Morgunblaðið - 28.04.2009, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009
Kærar þakkir!
Samfylkingin þakkar kjósendum sínum innilega fyrir stuðninginn. Þessi sögulegi
sigur verður okkur hvatning til að leggja okkur öll fram í baráttunni fyrir hugsjónum
jafnaðarmanna. Einnig viljum við sérstaklega þakka öflugum hópi sjálfboðaliða sem
vann ötult og óeigingjarnt starf á undanförnum vikum. Árangurinn er augljós:
Með samhentu átaki er Samfylkingin orðin stærsti stjórnmálaflokkur landsins!
www.xs.is
www.xs.is
Kjörfundur
í Hveragerði
Valgarð Runólfsson segir myndina
,,Komið á kjörstað,“ á bls. 2 í Les-
bókinni á laugardag tekna á kjör-
stað í Barnaskólanum í Hveragerði
og sýni kjörstjórnina þar að störf-
um; Stefán Guðmundsson, húsa-
smíðameistari, hreppstjóri og for-
maður kjörstjórnar til margra ára,
situr fjærst á myndinni, við hlið
hans er Þórður Ögmundur Jó-
hannsson, kennari og fræðimaður,
og þá Sæmundur Jónsson, garð-
yrkjubóndi á Friðarstöðum. Kjós-
andinn er ein af mörgum fegurð-
ardísum í Hveragerði bæði fyrr og
síðar!
LEIÐRÉTT
Þau mistök urðu við vinnslu kosn-
ingakálfsins sem fylgdi Morg-
unblaðinu í gær að myndir nokkurra
þingmanna víxluðust. Hér eru nöfn
þingmannanna birt í réttu kjör-
dæmi.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Myndir víxluðust
f. 1950
Guðbjartur
Hannesson
þm. frá 2007
f. 1958
Ólína
Þorvarðardóttir
nýr þingmaður
Norðausturkjördæmi
3 þingmenn
f. 1953
Kristján
Möller
þm. frá 1999
f. 1961
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
nýr þingmaður
f. 1958
Jónína Rós
Guðmundsdóttir
nýr þingmaður
Norðvesturkjördæmi
2 þingmenn
Samfylkingin
DAVÍÐ Oddsson, fyrrverandi for-
maður stjórnar Seðlabanka Íslands,
segir í viðtali við breska blaðið
Daily Telegraph að hann hafi
margvarað við útþenslu íslensku
bankanna, áður en þeir hrundu í
byrjun október í fyrra.
Í viðtalinu við blaðið segir Davíð
að ríkisstjórnin, sem þá var undir
forsæti Geirs H. Haarde, hafi ekki
hlustað á viðvaranir sínar heldur
hafi stjórnin frekar hlustað á
bankamennina. „Stjórnendur nýju
bankanna sögðu, að Seðlabankinn
væri allt of gamaldags og ekki ætti
að hlusta á menn þar. Ríkisstjórnin
ákvað að hlusta á þá, ekki okkur,“
segir Davíð meðal annars í viðtal-
inu.
Þá er haft eftir Davíð í viðtalinu
að hart hafi verið að honum sótt,
þegar sem mest gekk á hér á landi
eftir að bankarnir hrundu. Nú sé
hins vegar annað uppi á teningnum.
Hann geti gengið um göturnar,
glaður í bragði, án þess að vera
með verði sér við hlið. „Í fyrstu
beindist mikil reiði að mér, en í dag
fæ ég mjög vingjarnleg viðbrögð.“
Davíð segist ætla að fara að snúa
sér að því að skrifa smásögur og
planta trjám við sumarhús sitt að
Móeiðarhvoli.
Segir ríkisstjórnina hafa hlustað á bankamennina
Davíð Oddsson segist í viðtali við Daily Telegraph
hafa margvarað við ofþenslu íslensku bankanna
Morgunblaðið/ValdísThor
Á Alþingi Davíð Oddsson sést hér koma á fund viðskiptanefndar Alþingis.
Prestastefna
2009 hefst með
messu í Kópa-
vogskirkju í dag
kl. 18.
Meginefnin á
dagskrá að
þessu sinni eru
tvö. Annars veg-
ar er umræða
um stöðu sam-
félags og kirkju
út frá umræðu í þjóðfélaginu um
endurmat á öllum sviðum og nýja
framtíðarsýn. Síðara meginefni
þessa kirkjuþings eru samþykktir
um innri málefni þjóðkirkjunnar
sem einnig voru ræddar á síðustu
prestastefnu.
Prestastefnu lýkur á fimmtudag
kl. 16 með messu í Kópavogs-
kirkju.
Staða kirkju
og samfélags
Karl
Sigurbjörnsson