Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 34

Morgunblaðið - 24.03.2009, Page 34
34 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS 2009 Sudoku Frumstig 6 9 1 4 6 5 3 3 7 9 9 7 5 4 2 6 1 2 6 4 3 9 7 5 1 4 3 6 2 7 6 3 8 3 2 1 4 8 7 7 1 6 4 4 9 3 5 1 9 8 2 1 7 2 5 2 6 4 8 5 5 6 6 2 9 8 3 1 9 3 8 6 7 5 2 9 4 3 1 5 2 4 1 8 3 6 7 9 9 1 3 6 7 4 8 2 5 1 7 9 4 6 5 2 8 3 6 3 8 9 1 2 7 5 4 4 5 2 8 3 7 1 9 6 7 9 1 2 5 6 3 4 8 2 8 5 3 4 1 9 6 7 3 4 6 7 9 8 5 1 2 7 3 2 1 5 8 6 4 9 1 6 8 4 7 9 5 3 2 4 9 5 2 6 3 1 7 8 3 2 6 5 8 4 9 1 7 5 4 1 7 9 2 3 8 6 8 7 9 6 3 1 4 2 5 6 1 4 8 2 5 7 9 3 9 8 7 3 1 6 2 5 4 2 5 3 9 4 7 8 6 1 8 9 5 3 6 2 7 4 1 2 7 6 8 1 4 5 3 9 1 3 4 7 5 9 6 2 8 4 8 7 1 3 5 2 9 6 5 2 1 9 7 6 3 8 4 3 6 9 2 4 8 1 7 5 9 1 2 5 8 7 4 6 3 7 4 3 6 9 1 8 5 2 6 5 8 4 2 3 9 1 7 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er þriðjudagur 24. mars, 83. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.) Víkverji hefur fengið sig full-saddan á einhverri hallærisleg- ustu og leiðinlegustu auglýsingu allra tíma. Grænar bólur spretta fram og aulahrollurinn hríslast niður bakið í hvert sinn er sést eða heyrist af svonefndri aðgerðaáætlun Sím- ans. Það er eitthvað við framsetn- inguna, boðskapinn og útlitið sem framkallar þessi viðbrögð. Erfitt að útskýra þessa tilfinningu nánar, þannig er hún bara. Alls ekki svo að skilja að Víkverja sé eitthvað illa við Símann, þvert á móti, enda verið við- skiptavinur fyrirtækisins til fjölda ára. En svona geta auglýsingar pirr- að dagfarsprúðasta fólk. Fyrir utan það hvað auglýsinga- herferðin fer illa í Víkverja þá skilur hann ekkert í því að fyrrum frétta- haukar skuli leggja nafn sitt við svona auglýsingu. Hvað voru Atli Rúnar, Ólöf Rún og Karl Garð- arsson að spá? Þau ætla sér greini- lega ekki að eiga afturkvæmt í fréttamennskuna. x x x Víkverji samgladdist Eyjamönn-um og ekki síður knatt- spyrnudeild ÍBV þegar síld var hreinsuð og veidd upp úr Vest- mannaeyjahöfn í síðustu viku. Ekki var annað að sjá og heyra en þetta væri mikið þjóðþrifaverk og ágóð- anum varið til ÍBV. Síldin búin að húka þarna vikum saman og ekkert fararsnið á henni út úr höfninni, stór hluti hennar sýktur og mikill hætta á umhverfismengun. En gleði Eyja- manna varð skammvinn. Einhver möppudýr í Hafró og sjávarútvegs- ráðuneytinu sáu sig knúin til að stöðva veiðarnar á þeirri forsendu að síldin ætti séns á að bjarga sér út úr höfninni af sjálfsdáðum. Eyja- menn hafa sínar kenningar um hvað gerðist í raun. Meðal þeirra er sjálf- ur Eyjaklerkurinn, sr. Kristján Björnsson, sem bloggaði um tíð- indin: „Það er ekki að spyrja að þessum KR-ingum í sjávarútvegs- ráðuneytinu. Við Halldór B. Hall- dórsson á sjúkrahúsinu og aðrir sannir Eyjamenn erum sannfærðir um að þetta komi síldinni ekkert við, og hvað þá fiskifræði. Þetta er bara öfund!! Áfram ÍBV.“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 afdrep, 4 blaðra, 7 milda, 8 fang- brögð, 9 þegar, 11 hold- lítið, 13 heiðurinn, 14 mannsnafn, 15 görn, 17 súrefni, 20 stór geymir, 22 lítið herbergi, 23 sett, 24 bik, 25 fífl. Lóðrétt | 1 er viðeigandi, 2 ísstykki, 3 fuglinn, 4 út- flenntur, 5 kjánar, 6 skynfærin, 10 heldur, 12 líkamshlutum, 13 hlass, 15 kunn, 16 magurt dýr, 18 dáin, 19 haldavel áfram, 20 sjávargróðurs, 21 æsingur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 handaskol, 8 veini, 9 æskan, 10 lár, 11 rudda, 13 tunna, 15 hlaði, 18 ögrar, 21 nit, 22 sárin, 23 urmul, 24 hringlaði. Lóðrétt: 2 aðild, 3 deila, 4 skært, 5 orkan, 6 sver, 7 snúa, 12 dáð, 14 ugg, 15 hass, 16 aurar, 17 innan, 18 ötull, 19 rómað, 20 rola. