Morgunblaðið - 24.03.2009, Side 10

Morgunblaðið - 24.03.2009, Side 10
EIGANDI óvátryggðs vélsleða var í gær í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur til að greiða konu átta milljónir kr. í skaðabætur vegna tjóns sem hún varð fyrir við akstur vélsleðans. Dómurinn taldi að eig- anda sleðans hefði verið skylt að sjá til þess að öryggisbúnaður væri fyrir hendi og notaður en konan var ekki með öryggishjálm. Slysið varð við Hafravatn vorið 2002. Þá var stúlkan 17 ára og fór í ferðina með manninum og kærasta sínum, syni mannsins. Ágreiningur var um aðdraganda ferðarinnar og atvik á staðnum. Fyrir liggur að hún kastaðist af sleðanum og hlaut þungt höfuðhögg. Hún hlaut brot víðsvegar á höfuðkúpu og blæð- ingu. Þá greindist mar á heila og þurfti stúlkan vegna þess að und- irgangast nokkrar aðgerðir og m.a. var fjarlægt skemmt svæði úr heila hennar. Afleiðingar slyssins á heilsufar stúlkunnar urðu veru- legar, bæði líkamlegar og andleg- ar. Dómurinn féllst ekki á það með manninum að stúlkan bæri sjálf sök á slysinu þar sem hún hefði ekki notað hjálm og sýnt stórkost- legt gáleysi. Talið var ósannað að stúlkan hefði ekið ógætilega. Stúlkan var ekki látin bera tjón sitt að hluta eða öllu leyti vegna eigin sakar eða fyrir að taka áhættu. Ábyrgðin hjá eiganda vélsleðans Eigandi tækis dæmdur til að greiða hjálmlausum ökumanni skaðabætur Morgunblaðið/Kristján Öryggi Hjálmur er nauðsynlegur. 10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 Við lestur minnisblaðs SeðlabankaÍslands, sem skrifað var eftir fundi starfsmanna bankans með al- þjóðlegum matsfyrirtækjum og bönk- um í London í fyrra, má skynja annað viðhorf gagnvart stöðu Landsbank- ans en bæði Kaupþings og Glitnis.     Moody’s lýsir yfir áhyggjum af öll-um íslenskum bönkunum, „en þó mest af einum þætti, sem snýr að Landsbanka Íslands, en þar er um að ræða hve hinn mikli innlánsreikn- ingur Icesave kunni að vera kvikur og háður trausti og trúnaði á markaði.“     Þessum áhyggjumvildu seðla- bankamenn eyða og „fóru yfir þau rök sem væru gegn því að þessi innláns- reikningur væri jafn ótraustur og Moody’s hefði áhyggur af, en ekki er líklegt að öllum efa- semdum þeirra hafi verið eytt,“ að því er fram kemur í minnisblaðinu.     Spjótin beindust frekar að öðrumþví „mikið vantraust ríkti á markaðnum vegna bankanna, eink- um þó vegna Glitnis og Kaupþings“.     Einnig voru skýringafundir Lands-bankans „vel heppnaðir og for- ustumenn hans komu fram með trú- verðugum hætti og virtust geta svarað spurningum leikandi og und- anbragðalaust“. Ólíka einkunn fengu Kaupþings- og Glitnismenn.     Niðurstaðan í minnisbréfinu erþessi: „Það er ljóst að íslensku bankarnir, Kaupþing og Glitnir al- veg sérstaklega, hafa stefnt sér og það sem verra er, íslensku fjármála- lífi, í mikla hættu …“     Ekki skal það dregið í efa hvertKaupþing og Glitnir stefndu ís- lensku fjármálalífi. Hins vegar má spyrja hvert Icesave-reikningar Landsbankans drógu þjóðina? Hún borgar reikninginn. Davíð Oddsson Undanbragðalaus svör                      ! " #$    %&'  (  )                           *(!  + ,- .  & / 0    + -                           12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? !   ! "! ! ! !"  ! "! ! !   "! "! "! !  !  !   ! !                           *$BC                  !" # $    %  %& *! $$ B *! # $%& '  '% '    ( ) <2 <! <2 <! <2 # & '*  +',-.  CD                    /    '   %   <    87  ( %  )  *)  !% + %        &%  * ,     %)!   -.(  / #     &  /0'$'11 '($'2  -('*  Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR Eftir Ólaf Bernódusson Skagaströnd | Nýtt aðalskipulag fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd er í vinnslu um þessar mundir. Áætl- anir gera ráð fyrir að þetta nýja skipulag taki gildi í janúar 2010 og mun þá taka við af öðru eldra sem gilti fyrir tímabilið 1998-2008. Samhliða skipulaginu er unnið að Staðardagskrá 21 fyrir Skaga- strönd. Er hér um tilraunaverkefni Skipulagsstofnunar og Lands- skrifstofu Staðardagskrár 21 að ræða í samvinnu við sveitarfélagið. Út úr þessari vinnu á að koma áætlun sem tekur ekki eingöngu til hefðbundinna umhverfisþátta held- ur líka til félagslegra og efnahags- legra þátta þannig að útkoman verður bæði skipulags- og velferð- aráætlun fyrir Skagaströnd til árs- ins 2020. Til að kynna þessa vinnu alla var boðað til íbúafundar þar sem þessi mál voru reifuð af þeim sérfræð- ingum sem að málinu koma. Heimamenn mættu ágætlega á fundinn og urðu nokkrar umræður um þær hugmyndir sem fram komu í þeim tillögum sem sýndar voru. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Samráð Íbúafundurinn var ágætlega sóttur af heimamönnum. Vinna saman aðalskipu- lag og Staðardagskrá 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.