Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.04.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 2009 KVENRÉTTINDAFÉLAG Íslands fagnar því að meirihluti flokkanna, sem nú taka sæti á Alþingi, er með jafna kynjaskipt- ingu í þing- flokkum sínum. Þetta eru Sam- fylking, Vinstri- hreyfingin – grænt framboð og Borg- arahreyfingin. Einnig fagnar Kvenréttindafélagið því sögulega háa hlutfalli kvenna á Alþingi, en tæp 43% þeirra sem taka þar sæti eru konur. Fagna fjölgun kvenna á Alþingi FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur gefið út reglugerð um breytingu á skilyrðum rétthafa til lækkunar á vörugjaldi af bifreiðum til fólks- flutninga og bifreiðum sem ætlaðar eru til ökukennslu. Í reglugerðinni er kveðið á um að vörugjald af slík- um bifreiðum skuli lækkað hafi rétthafi tekjur að lágmarki 70% af reiknuðu endurgjaldi í staðgreiðslu skv. viðmiðunarreglum sem fjár- málaráðherra hefur gefið út. Upp- fylli rétthafi ekki sett skilyrði ber honum að endurgreiða mismuninn á fjárhæð vörugjalds sem greitt var og þeirri fjárhæð sem borið hefði að greiða ef ekki hefði komið til lækkunar. Breytingar á vöru- gjöldum leigubíla LANDBÚNAÐAR- og sjáv- arútvegsráðuneytið hefur ákveðið að taka boði byggingafélagsins Mótás um leigu á 3.800 fermetra húsnæði fyrir Matís ohf., að Vín- landsleið 12. Húsnæðið sem nú er fokhelt er á þrem hæðum ásamt kjallara og mun leigusali innrétta og skila því fullfrágengnu. Leigusali hefur áætlað að mannaflaþörf, þ.m.t. af- leidd störf við að fullgera hús- næðið, séu um 200 ársverk. Morgunblaðið/Jim Smart Dýrt hús fyrir ríkið FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur staðfest breytingar á reglugerð um ÍSL-veðbréf og íbúðabréf. Meðal nýmæla er m.a. að nú þurfa aðeins að líða 10 ár frá því að íbúðar- húsnæði er fokhelt þar til unnt er að sækja um lán til orkusparandi breytinga á húsnæðinu. Þá er nú heimilt að kaupa ÍLS-veðbréf vegna lóðabreytinga svo sem vegna hellulagna eða smíði sólpalla. Lánin geta verið til styttri tíma en áður, allt niður í 5 ár. Tíminn sem má líða frá úttekt að lánsumsókn lengist úr 6 í 12 mánuði. Byggingaraðila er nú heimilt að yfirtaka tímabundið lán frá Íbúðalánasjóði sem hvílir á íbúð sem byggingaraðilinn tekur upp í íbúð sem hann er að selja. Rýmri reglur um lán vegna endurbóta HÁTÍÐARSTEMMNING ríkti á Siglufirði um helgina þegar fjórar stórar rútur ferjuðu fólk á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar í gegn- um Héðinsfjarðargöngin. Talið er að yfir þúsund manns hafi nýtt sér þetta einstaka tækifæri sem var í boði Fjallabyggðar og Metrostav. Rúturnar fóru á klukkustundar fresti en auk þeirra var dísilknúnum einkabílum leyft að aka um göngin. Áð var í Héðinsfirði þar sem nem- endur 10. bekkjar Ólafsfjarðar báru fram drykki. Það var því margt um manninn á Ólafsfirði á sunnudag og fólk nýtti sér sundlaugina, heimsótti Náttúrugripasafnið eða frum- kvöðlasetur Rauðku. Akstur um Héðinsfjarðargöng tekur um 10 mínútur og ættu þau því að efla samgöngur milli bæjarfélag- anna. Gert er ráð fyrir að göngin verði tekin í notkun síðsumars á næsta ári. jmv@mbl.is Ekið í rútum um Héðinsfjarðargöng Ljósmynd/Steingrímur Kristinsson Bíltúr Siglfirðingar fögnuðu boði Fjallabyggðar um bílferð um Héðinsfjarð- argöng og er talið að yfir þúsund manns hafi nýtt sér tækifærið. Siglfirðingar skelltu sér til Ólafsfjarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.