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Be2 Be7 7. O-O O-O 8. Be3 Rc6 9. Kh1 Bd7 10. f4 Rxd4 11. Bxd4 Bc6 12. Bd3 d5 13. e5 Re4 14. De2 Rxc3 15. bxc3 g6 16. g4 He8 17. f5 Bf8 18. Hf3 Dh4 19. Dg2 b5 20. Haf1 a5 21. fxg6 fxg6 22. g5 Be7 23. Hf4 Dxg5 24. Dh3 Bf8 Staðan kom upp fyrir skömmu í efstu deild þýsku deildarkeppninnar. Stórmeistarinn Alexander Aresc- henko (2.673) frá Úkraínu hafði hvítt gegn kollega sínum Sergei Movsesjan (2.751) frá Slóvakíu. 25. Hxf8+! Hxf8 26. Dxe6+ Kg7 27. Hg1 Dh5 28. Dxc6 Df3+ 29. Hg2 Hf4 30. Be2 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sveifluspil. Norður ♠G10862 ♥G9842 ♦G86 ♣-- Vestur Austur ♠D9 ♠– ♥D6 ♥ÁK10753 ♦1032 ♦Á94 ♣ÁKG1042 ♣D973 Suður ♠ÁK7543 ♥– ♦KD75 ♣865 Suður spilar 6♠ doblaða. Það er góð regla í sveitakeppni að melda „einum meira“ í vafastöðum, enda oft óljóst hver er að fórna á hvern. Spilið að ofan kom upp í að- alsveitakeppni Bridsfélags Reykjavík- ur í síðustu viku. Slemma stendur í báðar áttir, 6♠ í NS og 6-7♣ í AV. Á fimm borðum (af 20) fengu NS að spila 6♠ doblaða. Þetta var ein sagnröðin: Suður vakti á 1♠, vestur sagði 2♣ og norður stökk í 4♠. Austur göslaðist í 6♣ og suður sagði 6♠, fyrst og fremst til fórnar. Sem vestur doblaði til að vara við framhaldi. Veiki hlekkurinn er hér stökk austurs í 6♣. Austur á nægi- lega góð spil til að segja 5♠ á eyðuna, en þá mun hann uppskera kröfupass frá makker við 6♠, sem dugir honum í 7♣. Ekki þar fyrir, 7♣ tapast í vestur með hjarta út, eins og sást á nokkrum borðum. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er alltaf affarasælast að taka öllu með nokkrum fyrirvara sérstaklega þegar um óvæntar uppákomur er að ræða. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ástæður þínar fyrir því að gera hlutina eru alveg skýrar – fyrir þér alla vega. Gefðu þér tíma til að sinna þínum nánustu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú er tími til þess hafa sam- band við vini og vandamenn, einkum þá, sem þú hefur ekki séð lengi. Taktu frá dag til að sinna andlegri velferð. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Vertu óhrædd/ur við að koma hugmyndum þínum á framfæri í vinnunni í dag. Gættu þess að þú fáir þá við- urkenningu sem þú átt skilið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Fólki finnst gaman að færa þér gjafir – kannski af því að þú ert svo vina- legur. Stundum breytir það litlu en stundum leiða þessar stundir til gagn- gerra breytinga í lífinu. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Fólk hefur áhuga á þér og bíður í eftirvæntingu eftir næsta uppátæki þínu. Reyndu að forðast allt slíkt og mundu að fæst orð hafa minnsta ábyrgð. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það sem þér kann að virðast undrun á leið þinni er í raun og veru prófsteinn á leið þinni til aukins þroska. Opnaðu aug- un með jákvæðum huga og þá eru þér allir vegir færir. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þér hefur tekist að koma fjármálunum í rétt horf og hefur því efni á að verðlauna sjálfan þig. Hrífandi fólk verður á vegi þínum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Veittu mótspyrnu og varastu tungulipurt fólk sem ekki ber hag þinn fyrir brjósti. Horfðu fram á við með djörfung og dug. