Morgunblaðið - 24.03.2009, Side 12
Atkvæðin
eru okkar
vopn!
Forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna er, þrátt
fyrir 25% launalækkun, launahæsti forstjóri
íslensks lífeyrissjóðs. Starfskjör hans fela einnig í
sér bifreiðahlunnindi sem hann að sjálfsögðu nýtir.
Á sama tíma þurfa eldri sjóðsfélagar sennilega að
horfa upp á skerðingu á lífeyrisréttindum sínum.
Eldri borgurum, 65 ára og eldri, og aðstand-
endum ofbýður þessi framkoma við fólkið. Hvernig
stendur á því að enn eru ákveðnir einstaklingar að
sukka með peningana okkar?
Við þökkum fyrir hreinsanirnar í Fjármála-
eftirlitinu og Seðlabankanum en verkinu er ekki
lokið. Það þarf að taka til í lífeyrissjóðunum svo þeir
geti gegnt því hlutverki sem þeim er ætlað, að
tryggja sjóðsfélögum góð lífskjör á efri árum. Í stað
þess að greiða fáum einstaklingum ofurlaun gætu
lífeyrissjóðirnir byggt hagkvæmt leiguhúsnæði fyrir
aldraða. Vilji þjóðarinnar er ótvíræður, 70,8% vilja
að sjóðirnir hafi heimild til að byggja og reka
húsnæði fyrir eldri borgara sem greitt hafa í sjóðina.
Samkvæmt stjórnendum lífeyrissjóðanna strandar
slík bygging einungis á lögum. Velferð eldri borgara
veltur á því að peningarnir þeirra séu notaðir rétt í
þeirra þágu. Aldraðir hafa ekki efni á að borga
hæstu laun á Íslandi.
Jóhanna, nú hefur þú tækifæri til að standa við
orð þín um að velferð aldraðra gangi fyrir. Það er
líka spilling í lífeyrissjóðakerfinu, þar þarf að
taka til.
Viðhorf til þess að lífeyrissjóðurinn
byggi eða reki húsnæði.
Hlynnt(ur)
70,8%
Já
76,6%
Nei
23,4%
Andvíg(ur)
22,6%
Hvorki né
6,6%
Ertu hlynnt(ur)
eða andvíg(ur) því
að lífeyrissjóðurinn
þinn byggi og reki
húsnæði fyrir þá
eldri borgara sem
greitt hafa í
sjóðina?
Ertu hlynnt(ur) því
þó að það geti haft
kostnað í för með
sér fyrir sjóðinn
og rýrt höfuðstól
hans?
Breyting á viðhorfi ef kostnaður
sjóðsins gæti rýrt höfuðstól hans.
íslenskur ríkisborgari
Skv. könnun Capacent Gallup.
Nafn:
Kennitala:
Undirskriftasöfnun
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Það gengur
ekki að lífeyrisgreiðslurnar okkar séu notaðar til að borga sukk örfárra
einstaklinga í stað þess að þær séu nýttar í okkar þágu. Við höfum
fengið nóg.
Undirskriftirnar sem safnast verða afhentar Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra.
Þú getur fyllt miðann út og sent þína undirskrift með pósti:
Sælgætisgerðin Góa
B.t. Helga Vilhjálmssonar
Garðahrauni 2
210 Garðabæ
Undirskriftum er einnig safnað á netinu: www.okkarsjodir.is.
www.okkarsjodir.is