Morgunblaðið - 24.03.2009, Qupperneq 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Kaupi bækur
Kaupi bækur og bókasöfn.
Upplýsingar í síma 898 9475,
Þorvaldur.
Spádómar
! "#$
%&' ()*)
+++,-$ ,
Ferðalög
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Skagafirði
sími 453 8245
www.bakkaflot.com
www.riverrafting.is
Heilsa
Frelsi frá streitu og kvíða
hugarfarsbreyting til betra lífs
með EFT og sjálfsdáleiðslu.
Viðar Aðalsteinsson
dáleiðslufræðingur,
sérfræðingur í EFT,
sími 694 5494,
vidar@theta.is, www.theta.is
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu í Mosfellsbæ
2ja herb. íbúð á neðri hæð í einbýlis-
húsi. Innif. rafm. og hiti. Ísskápur og
þvottavél geta fylgt. 79.000 á mán.
Laus 1. apríl. Páll, sími 566-6415 og
896-0415.
Til leigu
Glæsilegar 2ja og 3ja herbergja
íbúðir miðsvæðis. Gott verð og traust
þjónusta. Nánari upplýsingar á
www.leiguibudir.is
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Laugarvatn - nýtt sumarhús
til leigu
Glæsilegt nýtt sumarhús til leigu. Sjá
myndir og uppl. á www.fjarhagur.is
Helgarverð 25 þús. Heitur pottur.
Hermann s. 897-2264.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Tómstundir
Fjarstýrðir rafmagns- og
bensínbílar í
úrvali. Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Til sölu
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Ford Fiesta 1.6 L dísel
til sölu. Sk. 09.2005. Ekinn 7 þús
km. Rafmagsrúður, samlæsingar,
Útvarp og CD.
Uppl. Í síma 544 4333 og 820 1070.
Verslun
Ferming 2009
Mikið úrval af fermingargjöfum.
Gallerí Símón, Laugavegi 72.
Skattframtöl
Framtalsþjónusta 2009
Skattaframtöl fyrir einstaklinga,
einstaklinga með rekstur og félög.
Einnig bókhald. Hagstætt verð -
vönduð vinna. Sæki um frest.
Sími 517 3977 - framtal@visir.is
Þjónusta
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hfj.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660-0230 og 561-1122.
Ýmislegt
GreenHouse vor - sumarvaran er
komin. Verið velkomin að sækja
frían bækling.
Opið í dag, þriðjudag 13-19.
GreenHouse, Rauðagerði 26.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Sisal teppi
Falleg-sterk-náttúruleg. Strönd ehf.
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík,
s. 533-5800.
Eruð þið leið á baðherberginu?
Breytum, bætum og flísaleggjum.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Gestahús 20 m²
Enn á gamla genginu. 44 mm bjálki.
Verð kr. 789.000.
Spónasalan ehf.
Smiðjuvegi 40, gul gata,
sími 567 5550.
Fuglarnir koma í Biskupstungur -
VORIÐ
Hlýleg sumarhús við Tungufljót.
Laust næstu helgi. Fullt um páska.
VELKOMIN eftir páska. Rúm fyrir 6.
Leiksvæði, heitur pottur.
www.sveitasetrid.com, s: 898-6033.
gegnum það að missa mömmu sína og
tók það mjög á hana. En nú hafa
örugglega orðið góðir endurfundir á
himnum.
Elsku Steini, Ægir, Gísli og Yngvi,
við fjölskyldan sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur. Þó Bella
sé dáin þá verður hún í hjarta okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég þakka þér, elsku vinkona mín,
fyrir allt. Ég mun aldrei gleyma þér.
Helga Heiða Helgadóttir.
Daginn er farið að lengja og vorið á
næsta leiti. Ég og elskuleg vinkona
mín, Bella, vorum farnar að hlakka til
sumarsins. En skjótt skipast veður í
lofti, ekki renndi ég grun í að kveðju-
stundin væri svo nálæg. Ég er svo
ósátt við að kær vinkona mín sé farin
úr lífi mínu, ég kenni til og söknuður-
inn er sár. Við höfum verið góðar vin-
konur allt frá okkar fyrstu kynnum
eða í hart nær 38 ár. Við vorum sam-
ferða í svo mörgu sem gerði okkur svo
nánar og vorum við ákveðnar í að eld-
ast saman. Við áttum svo margt ógert
sem erfitt er að sætta sig við að verði
ekki að veruleika. Í huga mínum þessa
dagana hljómar þessi hluti úr vinsæl-
um lagatexta, að vísu lítið eitt breytt-
ur, í hvert sinn sem ég hugsa til Bellu
minnar: hún kom inn í líf mitt og gerði
mér gott, hún kom við hjartað í mér.