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Pukur og baktjaldamakk gætu haft áhrif á þig fjárhagslega í dag. Sýndu þolinmæði, hlutirnir lagast fljótt aftur og þá stendur þú með pálmann í höndunum. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Fyrir hvað viltu vera þekktur? Svarið við þeirri spurningu hefur breyst hjá þér undanfarin ár og til dagsins í dag. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt þú viljir grípa öll þau tæki- færi sem bjóðast skaltu gæta þín. Und- irbúðu þig vandlega áður en þú segir hug þinn til málefnisins. Stjörnuspá 24. mars 1973 Kjarvalsstaðir, myndlistarhús Reykjavíkurborgar á Mikla- túni, voru formlega teknir í notkun og opnuð stór sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarval listmálara. Hann tók sjálfur fyrstu skóflustunguna í ágúst 1966. 24. mars 1987 Albert Guðmundsson sagði af sér sem iðnaðarráðherra vegna ásakana um vantaldar greiðslur frá Hafskip. Í kjöl- farið stofnaði hann Borg- araflokkinn sem bauð fram í öllum kjördæmum í kosn- ingum 25. apríl. 24. mars 2005 Skákmeistarinn Bobby Fisc- her kom til landsins frá Japan, en Alþingi hafði veitt honum ríkisborgararétt þremur dög- um áður. Hann lést 17. janúar 2008, 64 ára að aldri. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Skúli Svavars- son kristniboði er sjötugur í dag, 24. mars. Hann tekur á móti gestum í Kristni- boðssalnum á Háaleitisbraut í dag frá kl. 16 til 19. Afmæl- isbarnið vill ekki gjafir, en þeir sem vilja gleðja hann geta í veislunni látið kristniboðið njóta þess. 70 ára Guðmundur Elíasson frá Pét- ursey er sextug- ur í dag, 24. mars. Hann verður í vinnunni í N1 Fossnesti, þar sem honum líður best. Kaffi verð- ur á könnunni. 60 ára „ÞAÐ er mikið að baki og vonandi eitthvað fram- undan,“ sagði Arnór K. Hannibalsson prófessor sem er 75 ára í dag. Hann kvaðst ekki hafa lagt mikið upp úr afmælishaldi og dagarnir jafnvel lið- ið án þess að hann myndi eftir afmælinu. Arnór hefur frekar fagnað öðrum áföngum. Hann sagði að þar beri einna hæst doktorspróf í heimspeki frá Háskólanum í Edinborg 1973. Arnór dvaldi er- lendis við nám og störf í alls um áratug. „Árin fimm sem ég var í Moskvu höfðu úr- slitaáhrif á alla mína ævi,“ sagði Arnór. Hann var þar við nám á sjötta áratug síðustu aldar þegar gert var upp við Stalínstímann. Arnór hefur fylgst með málum í Sov- étríkjunum sem voru, Rússlandi og í Póllandi alla tíð síðan. „Ég kynntist fjölbreytilegri menningu þessara þjóða sem þá voru kallaðar austantjalds. Það er vettvangur fyrir ungt fólk í dag að kynna sér tungur, bókmenntir og menningu þessara þjóða. Háskólar í Kraká og Varsjá standa opnir íslenskum stúdentum og eins í Litháen.“ Arnór er löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr rússnesku og pólsku. Á erf- iðleikaárum pólsku þjóðarinnar snemma á 9. áratug 20. aldar hafði hann milligöngu um aðstoð héðan við Pólverja. gudni@mbl.is Arnór K. Hannibalsson prófessor 75 ára í dag Árin í Moskvu mótuðu lífið Nýirborgarar Reykjavík Hinrik Örn fæddist 25. nóvember kl. 9.25. Hann vó 3.800 g og var 51 cm langur. For- eldrar hans eru Áslaug Ósk Hinriksdóttir og Ósk- ar Örn Guðbrandsson. Kópavogur Jóna María fæddist 19. september kl. 4.29. Hún vó 3.575 g og var 50 cm. Foreldrar hennar eru Laura Kather- ine Moncada og Guð- mundur H. Einarsson. Reykjavík Máni fæddist 14. desember kl. 13.25. Hann vó 3.710 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Hrönn Haralds- dóttir og Friðrik Þór Reynisson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.