Ragnar eru alltaf í mynd í vídeóinu og er það nútímaleg sveitatónlist sem fær að óma. „Við erum þarna tveir kántríbræður að spila víðsvegar í Kletta- fjöllunum,“ segir Davíð sem vill ekki gefa meira upp um verkið. Hann fylgir verkinu svo eftir til Feneyja og hjálpar til við uppsetninguna á því. Þriðji hluti sýningar Ragnars er sýning á bréfum sem hann og listamaðurinn Andjeas Ejiksson hafa sent hvor öðrum síðan 2008. Feneyjatvíæringurinn stendur frá 7. júní til 22. nóvember.  Lagið „I Forget it’s There“ af nýjustu plötu Lay Low, Farewell Good Night’s Sleep er í fyrsta sæti yfir þau 10 lög sem breska tónlist- artímaritið Mojo mælir með í nýj- asta tölublaði. Listinn sem birtist reglulega í blaðinu er valinn af rit- stjórn Mojo og nær yfir öll þau lög sem eru í útvarpi, kvikmyndum eða einfaldlega í umræðunni hverju sinni. Á listanum að þessu sinni eru ekki ómerkari tónlistarmenn en Screamin’ Jay Hawkins og Captain Beefheart. Lagið er sagt bera keim af Nashville-hljómnum og sé tæl- andi sneið frá næstu stórstjörnu Ís- lands. Lay Low er þessa dagana stödd í Bandaríkjunum þar sem hún hitar upp fyrir Emilíönu Torrini. Á morgun spilar hún þó ein á The Mercury Lounge þar sem útsend- arar plötufyrirtækjanna venja komur sínar. Í næsta mánuði held- ur Lay Low aftur til Bandaríkjanna og spilar þá m.a. í hinum víðfræga stað Viper Room sem eitt sinn var í eigu leikarans Johnny Depp. Lay Low í fyrsta sæti hjá Mojo  Tímaritið Monitor segir frá því heimasíðu sinni að hljómsveitin Ný dönsk hafi komið fram á balli á Sel- fossi um síðustu helgi og að þar hafi þeim félögum verið tekið með slík- um virktum að fjöldi fólks reyndi árangurslaust að draga meðlimi sveitarinnar í partí að tónleikunum loknum. Ný dönsk vildi hins vegar koma sér til Reykjavíkur hið fyrsta en kom þó við í pylsuvagninum sem stendur við brúarstæðið sunnan megin Ölfusár. Þegar hljómsveitin var við það að leggja af stað hljóp ung stúlka á eftir Birni Jörundi og grátbað bassaleikarann um að fylgja sér í partíið. Björn mun hafa tekið boðinu fálega, stigið upp í bíl- inn en sagt svo í heyranda hljóði: „Þú getur séð mig í læstri dagskrá“ og að því búnu lokað dyrunum. Munu þessi orð hafa verið end- urtekin oft þá nóttina. „Þú getur séð mig í læstri dagskrá“ Davíð og Ragnar Tóku myndbönd og hljóð á fimm mismunandi stöðum í Klettafjöllunum. Tveir kántríbræður í Klettafjöllunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.