Hún Bella mín mun ávallt verða með
mér í hjarta mínu og hennar verður
sárt saknað og veit ég að ég tala fyrir
munn okkar allra, vinkvenna hennar
til margra ára. Umhyggjusemi, vin-
semd, gleði og hlátur hennar gladdi
mig. Hún var mér ávallt trú og trygg
vinkona. Hlýja hennar, bjartsýni og
spjall okkar er mér mikils virði. Elsku
Bella, þakka þér af öllu hjarta fyrir að
vera vinkona mín. Það verður erfitt að
vera án þín.
Ég veit að hún Bella mín á góðan
mann og góða drengi sem hún var
stolt af. Hugur minn er hjá þeim,
þeirra er missirinn mikill. Megi góður
Guð gefa þeim kraft og styrk til að
sigrast á sorginni sem og öllu hennar
fólki. Ykkur, Steini, Ægir Þór, Gísli
Jóhann og Yngvi Þórir, þakka ég af
heilum hug fyrir að gefa mér tækifæri
til að deila með ykkur og Bellu vin-
konu minni dýrmætum stundum á síð-
ustu dögum hennar hér í þessu lífi.
Það hefur verið mér mikils virði. Guð
blessi ykkur öll.
Halldóra Harðardóttir.
Það eru tæplega 12 ár síðan ég hitti
Bergljótu fyrst. Það var í nóvember
1997. Ég hafði nýlega kynnst Ægi
syni hennar og okkur varð strax vel til
vina. Í kjölfarið kynntist ég fjölskyld-
unni á Sunnuveginum; Bergljótu, Ey-
steini, Gísla og Ingva. Seinna vann ég
svo fyrir Eystein á Viðeyjarferjunni
og í Lundeyjarferðum. Ekki vegna
þess að hann vantaði starfskraft.
Heldur af einskærri góðennsku af því
ég var atvinnulaus. Þá bjó ég í lítilli
íbúð í Þingholtunum en var tíður gest-
ur á heimili Bergljótar og Eysteins.
Þar var hugsað vel um mig. Svo vel,
að Bergljót þvertók jafnan fyrir að ég
nærði mig á skyndibitaómeti eins og
var piparsveins von og vísa. Hún
skyldi frekar gefa mér gott að borða.
Tók ekki annað í mál. Þannig voru
þær ófáar dýrindis máltíðirnar sem
hún Bergljót töfraði fram fyrir mann,
enda var hún listakokkur. Og aldrei
fékk ég það á tilfinninguna að ég væri
einhver fyrirhöfn. Þvert á móti virtist
hún njóta þess að þjóna mér til borðs.
Ég minnist þess einnig hversu oft
Ægir hefur sagt við mig: „Veistu hvað
mamma eldaði gott“ og lýst svo í smá-
atriðum kræsingunum. Hann vissi
fyrir víst að slíkan munað er ekki
hægt að heimfæra á hverja fjöl-
skyldu.
Bergljót var ákaflega alúðleg og
hjartahlý kona en jafnframt röggsöm
og föst fyrir. Hún hafði sterkar skoð-
anir á mönnum og málefnum líðandi
stundar.Var með ríka réttlætiskennd
og óhrædd að láta skoðanir sínar í
ljós, sérstaklega ef henni var misboð-
ið. Við áttum ófáar spjallstundir sam-
an í sófanum á Sunnuvegi. Ég mun
alltaf geyma þær.
Bergljót sá um heimilið og hjálpaði
Eysteini til á skrifstofunni. Hún var
mikil húsmóðir og vann jafnan hörð-
um höndum heimafyrir. Þannig vann
hún óeigingjarnt starf alla daga vik-
unnar. Sjaldan hef ég þekkt mann-
eskju sem hlúði jafn mikið að og dekr-
aði við fjölskyldu sína og Bergljót
gerði. Ég man að eitt sinn sagði ég við
hana að hún ofdekraði strákana sína.
Hún brosti og svaraði: „þeir eru bara
svo góðu vanir, Stebbi minn“. Eflaust
var það sannleikanum nær. Ég komst
nefnilega fljótt að því að Bergljót
gerði allt fyrir strákana sína. Hún
hugsaði um þá að mikilli umhyggju.
Þeirra velferð var hennar hamingja.
Og það átti líka við um samferðarfólk
hennar. Náungakærleikurinn var rík-
ari í henni en flestum. Eftir að Ægir
sonur hennar fluttist á landsbyggð-
ina, hitti ég Bergljótu alltof sjaldan.
Ægir sagði þó oft við mig: „Mamma
er alltaf að spyrja um þig“. Það lýsir
henni vel. En stundum er lífið svo
óréttlátt. Stundum er veruleikinn svo
grimmur. Tvær vikur líða frá því að
Bergljót er greind með alvarlegt
krabbamein þar til hún fellur frá,
langt fyrir aldur fram. Slíkt áfall og
sorg er ekki hægt að leggja á nokkurn
mann án þess að skilja eftir djúpt ör í
sál hans. Slíkt áfall og sorg er ekki
hægt að lækna. Hverjum degi nægir
sín þjáning.
Elsku Eysteinn, Ægir, Gísli og
Yngvi. Ég samhryggist ykkur svo
innilega. Bergljót var einstök. Henn-
ar verður sárt saknað. Blessuð sé
minning hennar.
Stefán Kristján Gunnbjörnsson.
Við kveðjum óvænt góða vinkonu
sem eftir mjög stutta sjúkralegu
kvaddi þennan heim. Leiðir okkar
allra lágu fyrst saman í Vogaskóla á
árunum 1972 – 1974 og hafa kynni
okkar staðið óslitið síðan þá. Við höf-
um hist með reglulegu millibili og átt
margar góðar stundir saman. Á
skemmtilegum tímamótum fyrir 7 ár-
um gerðum við okkur dagamun, lögð-
um land undir fót og fórum í viku ferð
til Krítar þar sem ein úr okkar hóp
býr og vinnur. Sú ferð mun lengi lifa í
okkar minnum. Þá fengum við tæki-
færi til að kynnast á annan hátt en í
daglegu amstri heima. Það var mikið
spjallað og mikið hlegið, og hétum við
því að fara í aðra svona ferð á öðrum
tímamótum. Ekki verður af því þar
sem Bella er nú farin í sína hinstu för.
Með þessum orðum kveðjum við góða
vinkonu með trega í hjarta. Guð blessi
minningu þína.
Elsku bestu Eysteinn, Ægir Þór,
Gísli og Yngvi, við biðjum góðan Guð
að veita ykkur styrk á þessum sorg-
artímum.
Guðrún, Linda og Rannveig.
Í dag kveðjum við elsku Bellu. Mig
langar að minnast hennar með örfá-
um orðum. Þegar ég hitti Bellu í
fyrsta sinn þá var eins og við hefðum
alltaf þekkst. Hún var svo glaðvær og
hjartahlý persóna, og við gátum
spjallað saman endalaust. Ég held að
við höfum verið svolítið líkar, en við
höfðum báðar gaman af því að hlusta
á góða tónlist og að eiga saman glaðan
dag. Þær stundir eru ógleymanlegar.
Það var mikið hlegið og sprellað. Þó
svo að við Bella værum ekki í miklu
sambandi þá fylgdumst við alltaf með
hvor annarri. Hún kíkti stundum á
mig í vinnuna og það var alltaf jafn
gott að fá knúsið hennar.
Ekki bjóst ég við því að þurfa
kveðja þig svona fljótt, elsku dúllan
mín. Ég er viss um að þér líður vel
núna elsku Bella og englarnir bera
þig örugglega í gullstól því þú varst
svo mikil drottning.
Ég sendi elsku Steina, Ægi, Gísla
og Yngva mínar innilegustu samúðar-
kveðjur. Guð styrki ykkur.
Að lokum vil ég kveðja Bellu með
orðunum sem hún notaði alltaf: I love
you too!
Svanhildur Erlingsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Bergljót Viktorsdóttir